Halldór Blöndal:
Hæstv. forseti. Það þarf í rauninni ekki að hafa mörg orð um það frv. sem hér liggur fyrir. Það hefur einkennt hæstv. húsnæðisráðherra síðan hann settist í sinn stól að fyrir honum hefur ekki vakað að leysa almennt húsnæðisþörf landsmanna heldur hefur hæstv. ráðherra búið sér til ákveðnar formúlur og þeir menn sem voru utan við kerfið áður eru jafnmikið utan við kerfið í dag og þeir voru þegar hæstv. ráðherra settist í stólinn og raunar miklu meira. Síðast núna fyrir hádegi hringdi í mig maður sem var orðinn gjaldþrota og hefur engin tök á því að halda mjög hóflegri íbúð sem hann hefur fest kaup á. Hann fékk kurteislegt bréf frá Húsnæðisstofnun um að hann rúmaðist ekki innan þessa kerfis nema með því að fara í langa biðröð. Hann er lagtækur og hefði kannski viljað svolítið laga til sjálfur en það er ekki hægt að láta honum í té það lítilræði. Erfiðleikalán eru hvorki fugl né fiskur og sá mikli fjármagnskostnaður sem þetta fólk hefur orðið að búa við er orðinn yfirþyrmandi á mörgum stöðum. Fólk hefur verið að missa heilsuna og hjónaskilnaðir hafa færst í vöxt.
Ef við horfum á fjárlögin og reynum að sjá hvernig hæstv. félmrh. eða húsnæðisráðherra hefur búið að Byggingarsjóði ríkisins sjáum við það að samkvæmt fjárlögum fyrir árið 1989 var gert ráð fyrir því að innstreymi í ríkissjóð yrði 1 milljarður og 50 millj. Eftir að búið var að endurskoða áætlun um sjóðinn er innstreymið á sl. ári dottið niður í 550 millj., mér er ekki kunnugt um hvernig það endaði. Samkvæmt fjárlögum í ár er gert ráð fyrir 150 millj. kr. í Byggingarsjóð ríkisins. Ég held að það sé óhjákvæmilegt að spyrja hæstv. félmrh. hvort það sé að hans tillögum sem fjármagnið til Byggingarsjóðs ríkisins er skorið niður með þessum hætti.
Ég man eftir því þegar hæstv. ráðherra var almennur þingmaður og talaði um það litla fjármagn sem væri varið til Byggingarsjóðs ríkisins og hafði um það
stór orð að forveri hans, hv. þm. Alexander Stefánsson, væri að brjóta niður fjárhag Byggingarsjóðs ríkisins. Hæstv. ráðherra, sem þá var í stjórnarandstöðu harðri, linnti ekki yfirboðum á öllum sviðum húsnæðismála. Það vantaði ekki að þá taldi sá hv. þm. að það væru nógir peningar til í Byggingarsjóð ríkisins. Nú lægur hann sér nægja litlar 150 millj. í Byggingarsjóð ríkisins.
Hvernig er ástandið hjá Byggingarsjóði verkamanna? Á fjárlögum fyrir sl. ár var gert ráð fyrir því að Byggingarsjóður verkamanna fengi 600 millj. kr. úr ríkissjóði. Það var látið óhreyft við endurskoðun en eins og fjárlög liggja nú fyrir er látið sitja við 500 millj. kr. í Byggingarsjóð verkamanna úr ríkissjóði. Nú mundi maður halda, hæstv. forseti, að þessi lækkaða fjárhæð til Byggingarsjóðs verkamanna væri sprottin af því að þessi sjóður væri að taka á sig minni skuldbindingar en áður. Og maður gæti látið sér detta í hug að það frv. sem hér liggur fyrir vissi einmitt að því að hæstv. ráðherra ætlaði sér að styrkja
fjárhag Byggingarsjóðs verkamanna. En ég sé ekki að frv. fylgi neitt yfirlit um fjárframlagið í sjóðinn. Það er engin greinargerð um hvernig hæstv. ráðherra hyggst mæta þeim skuldbindingum sem þessi sjóður verður síðar meir að standa frammi fyrir.
Það stendur í 1. gr. frv., með leyfi hæstv. forseta, að tilgangur laganna sé ,,að stuðla að jafnrétti í húsnæðismálum þannig að fjármunum verði sérstaklega varið til þess að auka möguleika til að eignast eða leigja húsnæði á viðráðanlegum kjörum``.
Stuðla að jafnrétti milli hverra? Það væri fróðlegt að fá um það upplýsingar. Stuðla að jafnrétti einhvers ákveðins hóps sem þessi ákveðni ráðherra sem nú situr í ráðherrastól telur að eigi að fá sitt jafnrétti? Bara þessi hópur. Ekki jafnrétti þegnanna. Sumir eigi að fá meira jafnrétti en aðrir. Og svo eiga sumir að fá fullar hendur fjár á meðan aðrir svelta og fá ekki viðunandi lausn sinna mála þó að lítið fjármagn þurfi. Það verður áreiðanlega mikið verk fyrir þann mann sem næst sest í stól húsnæðisráðherra að hreinsa til. Það verður mikið verk að laga til eftir þennan hæstv. ráðherra.
Og hvernig er þetta hjá öðrum sjóðum sem hæstv. ríkisstjórn sér um? Hvernig er t.d. um Lífeyrissjóð opinberra starfsmanna? Fær hann þá peninga sem um var samið milli verkalýðshreyfingarinnar og ríkisstjórnarinnar á sínum tíma? Nei. Sá lífeyrissjóður er líka sveltur. Það vantar ekki. En það má kannski óska húsnæðisráðherranum til hamingju með að honum skuli hafa tekist að fá pappírinn fram með þessum hætti þannig að hann geti sett einhvers konar rauða kratarós í hnappagatið, bent á einhvern tiltekinn hóp manna og sagt: Þetta hef ég gefið ykkur. Gjafir eru ykkur gefnar. En hinir fá að vera úti á klakanum.
Ég veit ekki hvort á þessu stigi, hæstv. forseti, er ástæða til þess að tala svo mikið meira um þetta mál. Ég geri ráð fyrir því að nefndin sem fær það til meðhöndlunar muni fá skýrslur um hver sé fjárhagsstaða Byggingarsjóðs ríkisins og fjárhagsstaða Byggingarsjóðs verkamanna. Mér er sagt að þessi mál séu nú í athugun hjá hagsýslunni og ég geri ráð fyrir að hæstv. félmrh. muni fagna því jafnmikið og ég þegar dregið verður fram í dagsljósið hvaða skuldbindingar
verið er að binda þessum sjóðum. Og ég geri ráð fyrir því að hæstv. húsnæðisráðherra muni, þegar hann kemst vonandi fljótlega, vonandi sem allra fyrst, strax eftir kosningar a.m.k., í stjórnarandstöðu, þá muni þingmaðurinn hafa meiri metnað fyrir þessa sjóði en hann hefur núna meðan hann er ráðherra.
Það er auðvitað hægt að koma inn á ýmsa aðra þætti þessara mála. Það er auðvitað hægt að rifja upp að hjá Byggðastofnun liggur fyrir skýrsla sem er mannaflaspá um það hvernig búast megi við að íbúaþróun verði úti í hinum dreifðu byggðum í framtíðinni. Það er ekkert leyndarmál að það orð leikur á að ráðherrann muni ætla að nota sér þá skýrslu Byggðastofnunar og þann framreikning sem í þeirri skýrslu kemur til þess að reyna að hafa áhrif á það að félagslegar íbúðir fari ekki í þeim mæli út á
land sem umsóknirnar bera með sér. Má líka segja að það sé hættulegt ef fara á út í þá sálma og út á þá braut að misnota Byggðastofnun með þeim hætti að einstakir ráðherrar geti notað upplýsingar og framtíðarspár þaðan til þess að draga úr framkvæmdum og íbúðarbyggingum á landsbyggðinni, í þeim sveitarfélögum sem standa höllum fæti.
Ég skal svo ekki, herra forseti, á þessu stigi hafa fleiri orð um þetta og veit raunar að sú nefnd sem fær málið til meðferðar mun fara ofan í þessi mál, mun kynna sér hvernig greiðslustreymið er hjá þessum sjóðum. Það mun auðvitað líka koma fram hvernig staðið hefur verið að aðstoð við það fólk sem á í erfiðleikum við að halda húsnæði. Það verður líka farið út í það að athuga hvernig hefur verið brugðist við hjá því fólki sem hefur, svo ég nefni dæmi, kannski ekki getað ráðið við íbúðarkaup innan þess árs sem tilskilið er til þess að umsókn sé gild, hvort þá sé einhver möguleiki til að koma aftur og taka umsóknina upp að nýju eða hvort það fólk sem í þeim erfiðleikum á geti með öðrum hætti notið þeirrar miklu samhjálpar sem húsnæðiskerfið á að vera.
Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri, ítreka aðeins að það verður mikið verk að taka til í félmrn. þegar þessi hæstv. ráðherra hefur kvatt skrifborð sitt þar.