Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
    Virðulegi forseti. Samkvæmt lögum nr. 7/1975 hafa alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó frá 1972 og 1981 lagagildi hér á landi en árið 1987 voru gerðar breytingar á reglunum. Með frv. þessu er lagt til að lögum nr. 7/1975 verði breytt til þess að breytingarnar fái lagagildi. Enn fremur er texti 26. reglu svokallaðrar samkvæmt b-lið leiðréttur.
    Ég leyfi mér að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og allshn.