Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 20. mars 1990


     Guðmundur H. Garðarsson:
    Virðulegi forseti. Það er ekki ofmælt, sem sagt hefur verið hér fyrr af öðrum ræðumönnum, að þetta frv. til laga um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins er veigamikið frv. sem hlýtur að krefjast allrar athygli hv. þingmanna og það ber að harma að það skuli svona seint fram komið þegar haft er í huga að það mun ekki vera eftir nema u.þ.b. mánuður af þingtíma.
    Eins og fyrri ræðumenn hafa sagt er komið hér inn á mjög veigamikið atriði, ef maður lítur á það út frá stefnumörkun, þ.e. hvort leggja eigi aukna áherslu á félagslegar íbúðir, en til þessa hefur það nú verið meginstefna flestra flokka, hugsanlega að undanskildu Alþb., að Íslendingar gætu átt sínar eigin íbúðir. ( Menntmrh.: Höfum við verið á móti því?) Hæstv. menntmrh. fær nú tækifæri hér á eftir til þess að taka þátt í þessari umræðu. Henni er ekki lokið. Þá kemur hæstv. ráðherra inn á það.
    Meginatriði frv. er, eins og sagt hefur verið fyrr í umræðunni og kom einnig fram hjá hæstv. félmrh., að lögfesta það að stórauka skuli hlut félagslegra íbúða, þ.e. þann þátt er lýtur að leiguíbúðum. Það er auðvitað markmið út af fyrir sig en í algjörri andstöðu við það sem áður hefur verið lögð áhersla á af hálfu Íslendinga. Hér er því um að ræða geysilega veigamikið mál. Ég segi það fyrir mitt leyti, sem þingmaður fyrir Reykjavík, að í þessu felst grundvallarbreyting frá þeirri meginstefnu sem Reykvíkingar hafa lagt áherslu á í sambandi við húsnæðismál sín í áratugi.
    Þegar maður lítur á þessa stefnumörkun hlýtur auðvitað sú spurning að vakna: Hvað er það sem knýr sérstaklega á um að koma með frv. sem felur í sér svona afgerandi stefnumörkun? Og ég mun leyfa mér, virðulegur forseti, að víkja nokkuð að því hér á eftir því að ég lít þannig á að í þessu felist raunverulega ákveðin uppgjöf á því að launafólk almennt, millitekjufólk og ég
tala nú ekki um þá sem hafa lægri tekjur, geti nokkurn tímann eygt það markmið að eignast sína eigin íbúð. Þetta er náttúrlega, virðulegur forseti, alveg í takt við þá núllstefnu hæstv. ríkisstjórnar sem er sú að gera sér engar vonir um það að millitekjufólk, launafólk almennt, geti eignast eigin íbúðir. Það er sem sagt verið að lögfesta þá stefnu að lífskjör þjóðarinnar verði með þeim hætti í framtíðinni að þetta fólk geti ekki átt sér nokkra von um að komast í íbúðir, þ.e. mannsæmandi íbúðir, nema þá í gegnum leiguíbúðakerfið. Þetta er að sjálfsögðu hörmuleg niðurstaða en að ýmsu leyti táknræn fyrir þá ríkisstjórn sem nú er við völd.
    Ég vil, virðulegur forseti, áður en ég fer í einstök atriði þessa lagafrv. fá að hafa hér nokkurn formála sem eru hugrenningar í sambandi við þessa stefnumörkun því að hún tengist fleiru en aðeins því atriði sem hér er til umfjöllunar. Hún tengist hinni almennu umræðu um stefnu sósíalista yfirleitt, þ.e. viðhorf þeirra sem aðhyllast þann sósíalisma sem

treystir á þess konar félagshyggju sem m.a. birtist í frv. Ég fyrir mitt leyti styð það að fólk standi saman í sínum félögum, stéttarfélögum og verkalýðsfélögum, en ég geri það með því fororði og forsendu að ég vil efla stöðu þess fólks, bæði stéttarlega og félagslega og eins einstaklingsbundið. Ég vil hins vegar ekki þurfa að standa frammi fyrir því með sama hætti og núv. hæstv. ríkisstjórn gerir þar sem hún segir: Það er útilokað að lífskjör ykkar geti batnað að því marki að þið getið eignast eigin íbúðir. Hins vegar skulum við sjá til þess að millifæra fé í kerfinu með þeim hætti að þið getið orðið leiguliðar.
    Það sem vekur athygli þegar maður fer yfir frv. og les grg. sem því fylgir er það að við gerð þess var skipað, ég vil segja einlitt lið til þess að vinna að þessum málum. Það vekur athygli á því sem sagt var hér fyrr í umræðunni af einum stjórnarstuðningsmanni en það var eitthvað á þá leið að þar sem Verkamannasamband Íslands hefði farið yfir frv. og mælt með því væri bara sjálfsagt að þingheimur samþykkti það. Ég spyr nú sem félagsmaður í Landssambandi ísl. verslunarmanna: Hvers vegna var ekki Landssambandi ísl. verslunarmanna gefinn kostur á að fara yfir frv. og kveða upp úr um það hvort Landssamband ísl. verslunarmanna gæti hugsað sér að styðja frv. eða hafna því? Það vill nú svo til að verslunarmenn eða þeir sem eru í þjónustustörfum greiða um 20% af öllu því fé sem fer inn í húsnæðismálakerfið á sama tíma og sama fólk, þetta unga fólk sem er í þessum þjónustugreinum, borgar um 1 / 4 hluta þess sem fer til umsjónarnefndar eftirlauna til þess að verðbæta ellilífeyri eldra fólksins í almennu verkalýðsfélögunum. Hvers vegna var ekki talað við fulltrúa þessa fólks? Hvað um önnur launþegasamtök? Hvers vegna var málið ekki borið undir þetta fólk? Er hugsanlegt að skýringin á því að aðeins var talað við Verkamannasambandið með þessum hætti sé sú að varaformaður þess er hv. þm. Karl Steinar Guðnason sem á sæti hér í hv. deild og er flokksbróðir hæstv. félmrh.? Við erum hér á hinu háa Alþingi til þess að fjalla um mál sem varða landsmenn í heild og hljótum þar af leiðandi að óska eftir svörum með tilliti til þess. Hér er verið að leggja fram stefnumörkun í máli sem snertir hagsmuni allra landsmanna, ekki bara félagsmanna innan verkalýðshreyfingarinnar heldur
einnig þeirra einstaklinga sem eru ekki í stéttarfélögum. Því er eðlilegt að spurt sé: Hvers vegna var þetta þrengt niður í þetta eina samband?
    Ég held því fram, virðulegur forseti, að frv. sé í rökréttu framhaldi af neikvæðum afleiðingum þeirrar tekjuskerðingar sem núv. ríkisstjórn hefur framkvæmt frá því hún kom til valda haustið 1988. Þetta er einn þátturinn í hinni neikvæðu stefnu þessarar ríkisstjórnar og hann snýr að húsnæðismálum. Með frv. er, eins og ég sagði í upphafi míns máls, staðfest hin neikvæða stefna þessarar ríkisstjórnar sem felst í því að fjölga í þeim hópi fólks sem getur ekki eignast eigin íbúðir. Þetta stafar auðvitað af því að sú ranga stefna sem þessi ríkisstjórn hefur fylgt varðandi tekju- og

eignastöðu fólksins hefur minnkað ráðstöfunartekjur þess, dregið úr kaupgetunni á sama tíma og hlutdeild ríkisins í þjóðartekjunum hefur verið stórlega aukin.
    Minnkandi hlutdeild fyrirtækja og einstaklinga í þjóðartekjum hrekur stöðugt fleiri yfir í fyrirgreiðslukerfi hins opinbera. Það er verið að hrekja stöðugt fleiri Íslendinga inn í þjóðfélag hinna eignalausu, eignalitlu einstaklinga, þeirra sem neyðast til þess að leigja alla sína tíð.
    Í frv. felst því miður, virðulegur forseti, þessi stefna núv. ríkisstjórnar. Hún krefst þess að stærri og stærri hluti íbúða skuli og verði að vera á svonefndum leigugrundvelli. Það er sem sagt eina úrræði núv. hæstv. ríkisstjórnar að byggja stöðugt meira á félagslegum grundvelli, þ.e. niðurgreiddum grundvelli, eins og fram kemur í frv. ef það er grannt skoðað. Þetta er að minni hyggju og okkar sjálfstæðismanna mjög slæm þróun. Þetta er þróun sem er andstæð, ég vil segja eðli Íslendinga, þ.e. því eðli okkar að viðhalda og efla sjálfsbjargarviðleitnina á þessu sviði sem öðrum. Þessi stefna gengur í þveröfuga átt við það sem er að gerast annars staðar í heiminum. Hins vegar birtist í þessari stefnu sá sósíalismi sem hefur beðið skipbrot í hinum sósíalísku ríkjum svo sem dæmin sanna í Austur-Evrópu og Sovétríkjunum. Ég sé að hæstv. menntmrh. brosir þegar þetta er sagt. ( Menntmrh.: Nei, ég er að lesa.) Af tillitssemi við hæstv. menntmrh., af því að mér hefur alltaf verið frekar vel við hann, ætla ég ekki að fara út í almenna pólitíska umræðu um Sovétríkin eða Austur-Evrópu. Hins vegar hlaut ég að vekja athygli á þessu, sérstaklega með tilliti til þess að í þessum ríkjum er fólkið að hafna forsjárhyggjunni. Það vill standa á eigin fótum, það vill vera óháð stjórnmálamönnum og það vill vera óháð ríkiskerfinu. En meginmarkmið sósíalista er, eins og hv. þm. vita, að efla ríkisvaldið, auka miðstýringu, færa til fjármuni, frá einstaklingum til kerfisins, og það má segja að Húsnæðisstofnun ríkisins sé hápunktur hins öfluga ríkiskerfis sem á Íslandi er. Það er t.d., eins og ég hef margoft sagt í ræðum á hinu háa Alþingi og hv. þm. Salome Þorkelsdóttir kom inn á, algjör óþarfi að færa alla þessa fjármuni úr lífeyrissjóðunum inn í Húsnæðisstofnun ríkisins til að útdeila þeim síðan aftur út í húsnæðismálakerfið. Þetta er hægt að framkvæma allt í gegnum bankakerfið.
    Eins og hæstv. félmrh. veit berst hæstv. viðskrh., flokksbróðir hennar, fyrir því sérstaklega að einfalda kerfið, framkalla sparnað og hagræðingu. Það höfum við gert í sambandi við bankakerfið. Þess vegna hlýtur það að vera markmið, bæði okkar og hæstv. ráðherra, sérstaklega ráðherra Alþfl., að hagræða í kerfinu með þeim hætti að nýta núverandi endurskipulagt bankakerfi með þeim hætti að leggja niður Húsnæðisstofnun ríkisins og færa þessa fjármuni inn í bankakerfið til þess að unnt sé að lækka vexti og kostnað við það að framkvæma og fjármagna húsnæðismálakerfið. Það er mjög einfalt mál að viðhalda og efla þann þátt, sem verður að hafa til staðar vegna þeirra sem bágast eru staddir, er lýtur að

félagslegum þætti íbúðarmála. Þetta veit hæstv. félmrh. En hér á Íslandi búum við því miður enn þá við það að hér eru sósíalistar við völd sem trúa á alvaldskerfi ríkisins, þ.e. á forsjá embættismanna og stjórnmálamanna.
    Það getur vel verið að hæstv. ráðherrum líði ekki allt of vel undir því þegar maður rekur forsögu sósíalísku flokkanna, en það er bráðnauðsynlegt vegna þess að þetta mál tengist svo þeirri stefnu sem mörkuð var í upphafi aldarinnar þegar aðskilnaður var á milli annars vegar hægfara jafnaðarmanna, þ.e. mensévíka, og hins vegar bolsévíka, kommúnista, en eins og hv. þm. vita er hæstv. félmrh. jafnaðarmaður og telst þar af leiðandi vera hægfara sósíalisti. ( Gripið fram í: Hægfara?) Hægfara, já. (Gripið fram í.) Hins vegar er hæstv. menntmrh. líklega bolsévíki. En við skulum ekki gleyma því að þetta eru greinar af sama meiði nema hæstv. ráðherrar vilji gjörsamlega afneita þessari forsögu sinni. Það væri afskaplega fróðlegt fyrir okkur ef þeir vildu gera það hér í ræðum á eftir. Frv. er í rökréttu framhaldi af stefnu sósíalista um úrlausnir í húsnæðismálum, en þessar úrlausnir eru úreltar í öllum lýðfrjálsum ríkjum vegna þess að þar er treyst á valddreifingu, þar er treyst á að fólkið sjálft geti af eigin rammleik eignast sínar íbúðir og ríkið þurfi þar sem minnst að að koma.
    Það vill svo til að ég var á fundi fyrir nokkrum vikum þar sem staddir voru þingmenn frá Sovétríkjunum. Þeir voru að lýsa fyrir þingmönnum frá
NATO-ríkjunum, sem voru þar mættir, þeim helstu vandamálum sem við er að stríða í Sovétríkjunum og voru að óska eftir samstarfi og viðræðum við þingmenn frá NATO-ríkjunum við framtíðarúrlausn mála. Það vildi svo til að meðal þeirra atriða sem þessir sovésku þingmenn lögðu helst áherslu á og töldu að væru mikilvægust væri að komast úr hinu félagslega húsnæðiskerfi í Sovétríkjunum. Þeir sögðu að íbúðaskortur væri stærsta vandamálið sem þeir ættu við að glíma fyrir utan ákveðinn vöruskort. Þeir töldu að hinar félagslegu lausnir sem þeir trúðu á hefðu gjörsamlega brugðist með hrikalegum afleiðingum fyrir íbúa Sovétríkjanna. Ég vek athygli á þessu hér og nú m.a. vegna þess að það er ekki lausn á íbðavandamálum Íslendinga að þróa upp félagslega kerfið með þeim hætti sem hæstv. félmrh. stefnir að í þessu frv. Ég tek það fram að það eru atriði í frv. sem ég get vel hugsað mér að styðja og stuðla að og er ýmislegt þar til bóta, en meginandi frv. er þess eðlis að ég tel mjög varhugavert að festa það í lög eins og hér liggur fyrir.
    Núv. ríkisstjórn á Íslandi segist starfa á grundvelli jafnréttis og félagshyggju en flestallir Íslendingar gera sér grein fyrir að þetta er auðvitað öfugmæli. Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar er ekki ríkisstjórn jafnréttis. Þetta er ríkisstjórn núlllausna, þetta er ríkisstjórn ákveðins vonleysis og þetta er ríkisstjórn mikillar óvissu. Það er ekki ríkisstjórn jafnréttis sem ræðst á afkomu launafólks með stöðugt hærri sköttum. Það er ekki ríkisstjórn jafnréttis sem

ræðst á eignarstöðu einstaklinga, ekkna og ekkla, sem ræðst á millitekjufólk með stöðugt auknum álögum. Ég minni á hækkaða skattprósentu í staðgreiðslukerfinu og ég vil einnig segja að það er ekki ríkisstjórn jafnréttis sem vill millitekju- og millieignafólki á Íslandi vel sem hækkar stöðugt eignarskatta og önnur opinber gjöld á meðaleignum. Það er ekki jafnrétti gagnvart þegnunum að millifæra fleiri milljarða króna úr sameiginlegum sjóðum landsmanna til ýmissa aðila sem ekki hafa getað rekið fyrirtækin af hagsýni og af hagkvæmni á sama tíma og vel rekin fyrirtæki eru skattpínd og jafnvel ofsótt með dylgjum og svívirðingum af ófrægingarpressu vinstri flokkanna. Það er sem sagt ekki jafnrétti að þrengja stöðugt að stöðu einstaklingsins, skerða stöðugt tekjur hans með stóraukinni skattheimtu eða með setningu laga sem með beinum og óbeinum hætti skylda menn til að afhenda fé sitt opinberum aðilum til ráðstöfunar eða millifærslu. Núverandi ríkisstjórn er ríkisstjórn sósíalisma og ríkisstjórn misréttis.
    Það er nauðsynlegt að rifja þetta upp þótt þess gerist kannski ekki jafnmikil þörf nú, eins og skoðanakannanir sýna, eins og þegar hún hóf göngu sína fyrir tveimur árum. Skoðanakannanir sýna að mikill meiri hluti þjóðarinnar er á móti þessari ríkisstjórn og það vill svo til að skoðanakannanir geta oft verið vísandi og hafa verið það í gegnum árin.
    Þá vil ég, virðulegi forseti, víkja nokkru nánar að frv. og einstökum atriðum þess. Það sem kemur greinilega fram í frv., miðað við gefnar forsendur, er að það á að efla félagslega húsnæðiskerfið og það hlýtur að gerast á kostnað hins almenna. Það hef ég rakið ítarlega fyrr í mínu máli. Það má eiginlega segja að frv. gangi svo langt að gerð sé ákveðin tilraun til að lögskipa ákveðið hlutfall landsmanna inn í þetta kerfi. Ég segi að gerð sé tilraun til, en ég fullyrði ekki um það. Í heild sinni gengur frv. gegn grundvallarstefnu Sjálfstfl. hvað varðar sjálfseign og það má segja að það gangi einnig gegn grundvallarstefnu þess flokks í húsnæðismálum. Þetta er stefna aukinnar miðstýringar og forsjár his opinbera. Hvatinn til sjálfsbjargar er tekinn frá fólki í vissum skilningi og því er beint meira inn á það að vera háð og ósjálfstætt í leiguíbúðum til frambúðar. Það er hörmulegt að svo skuli vera komið fyrir launafólki almennt á Íslandi að hæstv. félmrh. skuli þurfa að viðurkenna það í frumvarpsformi að stefna núverandi ríkisstjórnar hefur keyrt svo niður tekjumöguleika og afkomu fólks að hæstv. ráðherra sér sig tilneyddan til að leggja fram frv. þessa eðlis.
    Ég vildi þess vegna, virðulegi forseti, fá að snúa máli mínu til hæstv. félmrh. og óska eftir að hann geri grein fyrir eftirfarandi atriðum áður en frv. fer til nefndar. Ef hæstv. ráðherra hefur ekki tiltæk gögn eða telur að í fyrirspurnum mínum og óskum sé farið fram á skýringar á of mörgum atriðum hljótum við auðvitað að leita eftir því í nefndarstarfi að þeim verði fullnægt. Ég vil leyfa mér, virðulegi forseti, að leggja áherslu á að frv. verði ekki afgreitt frá hinu háa Alþingi fyrr en ítarleg athugun hefur farið fram á

áhrifum þessarar lagasetningar á möguleika fólks til að eignast íbúðarhúsnæði, á fasteignamarkaðinn og á peningamarkaðinn o.s.frv.
    Þá vildi ég gjarnan óska eftir því við hæstv. félmrh. að hann upplýsti hvort þeir fulltrúar, sem skipaðir voru í þá nefnd sem vann að frv. og eru titlaðir fulltrúar launþegasamtaka og Sambands ísl. sveitarfélaga, hafi unnið þetta verk í umboði þeirra samtaka sem nöfn þeirra eru tengd við og hafi þá væntanlega fyrir fram ákveðið stuðning viðkomandi aðila við frv. eins og virtist koma fram hér hjá hv. þm. Karli Steinari Guðnasyni, varaformanni Verkamannasambands Íslands. Það er mitt mat að sveitarstjórnir séu í vissum skilningi nokkuð grátt leiknar í frv. Á herðar sveitarstjórna eru settar
miklar fjárhagslegar ábyrgðir á sama tíma og ákvörðunarvald í mikilvægum málum er frá þeim tekið.
    Þá er vert að vekja athygli hæstv. ráðherra á því að samkvæmt frv. eru húsnæðisnefndir þannig skipaðar að þær geta í mörgum og ákveðnum tilvikum verið myndaðar af meiri hluta sem er í andstöðu við þann meiri hluta sem er hjá viðkomandi sveitarstjórnum. Þessi möguleiki er fyrir hendi, t.d. ef maður lítur á skipan borgarstjórnar Reykjavíkur. Það er ekki nokkur vafi á því að þessi tilhögun sem kemur fram við skipun húsnæðisnefnda mundi hafa það í för með sér að núverandi meiri hluti borgarstjórnar Reykjavíkur yrði í minni hluta í þeirri húsnæðisnefnd sem snýr að Reykjavíkurborg, sem er í hæsta máta óeðlilegt þegar maður lítur á hinar fjárhagslegu skuldbindingar sem frv. felur í sér gagnvart sveitarstjórnum.
    Þá vildi ég gjarnan heyra skoðun hæstv. ráðherra á því hvort hugsanlegt sé að húsaleiga gæti orðið jafnvel dýrari en afborganir og vextir af íbúðakaupalánum. Hæstv. ráðherra og þeir sem unnu þetta frv. hljóta að hafa kynnt sér þetta mjög ítarlega og það hljóta að liggja fyrir upplýsingar og gögn um það.
    Ég legg sem sagt áherslu á að hæstv. félmrh. greini hér ítarlega frá því hvaða áhrif þessi lagasetning hefur á hina ýmsu þætti sem máli skipta. Væntanlega getur hæstv. ráðherra gert það strax, en alla vega í 2. umr. um frv.
    Þá væri fróðlegt að heyra skoðun hæstv. ráðherra á því hver áhrifin verði fyrir þá einstaklinga og þær fjölskyldur sem eiga kost á fyrirgreiðslu félagslega húsnæðiskerfisins í dag verði frv. að lögum.
    Þá vaknar spurningin hvort þetta kerfi verði víðtækara, ekki aðeins í þeim skilningi sem hér hefur verið fjallað um áður af minni hálfu, að því leyti til hvort það muni leysa vanda fleira fólks en núverandi kerfi sem gerir ráð fyrir hlutfallslega færri félagslegum íbúðum en aftur hlutfallslega fleiri íbúðum í eigin eign. Ég vildi gjarnan heyra skoðun ráðherrans á þessu.
    Þá vaknar einnig spurning í sambandi við ákvæði í frv. um aðstoð við öflun leiguhúsnæðis: Hvaða áhrif hefur það á íbúðamarkaðinn í heild, almennt séð?

    Þá vildi ég gjarnan fá upplýst hver er greiðslubyrði lána í dag frá byggingarsjóðunum og húsbréfakerfinu miðað við ákveðnar sambærilegar staðlaðar íbúðastærðir.
    Fróðlegt væri einnig að fá að vita hvort þeir sem unnu að frv., eða ráðuneytið, hafa kynnt sér hversu há húsaleiga er á hinum ýmsum stöðum úti á landi, bæði á almennum markaði og einnig fyrir félagslegar íbúðir. Þá væri fróðlegt að fá reikningslegan samanburð á raunverulegum húsaleigugreiðslum annars vegar og greiðslu vaxta og afborgana af íbúðakaupalánum (t.d. kaupleiguíbúða) hins vegar.
    Þá vildi ég gjarnan fá að heyra skoðun hæstv. ráðherra á því hvaða áhrif frv. hafi á fjárhag sveitarfélaga, hvort menn hafi nokkuð hugleitt það.
    Og fróðlegt væri enn fremur að heyra skoðun ráðherra á því hvaða áhrif frv. hafi á útgjöld og eiginfjárstöðu Byggingarsjóðs og einnig hugsanleg áhrif frv. á útgjöld ríkissjóðs.
    Ég vil, virðulegi forseti, ekki lengja þessa umræðu mikið með fleiri atriðum að sinni, en hins vegar hlýt ég að undirstrika það sem mína skoðun, og hæstv. ráðherra leiðréttir ef hún er röng, að ég tel að með frv. sé mikil ábyrgð sett á sveitarfélögin, bæði hvað varðar fjárhagslega þætti þess og framkvæmdir. Þess vegna hlýtur það að vera krafa sveitarfélaganna og einnig okkar þingmanna að leitað sé umsagna bæði hjá sveitarfélögunum sem og hjá þeim aðilum sem koma til með að fjalla mikið um þetta. Þar á ég við hin helstu samtök launafólks á vinnumarkaðinum og einnig væri ekki óeðlilegt að þetta frv. fengi umsagnir vinnuveitendasamtaka og annarra aðila sem hér koma við sögu.
    Eins og ég sagði áðan, virðulegi forseti, eru ákveðin atriði í frv. sem eru þess virði að þau séu tekin upp og færð í lög, en því miður verð ég að segja að frv. í heild felur í sér hina neikvæðu stefnu núv. hæstv. ríkisstjórnar, hún hefur gefist upp við það meginmarkmið stjórnmála að gefa fólkinu von um betri tíð. Það er verið að festa í íbúðakerfi þjóðarinnar þá stefnu að Íslendingar verði í æ ríkari mæli að treysta á félagslegar íbúðir.