Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
    Herra forseti. Samkvæmt lögum nr. 94/1980 hefur Norðurlandasamningur frá 1981 um gagnkvæma aðstoð í tollamálum lagagildi hér á landi. Á sl. ári var samningnum breytt til þess að ákvæði hans næðu til Færeyja. Með frv. þessu er lagt til að lögum nr. 94/1980 verði breytt til þess að taka mið af hinu nýja gildissviði samningsins.
    Ég leyfi mér að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.