Guðmundur G. Þórarinsson:
Virðulegur forseti. Mér virðast allir vera sammála um mikilvægi þess að Íslendingum takist að aðlaga sig sem fyrst og best að þeirri þróun sem nú er að verða innan Evrópubandalagsins og aðlaga sig þeim aðstæðum sem þar skapast þegar innri markaðurinn kemst á 1992. Um þetta hygg ég að Íslendingar séu allir sammála. Mér virðist jafnframt að yfirgnæfandi meiri hluti Íslendinga sé þeirrar skoðunar að aðild að EB sé ekki á dagskrá hér. Hins vegar skipti það meginmáli að ná sem allra bestum samningum við þá stóru og sterku viðskiptaheild sem Evrópubandalagið verður, ekki síst eftir stofnun innri markaðarins. Þá liggur auðvitað beint fyrir, ef menn eru sammála um þessi markmið, með hverjum hætti eru hagsmunir Íslendinga best tryggðir? Hvernig eiga Íslendingar að standa að málum þannig að þeir nái sínum hagsmunum best, hraðast og örugglegast fram?
Það er auðvitað engin spurning að á sínum tíma var sú umræða víðtæk innan EFTA-ríkjanna með hvaða hætti væri best að ganga fram, hvort tvíhliða viðræður einstakra ríkja við Evrópubandalagið væru hentugastar til árangurs eða hvort EFTA-ríkin ættu að reyna að slá sér saman sem sérstök heild og reyna í krafti þeirrar samstöðu og þeirrar stærðar að ná fram sem bestum samningum. Þetta mál tekur í rauninni síðan nýja stefnu með hinni kunnu ræðu Delors þar sem hann beinlínis vísar til þess að Evrópubandalagið hafi annars vegar sem mest að vinna og eigi þar af leiðandi erfitt með viðræður við fjölmargar þjóðir í einu. Eigi þetta mál að ganga hratt og örugglega fyrir sig og menn að gera sér vonir um sem mestan árangur þá sé eðlilegt að EFTA-ríkin reyni að samræma sín sjónarmið og komi síðan fram sem heild í þeim viðræðum sem þarna sé um að ræða. Í kjölfar þessarar ræðu Delors tóku málin þá stefnu að EFTA-ríkin hittust á nokkrum fundum og ræddu hugsanlega samstöðu. Ég þarf ekki að rekja
þau mál hér. En það er auðvitað öllum Íslendingum ljóst að á Oslóarfundinum fallast Íslendingar endanlega á að vera með í þessari heild í þeirri trú að á þann veg sé hagsmunum þeirra best fyrir komið. Þó féllust Íslendingar ekki á það fyrr en gengið var að mjög hörðum og ákveðnum skilyrðum þeirra. Og vil ég þar sérstaklega nefna fríverslun með fisk. Enda töldu Íslendingar, þrátt fyrir ýmsa aðra fyrirvara, að með því að að þeim var gengið og þó sérstaklega ákvæðunum um fríverslun með fisk væri opnuð sú leið að við gætum staðið heilir og óskiptir að þessum sameiginlegu viðræðum EFTA-ríkjanna við EB. Þetta var auðvitað mjög mikilvægt. Að sjálfsögðu hefðu Íslendingar getað kosið að fara í tvíhliða viðræður einir við Evrópubandalagið. Íslendingum liggur sjálfsagt á að fá þessi mál leyst sem fyrst. En við skulum ekki gleyma því að það eru ekki bara Íslendingar sem hafa áhuga á að ná samningum við Evrópubandalagið sem fyrst, það hafa öll EFTA-ríkin.
Svíar, sem nú leiða þessar samningaviðræður, hafa nýlega lýst yfir áhuga sínum. Þeir hafa lýst yfir
óskum sínum að flýta þessum viðræðum. Efnahagskerfi EFTA-ríkjanna kalla öll á að ganga frá þessum samningum. Ég lít svo á að með því að velja EFTA-sporið sem grunnatriði í þessum samningum höfum við tengt hagsmuni Íslendinga og hinna EFTA-ríkjanna. Hversu mjög sem þeim liggur á og hversu mjög sem þau kjósa að ljúka sínum samningum geta þau það ekki með því að skiljast við hagsmuni Íslendinga. Þau verða þess vegna samhliða að gera þá kröfu að gengið sé til heildarsamninga um okkar helstu atriði. Ég lít svo á að velji menn það samhliða að fara í tvíhliða viðræður við Evrópubandalagið sleppi menn því taki, sem ég vil orða svo, sem þeir hafa nú á hinum EFTA-ríkjunum, til að knýja þau í krafti þessarar samstöðu til að halda á okkar hagsmunamálum jafnhliða sem þau leita eftir samningum fyrir sín efnahagskerfi. Mér finnst ákaflega nærtækt að það sé auðveldari leið fyrir þau í þeim samningum að segja: Ja, við þurfum í sjálfu sér ekki að fara út í þessi mál með bókun 6 eða fríverslun með fisk hjá ykkur, þið eruð sjálfir í tvíhliða viðræðum, formlegum, um þau atriði. Þar með lítum við svo á að þið hafið tekið þann þátt út úr þessum sameiginlegu viðræðum okkar og viljið fremur og hafið kosið að annast þann þátt sjálfir og einir. Inn í það þurfum við ekki að blanda okkur og við getum þá lokið fremur hinum atriðunum sem snerta okkur beint og eru almennara eðlis. Það verður auðvitað ekki fram hjá því horft að þar með kynnum við að sitja einir með þessi atriði.
Nú getur menn greint á um hvort Íslendingar, svo litlir sem þeir eru á þessu skeri úti í Atlantshafi, gætu haft betri möguleika til að knýja fram góða samninga einir eða í krafti heildarinnar. Ég er þeirrar skoðunar, og var það þegar ég féllst á það fyrir mitt leyti að við færum í þetta EFTA-spor, að með því að tengja þessar samningaviðræður heildinni, að tengja hagsmuni okkar varðandi fiskinn beinum og öllum hagsmunum hinna EFTA-ríkjanna sem verða að ná samningum við Evrópubandalagið, og Evrópubandalagið veit að þau þurfa að ná samningum við, þá leit ég svo á að á þann hátt tryggðum við það best að við gætum knúið fram viðunandi lausn einmitt á þessum þætti. Ég geri mér grein fyrir að ekki er víst að allir séu sammála þessu. Ég leyfi mér hins vegar ekki að efast um að allir þeir sem hér hafa talað hafa fyrst og fremst það markmið
að ná sem bestum samningum fyrir Íslands hönd í þessum málum, að fara þær leiðir sem þeir telja að séu hagsmunum Íslendinga bestar og sterkastar.
En ég er, og vil láta það koma hér fram enn einu sinni, ég hef reyndar lýst því bæði í ræðu og riti áður, sammála því að láta fyrst og fremst reyna á þessa EFTA-heildarleið. Ég er sammála rökum utanrrh. í því máli. Ég skil þá vel sem eru óþolinmóðir og vilja grípa inn í þetta samningaferli og treysta sjálfum sér og okkur betur til að fara inn í þennan þátt. En í því felst að mínu viti nokkur ósamkvæmni. Og jafnvel þó menn vitni til þess að þeir geti skilið Oslóarsamkomulagið á þann veg að
við höfum fullt leyfi, innan þess samkomulags, og allar heimildir til að fara í tvíhliða samninga þá er það eigi að síður svo að mínu viti að með því að gera það losum við EFTA-ríkin undan þeirri ábyrgð sem þau óneitanlega hafa tekist á hendur með heildarsamningunum, að skiljast ekki við hagsmuni Íslands í þessu samkomulagi. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að við förum með mikilli gát í það að opna formlegar samningaviðræður um hluta þessa máls og taka það þar með út úr heildarviðræðunum og firra þar með þau lönd sem við nú höfum tengt þessum viðræðum ábyrgð af niðurstöðunum. Náist hins vegar í heildarviðræðunum ekki fram eða sjáum við fram á að við náum ekki þeim árangri sem við vonumst til í krafti þess afls sem við teljum okkur hafa myndað með þessu sameiginlega ríkjaspori, þá hljótum við að beita ýmsum öðrum ráðum.
Það er út af fyrir sig ekkert óeðlilegt að menn greini á um leiðir í þessu, en mín niðurstaða er sú að sú leið sem flm. þessarar þáltill. leggja til sé í meira lagi varhugaverð á þessu stigi mála.