Útvarpslög
Þriðjudaginn 20. mars 1990


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til útvarpslaga. Frv. er að stofni til samið af nefnd sem starfaði undir forustu Ögmundar Jónassonar og skilaði áliti til ráðuneytisins vorið 1989. Ekki vannst tími til þess að ganga að fullu frá frv. þá um vorið og var því fjallað um það sérstaklega, m.a. á fundum með þingmönnum stjórnarflokkanna sl. sumar. Hefur frv. tekið talsverðum breytingum frá upphaflegum drögum með hliðsjón af umsögnum og ábendingum sem hafa borist víða að.
    Ein meginbreytingin í frv. er fólgin í því að ákvæði um fjölmiðlasjóð eru felld niður, en þau voru í upphaflegum drögum að frv., enda hefur verið fjallað um það í ríkisstjórninni að undirbúa frv. um menningar- og fjölmiðlasjóð sem leysi af hólmi gildandi lög um Menningarsjóð og menntamálaráð og Menningarsjóð útvarpsstöðva. Fyrirhugað er í þeirri vinnu að hinn nýi sjóður hafi svipuð verkefni og gert var ráð fyrir í frumvarpsdrögunum um fjölmiðlasjóð eins og þau lágu fyrir sl. vor og voru kynnt hv. alþm.
    Nefnd sú, sem áður er vikið að, var skipuð 10. febr. 1989 og áttu sæti í henni auk Ögmundar Jónassonar, sem gegndi formennsku í nefndinni, Eiður Guðnason alþm., Hörður Vilhjálmsson, fjármálastjóri Ríkisútvarpsins, Erna
Indriðadóttir deildarstjóri, Jón Óttar Ragnarsson sjónvarpsstjóri, Helgi Guðmundsson, fulltrúi í útvarpsréttarnefnd, Magdalena Schram blaðamaður, Þorgeir Ástvaldsson útvarpsstjóri og Arnþrúður Karlsdóttir sem jafnframt var ritari nefndarinnar. Þá störfuðu með nefndinni þau Þórhallur Arason, skrifstofustjóri í fjmrn., og Þórunn J. Hafstein, deildarstjóri í menntmrn. Skilaði nefndin, eins og áður segir, áliti sl. vor eða 17. mars 1989.
    Nefndinni var upphaflega falið að taka tillit til lokaálits útvarpslaganefndar sem var dags. 8. okt. 1988 og barst mér í hendur tveimur vikum eftir að ég tók við starfi menntmrh. Þá var nefndinni einnig falið að taka tillit til þeirrar reynslu sem fengist hafði af nýskipan fjölmiðlamála, þeirri sem núgildandi útvarpslög fela í sér. Þá skal þess enn fremur getið að útvarpslaganefnd sú sem hér var nefnd var skipuð af þáv. menntmrh. Sverri Hermannssyni 9. febr. 1987 og áttu sæti í henni þeir Haraldur Ólafsson dósent, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson lögfræðingur og Knútur Hallsson, ráðuneytisstjóri í menntmrn., sem var jafnframt formaður nefndarinnar.
    Segja má að helstu nýmæli þessa frv. frá gildandi útvarpslögum séu sem hér segir:
    Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir því að útvarpsréttarnefnd, sem er kosin af Alþingi og er allfjölmenn nefnd, verði lögð niður en menntmrh. veiti framvegis leyfi til útvarpsrekstrar. Rökin fyrir þessu eru margþætt, m.a. þau að byggt er á þeirri forsendu að í rauninni þurfi ekki ítarlega nefndarumfjöllun þegar verið er að veita leyfi til útvarpsrekstrar. Að menntmrh. hljóti með öðrum orðum að veita slík leyfi viðstöðulaust þegar beiðnir liggja fyrir. Það eru engar

forsendur lengur fyrir því að fjölmenn nefnd, skipuð fulltrúum stjórnmálaflokka, sé að taka afstöðu um mál af þessu tagi.
    Þá er gert ráð fyrir því að útvarpsnefnd sem er skipuð þremur fulltrúum sem tilnefndir verða af Hæstarétti verði menntmrh. til ráðuneytis og fjalli auk þess um kærur á hendur útvarpsstöð ef einstaklingar eða félög telja misgert við sig í dagskrá. Engin slík ákvæði eru til í gildandi útvarpslögum.
    Í þriðja lagi gerir frv. ráð fyrir því að heimildir til rekstrar einkaútvarpsstöðva miðist ekki við þrönga skilgreiningu á afmörkuðum þjónustusvæðum heldur að þær geti náð til landsins alls.
    Í fjórða lagi er gert ráð fyrir því að þýðingarskyldan verði lögfest og lögð verði áhersla á að efni sérstaklega ætlað börnum og ungmennum verði talsett. Að þessu atriði um þýðingarskylduna mun ég koma nánar síðar.
    Í fimmta lagi er gert ráð fyrir því, eins og áður er vikið að, að Menningarsjóður útvarpsstöðva verði lagður niður í núverandi mynd og að létt verði þeirri kvöð af Ríkisútvarpinu að greiða hluta af rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Farið er fram á það við hv. menntmn. að hún fjalli jafnframt um það í starfi sínu hvort, og þá hvernig, nauðsynlegt sé að breyta lögum um Sinfóníuhljómsveit Íslands til að staðfesta breytingu í þá veru sem þetta frv. gerir ráð fyrir.
    Þá er gert ráð fyrir því í frv. í sjöunda lagi að gerðar verði breytingar á yfirstjórn Ríkisútvarpsins þannig að útvarpsráð fái fyrst og fremst rekstrar- og fjármálalegt eftirlitshlutverk en framkvæmdastjórn fái veigameiri hlut við stjórn stofnunarinnar. Með öðrum orðum, dagskrármálin verða í höndum starfsmannanna, útvarpsráðið fær aukið vægi sem fjármálaleg yfirstjórn, en fjármálaleg einvörðungu. Þá er lagt til, sem er mjög veigamikið atriði, að skipunartími yfirmanna stofnunarinnar verði framvegis til fimm ára í senn. Í ákvæði til bráðabirgða er gert ráð fyrir því að þetta atriði taki einnig til núverandi yfirmanna Ríkisútvarpsins þannig að ráðningartími þeirra miðist við fimm ár í fyrstu lotu frá því að frv. þetta tekur gildi, ef að lögum verður.
    Í níunda lagi er gert ráð fyrir því að áfram verði innheimt afnotagjald af viðtækjum en að hvert heimili greiði þó aldrei nema eitt gjald.
    Í tíunda lagi er gert ráð fyrir því að aðflutningsgjöld renni í ríkissjóð svo sem verið hefur. Aðflutningsgjöldin voru veigamikill tekjustofn Ríkisútvarpsins þar til það var afnumið með ákvæðum lánsfjárlaga aftur og aftur, bæði á þessu ári og undanförnum árum. Með þessari tillögu er gert ráð fyrir því að viðurkenna þá staðreynd um leið og þungum kostnaðarþáttum er létt af Ríkisútvarpinu, eins og þátttöku í rekstri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
    Í ellefta lagi er gert ráð fyrir því að settar verði skýrari reglur um styrk utanaðkomandi aðila við gerð einstakra dagskrárliða. Varðandi auglýsingar sérstaklega er áskilið að þær séu á lýtalausu máli.
    Þessi ellefu meginatriði eru aðalbreytingarnar í

þessu frv. frá því sem er í gildandi útvarpslögum.
    Ég mun víkja næst, virðulegi forseti, að einstökum greinum frv. en síðan fjalla nokkuð um þýðingarskylduna sérstaklega, um innheimtu afnotagjalda, um stöðu aldraðra og greiðslu afnotagjalda þeirra gagnvart Ríkisútvarpinu og um Sinfóníuhljómsveit Íslands sérstaklega. Vík ég nú að einstökum greinum frv.
    Í 1. gr. er gert ráð fyrir því að byggja á sömu skilgreiningu á útvarpi og áður var, þ.e. að útvarp sé hvers kyns dreifing dagskrárefnis í ljósvakamiðlum til almennings. Útvarpshugtakið tekur þó ekki til dreifingar á dagskrárefni sem nær einvörðungu til íbúa eða íbúðar á einni samfelldri lóð. Með þessari skilgreiningu er horfið frá viðmiðun núgildandi útvarpslaga um að útvarp skuli miða við 36 íbúðir eða fleiri innan samfellds svæðis. Að áliti sérfræðinga Póst- og símamálastofnunar er eðlilegra að miða við lóðamörk, enda þótt það hafi í för með sér að í ýmsum tilvikum nái útsending til margra íbúða en í öðrum auðvitað einungis til mjög fárra.
    Í 1. gr. er einnig vísað til fjarskiptalaga og bent á í grg. með frv. að sú tilvísun er einvörðungu byggð á nauðsyn þess að hafa hliðsjón af fjarskiptalögum hvað varðar tæknilega hlið útvarpsrekstrar. Útvarp er sérstök tegund boðmiðlunar sem fellur ekki undir skilgreiningu fjarskiptalaga á fjarskiptum. Þetta hefur þýðingu í sambandi við framkvæmd ákvæða 5. gr. þessa frv. um heimild útvarpsstöðva til að eiga og reka senditæki, endurvarpsstöðvar og nauðsynleg fjarskiptavirki í því sambandi. Í 3. mgr. 1. gr. er svo lagt til að menntmrh. geti ákveðið með reglugerð stærð þeirra loftnetskerfa sem ekki skuli teljast til útvarps þrátt fyrir ákvæði 2. mgr.
    Tækniframfarir á sviði fjölmiðlunar benda til þess að móttaka sjónvarpsefnis sem dreift er um gervihnetti verði sífellt einfaldari og ódýrari. Því má búast við, og raunar er óhætt að fullyrða það úr þessum ræðustól hér og nú, að ómögulegt verði að framfylgja ákvæðum um þýðingarskyldu þegar um viðstöðulausa dreifingu sjónvarpsefnis er að ræða. Það hefur hins vegar verið mín skoðun og á það hef ég lagt áherslu og geri enn í þessari framsöguræðu að það beri að reyna að koma við þýðingarskyldu alls staðar þar sem það er tæknilega framkvæmanlegt. Ég held hins vegar að hv. þingnefnd, sem verður að fjalla sérstaklega um þetta mál, hljóti að verða að gera sér ljóst að í þessum efnum verða ákvæði laganna að vera sveigjanleg því breytingarnar í fjölmiðlunartækni eru svo örar að hætt er við að löggjafinn yrði oft höndum seinni við að aðlaga sig þeim veruleika sem er í tækniheiminum á hverjum tíma. Þess vegna verði lagaákvæðin að vera almenn markmiðsákvæði og sveigjanleg með víðtæka möguleika til að laga veruleika útvarpsins á Íslandi að hinum alþjóðlegu tækniframförum, sem svo eru kallaðar í þessu efni.
    Í 2. gr. frv. er fjallað um útvarpsréttarnefnd sem er lagt til að verði lögð niður og menntmrh. verði falið að veita öðrum aðilum en Ríkisútvarpinu leyfi til útvarpsrekstrar. Ég tel, eins og ég sagði áðan,

virðulegi forseti, að það sé til einföldunar á framkvæmd laganna að menntmrh. taki þannig við hlutverki útvarpsréttarnefndar varðandi leyfisveitingar og er byggt á þeirri forsendu að menntmrh. hljóti alla jafnan að veita slík leyfi viðstöðulaust, eins og segir hér í greinargerð frv. Þá er lagt til í 2. gr. að sérstök nefnd, útvarpsnefnd, verði menntmrh. til ráðuneytis um vafaatriði og ágreiningsmál sem kunna að rísa vegna útsendinga eða starfsemi útvarpsstöðva og mundi útvarpsnefnd fjalla um starfsemi allra útvarpsstöðva og einnig Ríkisútvarpsins.
    Í 3. gr. er nánari skilgreining á því hverjum ráðherra getur veitt leyfi til útvarps og hvaða takmörkunum leyfin eru háð. Í gildandi lögum, eins og þau eru, segir að sveitarfélögum og lögaðilum megi veita leyfi til útvarps á afmörkuðum svæðum. Ég tel rétt að taka af tvímæli um að leyfishafa sé heimilt að útvarpa á fleiri en einu svæði eða til landsins alls og er það sjónarmið tekið upp í frv. Ég tel ekki ástæðu til að binda leyfisveitinguna við þrönga skilgreiningu afmarkaðra svæða eins og gert er í gildandi útvarpslögum og gert var af eðlilegum ástæðum á þeim tíma. Það er rétt að taka það fram í þessum kafla messunnar að margt af því sem lagt er til í þessu frv. er auðvitað fyrst og fremst flutt vegna þess að menn eru að aðlaga sig veruleikanum og taka tillit til þeirrar reynslu sem fengist hefur frá því að hin nýju útvarpslög voru sett.
    Í 1. tölul. 3. gr. er það nýmæli að heimilt er að veita leyfi til að útvarpa til útlanda á öðrum bylgjum en metra- og desimetrabylgjum.
    Í 3. tölul. er kveðið sérstaklega á um þýðingarskyldu á erlendu útvarpsefni eins og verið hefur samkvæmt reglugerð um útvarp samkvæmt tímabundnum leyfum. Ég tel þýðingarmikið að taka eitthvert ákvæði um þýðingarskylduna inn í útvarpslögin. Þá er í þessum tölulið að finna stefnumarkandi ákvæði um talsetningu dagskrárefnis. Ég vil aðeins segja varðandi þessi atriði að núgildandi relgugerð um þýðingarskyldu byggist að sjálfsögðu á gildandi útvarpslögum án þess að þau taki fram að um þýðingarskyldu skuli vera að ræða. Einhverjum kann að finnast að það hafi orkað tvímælis hjá menntmrh. að setja inn í reglugerð slíkt ákvæði sem ekki studdist við bein fyrirmæli laganna. Rökin fyrir reglugerðinni voru hins vegar þau að kveðið er á um það í gildandi útvarpslögum og í þessu frv. að þeim stofnunum sem hafa leyfi til þess að reka útvarp sé skylt að virða í hvívetna meginreglur íslensks máls og á grundvelli þeirra voru sett inn ákvæðin um þýðingarskylduna. Ég tel hins vegar að til þess að ákvæðin um þýðingarskyldu haldi þurfi að vera ákvæði um þau í lögum, að reglugerð sé í raum og veru of tæp í þessu efni. Ég tel það að a.m.k. æskilegt að hv. Alþingi fjalli um það hversu langt menn treysti sér til að ganga varðandi það að ákveða þýðingarskyldu.
    6. tölul. 3. gr. svarar til 5. tölul. núgildandi útvarpslaga að öðru leyti en því að nú er einnig skírskotað til jafnréttislaga og höfundalaga auk þess sem þessi grein tekur til allra útvarpsstöðva en ekki

aðeins einkastöðva.
    Í 9. tölul. sem svarar til 8. tölul. núgildandi laga er tekið upp ákvæðið um að útvarpsleyfi verði ekki framseld.
    Ég vil í sambandi við þýðingarskylduna aðeins koma að henni aftur og víkja að því meðan ég man, virðulegi forseti, að í grannlöndum okkar og í Vestur-Evrópulöndum hefur verið fjallað mjög um það hvernig hægt sé að verja þjóðtungur viðkomandi ríkja fyrir erlendum tungum sem flæða til þjóðanna í gegnum fjölmiðlana. Í Frakklandi og Belgíu og Vestur-Þýskalandi reyndar líka hafa verið settar reglur um hámark erlends efnis í útvarps- og sjónvarpsstöðvum ef þær vilja fá endurnýjuð leyfi. Ég hef fyrir nokkrum mánuðum skrifað öllum útvarps- og sjónvarpsstöðvum sem hafa leyfi hér á landi. Í gær var haldinn fundur með fulltrúum þessara stöðva þar sem spurt var: Hver er menningarstefna ykkar? Hvaða stefnu viljið þið hafa í menningarmálum? Ríkisútvarpið og fleiri stöðvar gerðu skilmerkilega grein fyrir þessu í bréfum sem ráðuneytinu bárust og ég tel ástæðu til að þakka hér úr þessum ræðustóli sérstaklega Ríkisútvarpinu fyrir það hvernig það brást við í þessu efni. En í umræðum á milli stöðvanna sem ráðuneytið mun beita sér fyrir á næstu vikum og mánuðum munum við m.a. leggja fyrir þá spurningu hvort menn hér á landi eru tilbúnir til að sameinast um reglu um hámark erlends efnis eða lágmark innlends efnis í viðkomandi útvarps- og sjónvarpsstöðvum.
    Í 4. gr. frv. er kveðið á um það með hvaða hætti útvarpsstöðvum er heimilt að afla tekna og er greinin efnislega óbreytt frá því sem verið hefur að því frátöldu að ekki er lengur áskilið að gjaldskrár útvarpsstöðva verði lagðar fram til samþykktar. Í frvgr. eru tekin af öll tvímæli um það hvaða grundvallarreglur skuli gilda um styrkveitingu utanaðkomandi aðila til dagskrárgerðar. Hér er komið að svokallaðri kostun. Heimild til styrkveitingar er nú bundin við menningar-, fræðslu- og íþróttaefni og það er áskilið að styrkveitandi greiði allan kostnað við framleiðslu og gerð efnisins. Áréttað er að utanaðkomandi aðilar geti ekki styrkt gerð frétta- og dægurmálaefnis og óheimilt er að kostunaraðilar hafi áhrif á gerð dagskrárefnis. Þetta er eitt af þeim flóknu og viðkvæmu atriðum sem erfitt er að taka á í lagatexta, en það er óhjákvæmilegt að Alþingi komi sér saman um meginlínu í þessu efni.
    Í þessari grein er það sett inn sem nýmæli, sem er ekki í gildandi lögum, að allar auglýsingar skuli vera á lýtalausu íslensku máli og gildir það jafnt um söngtexta, talað mál eða ritaðan texta. Þá vil ég sérstaklega vekja athygli á þeirri málsgrein 4. gr. sem gerir ráð fyrir að kveða á um samkomulag Ríkisútvarpsins og útvarpsstöðva um fyrirkomulag stjórnmálaauglýsinga sem miðist við að setja slíkum auglýsingum skorður. Menn geta velt því fyrir sér hvort unnt væri hér á Alþingi að ná samkomulagi um skýrari takmörkunarreglu en gert er ráð fyrir í þessu frv. Út af fyrir sig hef ég ekkert á móti því nema

síður sé að hv. nefnd leiti að einhverri slíkri reglu. Ég hygg þó að allar takmörkunar- og haftareglur í þessum efnum séu dæmdar til að mistakast ef þær eru ekki gerðar í sæmilegu samstarfi og samvinnu við handhafa útvarps- og sjónvarpsleyfa.
    Í 5. málsgr. 4. gr. er nýmæli. Með þeirri málsgr. er leitast við að tryggja stöðu útvarpsstöðva gegn notkun svokallaðra sjóræningjamyndlykla. Og í 29. gr. er heimilað að gera slíka myndlykla upptæka. Það þykir sérstök ástæða og óhjákvæmilegt að setja í lög ákvæði af þessu tagi þar sem notkun ólöglegra myndlykla hefur færst í vöxt hér á landi.
    Ég tel ekki ástæðu til að víkja í einstökum atriðum að 5., 6. og 7. gr. en kem næst að 8. gr. sem er í öllum meginatriðum samhljóða 15. gr. núgildandi
laga og skýrir sig sjálf. En meiri áhersla er þó lögð hér á gerð innlends efnis og einnig að leitast skuli við að efla skilning á framandi menningarstraumum.
    Í 9. gr. frv. segir að stefnt skuli að því að koma upp aðstöðu til dagskrárgerðar og hljóðvarps í einstökum landshlutum í stað allra kjördæma eins og það er í gildandi lögum.
    Þá er gert ráð fyrir því að Ríkisútvarpið starfræki kennsluútvarp í samvinnu við fræðsluyfirvöld sem er mjög mikilvægt ákvæði. Tilraun
til þess að koma á fjarkennslu hefur verið í gangi hér á landi með skipulegum og myndarlegum hætti. Sú tilraun hefur til þessa ekki tekist sem skyldi og ég held að óhjákvæmilegt sé, ef á að koma skipulegri fjarkennslu á, að Ríkisútvarpið hafi þar beinar lagaskyldur.
    Þá tel ég næst, virðulegi forseti, rétt að víkja að 12. gr. frv. Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á rekstri Ríkisútvarpsins. Í þessari lagagrein er skipan hennar og valdsvið skilgreint. Fulltrúi útvarpsráðs á sæti í framkvæmdastjórn með málfrelsi og tillögurétti til að sinna fjármálalegu eftirlitshlutverki útvarpsráðs. Í greininni er gerð um það tillaga að áhrif starfsmanna í stjórn stofnunarinnar verði efld til þess að stuðla að lýðræðislegum vinnubrögðum, fagmennsku og ábyrgð. Ég tel að þessi ákvæði um aðild starfsmanna Ríkisútvarpsins að stjórn stofnunarinnar séu mjög mikilvæg.
    Þá vil ég víkja að 14. gr. sem ég nefndi fyrr. Þar er sú grundvallarbreyting gerð að útvarpsstjóri, framkvæmdastjórar og deildarstjórar verða allir ráðnir tímabundinni ráðningu en ekki æviráðnir eins og er skv. gildandi lögum.
    Þá tel ég sérstaka ástæðu til þess að víkja næst að III. kafla frv. sem fjallar um tekjur útvarpsins. Ég bendi á að Ríkisútvarpið hefur lengst af haft tolltekjur af viðtækjum og ýmsum búnaði sem tilheyrir móttöku útvarpsefnis. Í núgildandi lögum eru ákvæði þar sem segir að Ríkisútvarpið skuli hafa tekjur af aðflutningsgjöldum af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum. Telja verður að ákvæði af þessu tagi hafi verið eðlilegt áður en einkaréttur ríkisins til útvarpsrekstrar var afnuminn. Kaupendur tækja voru þá um leið orðnir viðskiptavinir Ríkisútvarpsins og ekki annarra innlendra aðila. Einnig þótti eðlilegt að notendur

greiddu með þessum hætti kostnað af uppbyggingu dreifikerfis í landinu. Nú er hins vegar orðin sú breyting að notendur viðtækja eru einnig viðskiptavinir annarra stöðva. Þá vaknar sú spurning hvort eðlilegt sé að Ríkisútvarpið njóti þessara tekna umfram aðrar útvarpsstöðvar. Hins vegar er ljóst að Ríkisútvarpið er með þeirri till. sem hér liggur fyrir í frv. svipt veigamiklum tekjustofni sem átti m.a. að nota til sérstakra fjárfestinga svo sem dreifikerfis, útvarpshúss og langbylgjustöðvar. Breytingin á lagagreininni frá gildandi lögum felst í því að nú eru Ríkisútvarpinu ætlaðir tveir megintekjustofnar, þ.e. afnotagjald og gjald fyrir auglýsingar. Á móti því að aðflutningsgjöldin eru felld niður er gert ráð fyrir því að létta þeirri kvöð af Ríkisútvarpinu að greiða hluta í rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
    Innheimtudeild Ríkisútvarpsins hefur, eins og kunnugt er, séð um innheimtu útvarpsgjalds. Innheimtuárangur deildarinnar er sambærilegur við það sem gerist hjá ríki og sveitarfélögum yfirleitt. Og í frvgr. er ekki gert ráð fyrir að leggja innheimtudeildina niður en sett inn ákvæði sem heimila stofnuninni og ráðherra að fela innheimtumönnum ríkis og sveitarfélaga verkefnið.
    Ég tel ekki ástæðu til þess, virðulegur forseti, að víkja sérstaklega að 26. og 27. gr. að öðru leyti en því að nú er í greinunum kveðið á um aðild útvarpsnefndar að samstarfi Ríkisútvarpsins og Póst- og símamálastofnunar um dreifikerfi um landið. Rétt er að bæta því við að þessa dagana er verið að ganga frá skipun samstarfsnefndar Ríkisútvarpsins, Póst- og símamálastofnunar, menntmrn. og samgrn. sem á að gera áætlun um dreifikerfi Ríkisútvarpsins og eflingu þess á komandi árum.
    Í 28. gr. er gerð tillaga um að samræma hana 1. gr. varðandi þá heimild menntmrh., skv. 3. málsgr. 1. gr., að undanskilja rekstur loftnetskerfa ákvæðum laganna.
    29. gr. er efnislega óbreytt frá gildandi lögum en áréttað er að ef um útvarpsrekstur er að ræða skv. 1. gr. þá feli það m.a. í sér skyldu til þýðingar á erlendu sjónvarpsefni.
    30. gr. var áður 17. gr. núgildandi laga og hún tók þá aðeins til Ríkisútvarpsins. Þetta er sú grein sem fjallar um skyldur útvarpsstöðva til að varðveita efni. Hér er lagt til að varðveisluskyldan nái til allra útvarpsstöðva og jafnframt er við það miðað að útvarpsstöðvum sé ekki skylt að varðveita annað efni en það sem hefur menningarlegt gildi og fræðslugildi. Varðveisluskylda er stytt úr 18 mánuðum í 12 til samræmis við málsóknarrétt á grundvelli 32. gr. frv.
    Sú breyting er gerð skv. 31. gr. frv. að skilgreining á ábyrgðaraðilum breytist. Talið er rétt að umsjónarmenn samsettra þátta séu ábyrgir fyrir þeim innan vissra marka fremur en stjórnandi útsendingar eins og segir í gildandi
lögum. Þá er ábyrgð á öðru útsendu efni færð til samræmis við aðrar breytingar frv. Einnig er talið rétt að skýra betur ábyrgð þula sem hafa atvinnu af því að lesa efni annarra.

    Efni 33. gr. var áður í 16. gr. gildandi laga og átti þá aðeins við um Ríkisútvarpið. Nú þykir hins vegar nauðsynlegt að veita öðrum stöðvum einnig slíka heimild. Í greininni er heimilað að útvarpsstöðvar veiti upplýsingaþjónustu, TELETEKST, í gegnum tæki og dreifikerfi án þess að um dagskrárgerð eða auglýsingagerð sé að ræða.
    Ég hef þá farið yfir meginatriðin í breytingum samkvæmt þessu frv. og sömuleiðis þau grundvallaratriði sem frv. byggir á. Ég vil taka fram að við undirbúning málsins var fjallað um ýmsa aðra þætti sem rétt er að fara nokkrum orðum um.
    Í fyrsta lagi, virðulegur forseti, eru afnotagjöldin. Rætt var um það hvernig sé hægt að tryggja betri innheimtu afnotagjalda. Afnotagjöld hafa ekki skilað sér nægilega vel þó þau hafi út af fyrir sig ekki skilað sér verr en ýmis önnur opinber gjöld. Og árangur innheimtudeildarinnar hefur oft og tíðum verið góður. En menn ræddu um það hvort hægt væri að finna einhverja aðra leið en afnotagjöldin til að tryggja tekjur Ríkisútvarpsins. Ein leiðin gæti verið sú að leggja á svokallaðan nefskatt vegna Ríkisútvarpsins. Rökin fyrir honum eru náttúrlega þau að Ríkisútvarpið hefur lýðræðislegar og menningarlegar skyldur og er líka öryggisstofnun. Rökin á móti nefskatti eru alkunn, þau að ef slíkur skattur er innheimtur þá er hann innheimtur í gegnum hinar almennu stofnanir ríkis og sveitarfélaga og það er auðvitað afar hætt við því að slíkur skattur yrði á þrengingartímum notaður í eitthvað annað en að halda uppi starfsemi Ríkisútvarpsins.
    Önnur leið sem rædd var er að leggja afnotagjöld á eigendur fasteigna, atvinnutækja, skipa, íbúða. Við ræddum það mjög ítarlega og fengum um það upplýsingar, m.a. frá Fasteignamatinu og fleiri aðilum, að það væri út af fyrir sig framkvæmanlegt. Þó taldi ég eftir mjög vandlega yfirferð og eftir að fram kom að mönnum auðnaðist prýðilega að gera það fyrirkomulag tortryggilegt í umræðum um málið, án þess að hafa kannski sett sig nægilega vel inn í það, skynsamlegt að halda sig við afnotagjaldskerfið og reyna að bæta það. Gerð er tillaga um það í frv. að framvegis verði aðeins innheimt eitt afnotagjald af heimili.
    Á árinu 1989 náði innheimtudeildin að innheimta 88,2% af afnotagjöldum Ríkisútvarpsins sem er í raun og veru mjög gott hlutfall. Á árinu 1988 var þetta hlutfall 86,3% og á árunum frá 1982 hefur þetta hlutfall yfirleitt verið á bilinu 82--88%. Langlægst var hlutfallið 1984 eða 82,6%. Innheimt afnotagjöld á árinu 1989 voru 1 milljarður 46 millj. kr. og útistandandi um síðustu áramót voru 140 millj. kr. Alls voru útistandandi um áramótin 1988--1989 um 210 millj. kr. og hlutfallið árlega var svipað og það sem ég var að rekja 82, 83, 85, 88% eða svo. Ég held með öðrum orðum að það sé í sjálfu sér unnt að halda utan um þetta innheimtukerfi og tryggja þannig megintekjustofn Ríkisútvarpsins. Þess vegna er lagt til að því verði haldið óbreyttu.
    Annar þáttur þessa máls sem hefur komið til

umræðu og tengist í raun og veru afnotagjöldunum eru afnotagjöld þau sem ríkið hefur greitt fyrir aldraða og öryrkja, einstaklinga sem hafa fulla tekjutryggingu. Hér var um að ræða ákvörðun sem um nokkurt skeið lá á Ríkisútvarpinu og Ríkisútvarpinu var ætlað að standa undir. Með ákvörðun sem Ríkisútvarpið tók í nóvember--desember 1988 var ákveðið að létta þessum kostnaði af Ríkisútvarpinu og verður hann framvegis borinn af Tryggingastofnun og ríkissjóði beint, enda er eðlilegt að svo verði.
    Ég vil þá víkja einnig að öðru máli, virðulegi forseti, sem þarfnast frekari umfjöllunar. Það eru málefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Samkvæmt núgildandi útvarpslögum er það þannig að Ríkisútvarpið á að bera tiltekinn hluta af rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitarinnar og þessi hluti hefur verið borinn uppi af hluta útvarpsins í Menningarsjóði útvarpsstöðva. Þetta kerfi hefur reynst flókið og erfitt fyrir Ríkisútvarpið, fyrir Menningarsjóðinn og fyrir Sinfóníuhljómveitina. Hér er gert ráð fyrir því að strika þetta kerfi alveg út. En með þessu móti er ég, virðulegi forseti, ekki að leggja til að tengsl Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Ríkisútvarpsins verði rofin. Ég held að þau eigi ekki að rjúfa. Ég held að það fyrirkomulag sem verið hefur eigi að halda áfram, t.d. að Ríkisútvarpið eigi mann í stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands eins og er nú samkvæmt gildandi lögum um Sinfóníuhljómsveitina. Þess vegna sýnist mér í sjálfu sér ekki mikil þörf á því að gera verulegar breytingar á lögunum um Sinfóníuhljómsveitina, en það er óhjákvæmilegt að hv. menntmn. fjalli einnig sérstaklega um það mál þegar það kemur til meðferðar í hv. nefnd.
    Við undirbúning þessa máls velti ég því talsvert fyrir mér hvort rétt væri að leggja útvarpsráð niður í núverandi mynd. Ég taldi að rök væru fyrir því að leggja útvarpsráð niður, rök væru fyrir því að flokkarnir væru ekki með fingurna í daglegum rekstri Ríkisútvarpsins. Og ég er sannfærður um að það mun
verða svo áður en langur tími líður að menn sjá að slík aðild stjórnmálaflokka að yfirstjórn Ríkisútvarpsins getur m.a. þrengt samkeppnissvigrúm Ríkisútvarpsins. Það er auðvitað eðlilegur hlutur að hugmyndir af þessu tagi séu ekki samþykktar athugunarlaust. Það er eðlilegt að menn telji að skoða þurfi málið betur í ljósi reynslunnar. Og það er eðlilegt að menn leggi á þetta áherslu núna sérstaklega þegar við höfum búið við ný útvarpslög um nokkurt skeið og höfum verið að aðlaga okkur að nýjum veruleika í útvarpsmálum. Þess vegna höfum við tekið þá ákvörðun að halda okkur við útvarpsráð eins og það hefur verið að öðru leyti en því að lögð er megináhersla á að útvarpsráð hafi fjármálalega og rekstrarlega ábyrgð en ekki dagskrárábyrgð, takmarkaðri dagskrárábyrgð en verið hefur. Þetta tel ég að skipti í raun ákaflega miklu máli.
    Annað atriði sem ég ætlaði að nefna úr umræðu undanfarinna mánaða snertir starfsmenn Ríkisútvarpsins. Ég tel í rauninni mjög mikilvægt að þeir geti haft áhrif á rekstur stofnunarinnar frá degi til

dags. Ég er ekki að segja að þjóðin eigi að gefa þeim Ríkisútvarpið. Ég er að segja að eðlilegra sé að þeir eigi möguleika á að hafa þarna áhrif en ýmsir aðrir. Og þegar um það hefur verið tekin ákvörðun að yfirmenn stofnunarinnar séu aðeins ráðnir til fimm ára í senn en ekki æviráðnir eins og verið hefur, þá er alveg augljóst að sköpuð hefur verið forsenda fyrir sveigjanleika í starfsemi Ríkisútvarpsins sem á að koma í veg fyrir að stofnunin verði einokuð af mönnum sem eru ráðnir þar til starfa að eilífu amen og aldrei er hægt að hrófla við. Ég held þess vegna að það að starfsmennirnir geti komið þarna við sögu sé af hinu góða og þess vegna er hér lagt til að starfsmenn Ríkisútvarpsins eigi áheyrnarrétt í framkvæmdastjórninni og eigi þar aðild, eins og fram kemur í 12. gr. frv.
    Einnig geta menn auðvitað velt því fyrir sér, virðulegi forseti, hvort stofnun af þessu tagi eigi að fá allt annan lagagrunn en hér er gerð tillaga um. Í grannlöndum okkar hefur mótast hefð sem byggð er á áratuga gömlum lögum um sjálfseignarstofnanir. Hér á landi er ekki til nein heildarlöggjöf um sjálfseignarstofnanir þó unnið hafi verið að henni að ég hygg um nokkurra ára skeið. Það er mjög mikilvægt að taka fram í þessu sambandi, vegna þess að auðvitað gæti mönnum dottið í hug að Ríkisútvarpið yrði sjálfseignarstofnun, stofnun sem væri sjálfstæð, til þess einmitt að geta keppt að því að henni verði varpað út í hringiðu markaðarins um leið og hún hefur skyldur gagnvart þjóðinni almennt eins og ég sagði, bæði menningarlegar og félagslegar og að því er varðar öryggið. Ég hef kynnt mér það nokkuð rækilega að fyrir 2--3 árum voru sett lög í Noregi sem gerðu ráð fyrir því að norska ríkisútvarpið væri sjálfseignarstofnun. Þau lög hafa í raun og veru gefist vel. Það er mjög athyglisvert að sjá hvernig menn hafa þróað hlutina þar á undanförnum árum og mjög fróðlegt að fylgjast með því.
    Þegar lögin um útvarp voru sett á Alþingi fyrir nokkrum árum urðu um þau mjög harðar deilur. Þær deilur stöfuðu í grundvallaratriðum ekki af því að menn teldu að viðhalda ætti einkarétti Ríkisútvarpsins á öldum ljósvakans. Ég tel að í grundvallaratriðum hafi ekki verið um það deilt að það hlaut að fara svo að þessum einkarétti yrði aflétt, fyrst og fremst af tæknilegum ástæðum. Auðvitað voru margir þeirrar skoðunar að þetta hefði átt að gerast fyrir löngu, m.a. af ýmsum öðrum hugmyndafræðilegum ástæðum, hugsjónalegum ástæðum eða jafnvel efnahagslegum ástæðum. En það var alveg ljóst að þegar útvarpslögin voru sett á sínum tíma hafði tæknin sjálf kallað þann tíma í garð að það var alger fjarstæða að gera tilraun til þess að halda þessum rétti hjá ríkinu einu, alger fjarstæða. Og auðvitað liggur það mál eins í dag. Það er alger fjarstæða að tala um neitt slíkt. Það er líka nauðsynlegt að leggja á það áherslu að þessi tími, varðandi sviptingar í fjölmiðlaheimi, er ekki liðinn. Það gerast stórkostlegar breytingar í þessum efnum á hverjum einasta degi. Þess vegna þarf löggjöf um þessi mál að vera sveigjanleg þannig að hún verði

ekki óðara að steintrölli einhvers staðar langt á eftir veruleikanum sem geti í raun og veru ekki tekist á við aðstæðurnar eins og þær breytast á hverjum tíma.
    Ég á ekki von á því, virðulegi forseti, að við þessar umræður hér á hv. Alþingi hefjist deilur um það hvort ríkið eigi að hafa þetta á sinni könnu eitt eða ekki. Ég geri fyrst og fremst ráð fyrir því að menn muni velta því fyrir sér hvernig sé hægt að búa útvarpslög þannig úr garði að þau þjóni hinum sameiginlegu, almennu menningarmarkmiðum Íslendinga. Ég hygg að um það séu allir sammála að þar hefur Ríkisútvarpið meginskyldur, bæði að því er varðar útvarp og sjónvarp. Það er brýnasta skylda Ríkisútvarpsins að hjálpa til við það að treysta undirstöður íslenskrar menningar. Það er meginatriði og þær takmarkanir sem við kunnum að setja í útvarpslög byggjast á því meginatriði og
í rauninni ekki öðru. Ég hygg þess vegna að að því er grunnhugmyndafræði varðar sé víðtæk samstaða um þessi mál á Alþingi núna og ég vænti þess að okkur auðnist að eiga málefnalega umræðu um þetta frv. hér á hv. Alþingi þannig að það takist að ljúka því með eðlilegum hætti núna á þessu þingi.
    Virðulegi forseti. Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. menntmn.