Flm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Hæstv. forseti. Mér er mjög ljúft að þakka öllum ræðumönnum fyrir þátttöku í þessum umræðum sem hafa verið bæði málefnalegar og reyndar líka skemmtilegar, því það getur farið saman. Ég þakka sem sagt öllum þeim sem tekið hafa til máls og ég vil sérstaklega taka undir það sem hæstv. ráðherra sem síðast talaði tók fram, að það er auðvitað miklu fleira sem er okkur sameiginlegt í þessum málum en hitt sem skilur okkur að. Við verðum auðvitað að reyna að nálgast sjónarmið hvers annars en líka að skilja hvað er mergurinn málsins. Svona málefnalegar umræður verða auðvitað til þess að ég hlusta á rök annarra og vona að einhverjir hlusti á þau rök sem ég færi fram. Síðan reynum við að setjast niður, gjarnan utan þingsala, t.d. í utanrmn. sem á náttúrlega að sinna þessum málum og ekki síður í Evrópustefnunefndinni, og komast þar að sameiginlegri niðurstöðu.
En að þessu mæltu hlýt ég enn að rökstyðja með nokkru mínar skoðanir og kannski skoðanir annarra í einhverjum atriðum. Ég skal þá fyrst víkja að ræðum hæstv. utanrrh. en þar var það nú helst að þau málefni sem hvinið hefur um voru rædd. Ég harma það ekki, þvert á móti. Það var sjálfsagt og eðlilegt að gera það.
Ráðherrann gat þess að forsrh. hefði lýst því yfir, og átti þá væntanlega við að hann hefði gert það hér í þinginu, að það gæti spillt fyrir samstarfinu í EFTA að taka jafnhliða upp tvíhliða viðræður við Evrópubandalagið. Ég minnist þess að hann sagði það hér einhvern tíma á haustmánuðum, hygg ég. Ég hef ekki heyrt hann segja þetta síðan. Ég held þetta sé ekki svo þegar málin eru skoðuð niður í kjölinn. Þá vil ég sérstaklega vekja athygli á því að á fundinum í Osló sem haldinn var 14. og 15. mars á sl. ári var gerð yfirlýsing. Eftir hann var birt yfirlýsing EFTA-leiðtoganna allra, forsætisráðherranna. 16. liður þessarar yfirlýsingar hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Við viðurkennum sjálfsákvörðunarrétt hverrar einstakrar EFTA-þjóðar hvað varðar tvíhliða frumkvæði og samninga við EB með tilliti til sérhagsmuna þeirra.``
Undir þetta skrifaði hæstv. forsrh. Steingrímur Hermannsson. Ég benti honum raunar á það að hann hefði skrifað undir þetta. En ekki nóg með það. Hæstv. utanrrh. var í Osló þessa sömu daga og þeir komu báðir fram í fréttum sem aðilar að þessu samkomulagi. Það þarf ekkert frekar vitnanna við að við erum ekki að meiða okkar félaga í EFTA með þeim sjálfsögðu tilmælum sem við beinum til Evrópubandalagsins að láta bókun, sem er orðin nær 20 ára gömul, frá 1972, gilda. Við förum ekki fram á annað. Efni hennar gildi að breyttu breytanda. Það er nú öll kröfugerðin sem við erum að setja fram. Og þess vegna þarf ekkert að vera að velta því lengur fyrir sér, við skulum bara ganga til verks og óska eftir þessum formlegu viðræðum, ef við viljum kalla þær það, beinu viðræðum í öllu falli, við æðstu menn
Evrópubandalagsins um viðskiptamál --- og tollamál ef menn vilja. Þau heyra ekki undir sjávarútvegsráðherra, ef það er hægt að kalla þennan ráðherra sem hefur undir sér um 60 manna lið, af eitthvað yfir 20 þús. í 24 ráðuneytum.
Allur sjávarútvegur og fiskvinnsla, styrkirnir og allt gillið í þeim atvinnuvegi er 0,14% af samanlögðum þjóðartekjum þessara ríkja. Þessi mál eru ekki mál málanna í Evrópubandalaginu. Það þarf að tala við einhvern Marin, ég veit ekkert um manninn, þetta getur verið hinn huggulegasti maður. Það var Spánverji sem var hér í nefnd sem kom í boði Alþingis eða utanrmn. eftir að við heimsóttum Evrópubandalagið haustið 1978. Þetta voru mjög miklir og góðir fundir með þeirri ágætu nefnd þegar hún kom hingað til Reykjavíkur. Það var svo sem ekki mikil auglýsingastarfsemi í kringum það. En þar voru menn inni á því, hvort þeir voru spænskir eða þýskir, að kröfur um fiskveiðiréttindi við Ísland yrðu æðilangsóttar. Ég man sérstaklega að írskur þingmaður sagði að slík endaleysa kæmi aldrei til greina. Því mótmælti enginn á þessum fundi, ekki nokkur maður.
Síðan var í ræðu ráðherrans hin hliðin, sem hann kallaði svo, hvort við ættum að bjóða veiðiheimildir. Það er auðvitað alveg fráleitt, það gerum við ekki, við bjóðum engar veiðiheimildir. Fyrir því er ekkert fylgi á Alþingi og enn síður utan þings með þjóðinni. Við getum ekkert boðið veiðiheimildir og höfum enga heimild til að bjóða þær neinum. Það er alveg af og frá og þess vegna skulum við víkja þeirri hugsun frá okkur í eitt skipti fyrir öll og fúsastur skal ég vera að gleyma þeim orðaskiptum sem hafa af þessu tilefni orðið.
En þegar ég segi að sjútvrh. eigi ekki að fara til viðræðna í Brussel, þá er það ekki vegna þess að ég vantreysti þeim manni. Ég tel að vísu hæstv. utanrrh. og hæstv. forsrh. ekkert síðri samningamenn en sjútvrh., kannski fremri, það er hægt að meta það eins og hverjum sýnist. En það er bara þetta, að senda sjútvrh. til Evrópubandalagsins til að biðja um leiðréttingu á viðskiptakjörum, einfalda leiðréttingu. Hvað er verið að undirstrika með því? Að það sé einhver sameiginleg fiskveiðistefna bandalagsins sem búin var til í
Róm 1957 og oft er verið að vitna til sem einhvers konar allsherjar stjórnarskrár alheimsins. Við værum illa settir ef svo væri þegar allt kæmi til alls því þá værum við enn þá með þrjár mílur og við værum mestu lögbrjótar allrar veraldarinnar. Það voru þrjár mílur sem giltu þá um hina sameiginlegu fiskveiðistefnu þeirra 1957.
Það er líka alveg rétt sem hæstv. utanrrh. sagði áðan. Þróunin er svo ör að við getum ekki sagt núna: Það eru 20 ár. Þess vegna eru viðræður hans við danskan kollega sinn dálítið broslegar í mínum huga. Þær voru skemmtilegar í sjónvarpinu í gær. Þótt hann sé eitthvað að blaðra um að við verðum komnir í Evrópubandalagið eftir 20 ár þá veit maður ekki nokkurn skapaðan hlut um það. Mér er nákvæmlega sama hvað hann segir um slíkt og þess vegna er það
líka rétt sem ráðherra segir, við eigum ekki að góna á það sem við vitum ekkert hvað verður. Því síður að vera að góna á einhverja fortíð sem er svo löngu, löngu liðin að það styður ekki nokkur maður lengur, eins og fiskveiðiréttindi innan 200 mílna. Það er ekki nokkurt kvikindi.
Evrópubandalagið hafði einhver fiskveiðiréttindi við Kanada fyrir einum 3--4 árum í eitt ár. Það hefur ekki verið minnst á þau síðan og verður aldrei. Menn verða að fara að átta sig á því að það eru ekki 20 ár síðan við höfðum 12 mílur hér við Ísland. Og mönnum hefði þótt það ærið að innan þriggja ára frá 1973 værum við búnir að fá 200 mílur. Og nú erum við að teygja okkur eftir hafsbotni suður um öll höf og norður og vestur. Þróunin er auðvitað sú í öllum þessum málum að strandríkin ráða þjóðarétti, hafréttinum. Þau eru 3 / 4 af þjóðum heims og þau eru að taka sér öll þessi réttindi og láta þau auðvitað aldrei af hendi, aldrei að eilífu. Þess vegna getum við alveg sæst á það að doka eitthvað við, nema með þessari breytingu á bókun 6, hún liggur alveg fyrir og hlýtur auðvitað að verða samþykkt og mér dettur ekkert annað í hug.
En síst situr á mér að spilla þeim góða friði sem hér er orðinn og ég er sannfærður um það, eftir ummæli sem hér hafa fallið, að í utanrmn. og Evrópustefnunefnd muni takast góð samvinna um að leysa þessi mál, báðar þessar hliðar málsins eins og ráðherra hefur margendurtekið. Það er ekki ein leið sem á að fara, það á að fara tvær og báðar að settu marki, samhliða. Þess vegna efa ég ekki að þessi tillaga verði samþykkt eða í öllu falli fer hún til utanrmn. og verður rædd í Evrópustefnunefndinni þar sem við munum leita sátta og auðvitað hafa það að leiðarljósi sem eru þjóðarhagsmunir. Við höfum nú borið gæfu til þess ærið oft, þrátt fyrir allt, Íslendingar, að ná saman um mestu hagsmunamálin þegar við höfum átt í deilum við útlenda menn og ég treysti því að svo verði enn. Mér heyrist á hæstv. forseta að hann hafi gjarnan hug á að koma þessu máli til nefndarinnar á þessum fundi og ekki ætla ég að koma í veg fyrir það. Ég þakka enn og aftur fyrir þessar mjög málefnalegu, skemmtilegu og nytsamlegu umræður.