Brottfall laga og lagaákvæða
Þriðjudaginn 20. mars 1990


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Herra forseti. Hinn 22. maí 1984 var samþykkt í Sþ. till. til þál. um lagahreinsun og samræmingu gildandi laga. Þann 20. júní 1985 var síðan kosin níu manna nefnd er skyldi vera til ráðuneytis um framkvæmd þeirra verkefna sem þál. fjallaði um og er nokkuð sundurliðað í þáltill. en heildarverkefnið er, eins og ég sagði fyrr, samræming og úrfelling úreltra laga.
    Í nefnd þessa voru kosnir dr. Ármann Snævarr, fyrrv. hæstaréttardómari, Gils Guðmundsson, fyrrv. alþm., Haraldur Blöndal hæstaréttarlögmaður, Hreinn Pálsson lögfræðingur, Margrét Rún Guðmundsdóttir blaðamaður, Már Pétursson héraðsdómari, bæjarfógeti og sýslumaður, Sigurður Líndal prófessor, Snædís Gunnlaugsdóttir dómarafulltrúi og Svala Thorlacius hæstaréttarlögmaður.
    Margrét Rún Guðmundsdóttir hefur vegna fjarvista ekki tekið þátt í störfum nefndarinnar. Ármann Snævarr hefur gegnt störfum formanns nefndarinnar. Starf nefndarinnar hefur nú staðið í 4 1 / 2 ár og lauk því starfi með samningu þess frv. sem ég mæli hér fyrir.
    Eftir að frv. barst forsrn. hef ég óskað eftir umsögnum allra ráðuneyta á þeim breytingum sem frv. gerir ráð fyrir á lögum og ýmsar umsagnir hafa borist. Þær hafa allar verið lagðar fyrir formann nefndarinnar og skoðaðar vandlega og ég tel að frv. sé nú þannig úr garði gert að ekki verði betur gert
af hálfu nefndarinnar og forsrn. og tímabært að það verði skoðað hér á hinu háa Alþingi.
    Ég vil geta þess að formaður nefndarinnar lét mér í té minnisblað um ýmis atriði sem hann taldi að þyrftu að skoðast nokkuð nánar og það er rétt að ég hlaupi aðeins yfir það. Í fyrsta lagi segir formaður nefndarinnar að frv. til laga um brottfall laga og lagaákvæða sé þannig unnið að samráð hafi verið höfð við ráðuneyti og ýmsar opinberar stofnanir um efni frv. Drög voru send þessum aðilum og farið mjög eftir ábendingum þeirra. Í mjög mörgum tilvikum var haft að nýju samband við þessa aðila eftir að nýtt frv. var samið á grundvelli ábendinga og samráða. Greiðlega ætti því að ganga að fá umsögn ráðuneyta um efni frv. nú, segir formaður, og það reyndist svo eftir að við sendum það út enn einu sinni til umsagnar.
    Í öðru lagi er lagt til að forsrn. skipi sérfræðinganefnd til að endurskoða lög um efnahagsmál því að í ljós kom að þarna þarf töluverða sérfræðiþekkingu og nefndin taldi sér ekki fært að taka það verkefni að sér.
    Í þriðja lagi. Um reglugerðir og aðrar stjórnvaldsreglur og hreinsun á þeim er lagt til að menn færi sér í nyt reynslu Norðmanna er hreinsuðu til á þessu sviði fyrir nokkrum árum með ágætum árangri. Megintillaga lagahreinsunarnefndar er sú að forsrh. leggi fyrir öll ráðuneyti og nokkrar opinberar stofnanir að kanna hver fyrir sínu landi hver stjórnvaldsfyrirmæli séu í gildi með það fyrir augum að hreinsa duglega til. Þetta yrði samstarfsverkefni

milli ráðuneyta. Nauðsynlegt er að ráða verkefnisstjóra er skipulegði starfið og samræmdi vinnubrögð m.a. með tölvutækni. Þörf er á að forsrh. setji ráðuneytum og fleirum ákveðin tímamörk sem raunsæ mega teljast til að vinna þetta verk. Formaður nefndarinnar, Ármann Snævarr, leggur áherslu á að þetta sé mikið nauðsynjaverk og á því er ekki nokkur vafi. Og ég hef fullan hug á því að gera þetta en tel að það komist varla á fullan skrið fyrr en frv. sem hér er mælt fyrir hefur hlotið afgreiðslu á Alþingi, þarf að vera framhaldsverk.
    Í fjórða lagi er vakin athygli á því að nauðsynlegt er að koma á miðlun fræðslu um réttarreglur.
    Í fimmta lagi er bent á þörfina fyrir það að koma á fót lagastofnun, einkum í þágu lagasetningar og samningar stjórnvaldsreglna, sennilega í tengslum við dómsmrn.
    Í framhaldi af meðferð þessa frv. í forsrn. og með tilvísun til ábendinga formanns nefndarinnar ritaði ég dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 22. febr. sl., rakti þar efni þeirrar þál. sem samþykkt var hér á hinu háa Alþingi 22. maí 1984 og störf nefndarinnar, sendi með þetta minnisblað og fól dóms- og kirkjumálaráðuneytinu að taka til umfjöllunar og frekari meðferðar þá þætti sem getið er um í þessu minnisblaði sem ég hef nú rakið og snerta reglugerðahreinsun, framtíðarskipun á útgáfu laga og reglugerða og upplýsingamiðlun um réttarreglur í framtíðinni. Ég tel rétt að dóms- og kirkjumálaráðuneytið sinni þessum verkefnum. Hins vegar hef ég ákveðið að skipa sérstaka nefnd sérfræðinga til að fara yfir lög um efnahagsmál sem um mjög margt eru orðin úrelt og satt að segja sundurtætt, ef ég má orða það svo, og geri ráð fyrir því að þeirri endurskoðun verði lokið fyrir haustþing.
    Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð í raun. Eins og ég hef sagt hefur þetta verk verið unnið af mikilli vandvirkni, ég er sannfærður um það, lögð mikil vinna í það og vandlega yfirfarið af hinum fróðustu mönnum. Hér er um að ræða fjölmörg afar gömul lagaákvæði, í raun ekki í framkvæmd lengur og er því í sannleika sagt um mjög þarfa og tímabæra hreinsun að ræða.
    Ég geri ráð fyrir að sú nefnd sem fær málið til meðferðar skoði það að sjálfsögðu vandlega en vil vekja athygli á því að það eru til mjög viðamiklar umsagnir, t.d. ráðuneyta, sem nefndin getur að sjálfsögðu fengið aðgang að og þar e.t.v. sparað sér töluverða vinnu. Ég er ekki að leggja áherslu á að þetta frv. verði afgreitt á þessu þingi en ef nefndinni sýnist það fært væri það vitanlega kostur og þá að halda áfram því sem fylgja þarf, eins og hreinsun á reglugerðum og fleiru þess háttar.
    Ég legg svo til, herra forseti, að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. allshn.