Fundir í nefndum og deild
Miðvikudaginn 21. mars 1990


     Jóhannes Geir Sigurgeirsson:
    Hæstv. forseti. Ég get tekið undir það að nokkru með hv. 2. þm. Norðurl. e. að betra hefði verið að nefndastörf hjá okkur væru jafnari á vetrum en nú kemur í ljós að ætlar að verða.
    Hitt vil ég líka sérstaklega taka fram, þar sem ég hef setið þó nokkuð marga fundi í menntmn. í vetur, þegar ekki hafa verið neinar sérstakar annir í þinginu, að það er sérstakt fagnaðarefni ef hv. 2. þm. Norðurl. e. ætlar að fara að mæta á fundi menntmn. í Ed. Ég man nú reyndar ekki eftir honum þar í vetur á þeim fundum sem við höfum haldið.