Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Hv. 1. þm. Suðurl. beindi þeirri spurningu til mín hvort ég væri þeirrar skoðunar að heppilegra væri að fjmrh. tilnefndi einn fulltrúa til að meta ábyrgðirnar eða hvort aðrir ráðherrar gerðu það einnig. Mín afstaða er alveg skýr. Ég tel heppilegra að fjmrh. geri þetta einn og það sé ekki haldið inn á þá braut að fulltrúar annarra ráðuneyta komi að mati og ákvörðunum á ríkisábyrgðum. M.a. vegna þess fordæmis sem það kann að skapa í framtíðinni. Ríkisábyrgðir eru mjög viðkvæmt mál. Það er mjög þrýst á um þær og sá siður sem yrði í reynd, ef það yrði upp tekið að fulltrúar einstakra atvinnugreina kæmu að því einnig, mundi hugsanlega leiða til þess að þeir færu að telja að þeir ættu að gæta einhverra annarra hagsmuna en hagsmuna ríkissjóðs í þessu mati. Ég hef þess vegna frá upphafi haldið mér við það sjónarmið að hin æskilega skipan væri sú að fulltrúar fjmrn. væru hér eftir sem hingað til þeir einu sem mætu ríkisábyrgðir formlega gagnvart einstökum fyrirtækjum. Mér er ekki kunnugt um að nokkurt fordæmi sé til um að aðrir en fulltrúar fjmrn. framkvæmi það mat. Þetta er mín afstaða, hefur verið og er, án þess að ég ætli að fara að gera það að stóru deilumáli hér í þingsölum.