Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseta hefur borist eftirfarandi bréf frá hæstv. forseta Nd.:

    ,,Páll Pétursson, 1. þm. Norðurl. v., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að vegna anna 1. varamanns taki 2. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Sverrir Sveinsson veitustjóri, sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.

Árni Gunnarsson,

forseti Nd.``


    Með þessu bréfi fylgir eftirfarandi símskeyti:

    ,,Skrifstofa Alþingis við Austurvöll, Reykjavík.
    Af persónulegum ástæðum get ég ekki tekið sæti á Alþingi sem 1. varamaður Páls Péturssonar að þessu sinni.

Elín R. Líndal.``


    Undirskrift staðfestir Ásta Ögmundsdóttir talsímavörður.
    Sverrir Sveinsson veitustjóri hefur tekið sæti áður á Alþingi á þessu kjörtímabili. Býð ég hann velkominn til starfa.
    Þá hefur borist annað bréf frá hæstv. forseta Nd.:

    ,,Stefán Valgeirsson, 6. þm. Norðurl. e., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég get ekki sótt þingfundi á næstunni vegna sjúkrahúsvistar leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess vegna veikinda 1. varamanns, Péturs Þórarinssonar sóknarprests og sérstakra anna 2. varamanns, Auðar Eiríksdóttur oddvita, að 3. varamaður Samtaka jafnréttis og félagshyggju í Norðurl. e., Jóhann A. Jónsson framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.

Árni Gunnarsson,

forseti Nd.``


    Þessu bréfi fylgja tvö símskeyti:

    ,,Skrifstofustjóri Alþingis, Alþingi, Reykjavík.
    Ég, Pétur Þórarinsson, 1. varamaður Samtaka jafnréttis og félagshyggju, get ekki sakir anna tekið sæti á Alþingi í forföllum Stefáns Valgeirssonar. Læt sætið eftir til míns varamanns.

Pétur Þórarinsson.``


    Og þá fylgir einnig annað skeyti:

    ,,Alþingi, Reykjavík.
    Vegna mikilla anna get ég ekki tekið sæti á Alþingi í forföllum Stefáns Valgeirssonar.

Virðingarfyllst,

Auður Eiríksdóttir,

2. varamaður Samtaka um jafnrétti og félagshyggju.``


    Jóhann A. Jónsson framkvæmdastjóri hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og ég býð hann velkominn til starfa.