Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Frv. til laga um samþykkt á ríkisreikningi fyrir árið 1988 er samið eftir þeim ríkisreikningi sem lagður var fyrir Alþingi með bréfi fjmrh. til forseta Sþ. í október 1989. Það er í sjálfu sér óþarfi að hafa hér mörg orð um þetta frv. Ég vísa til þeirrar endurskoðunarskýrslu yfirskoðunarmanna ríkisreikningsins sem hv. alþm. er kunnug og enn fremur í því sambandi vinnu Ríkisendurskoðunar að endurskoðun þessa ríkisreiknings og skýrslu um það fyrir þetta sama ár.
Jafnframt vil ég vísa til skýrslu fjmrh. frá 14. apríl 1989 um ríkisfjármál og framkvæmd lánsfjáráætlunar 1988 og greinargerðar með frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1988 og þeirrar framsöguræðu sem ég hafði í Sþ. fyrir því frv.
Eins og menn þekkja er nauðsynlegt samkvæmt þingsköpum að fjalla um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1988 í Sþ. en frv. til laga um samþykkt á ríkisreikningi í deildum þingsins. Hv. fjvn. vinnur nú að því að fara yfir frv. um fjáraukalög fyrir árið 1988 og er rétt að hv. fjh.- og viðskn., sem ég mælist til að fjalli um þetta frv. að lokinni 1. umr., hafi hliðsjón af þeirri vinnu fjvn.
Ég tel, virðulegi forseti, óþarfi að hafa fleiri orð um þetta frv. hér en eðlilegra að einstök efnisumræða, ef hv. þingdeildarmenn kjósa, fari fram við 2. umr.