Útvarpslög
Miðvikudaginn 21. mars 1990


     Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Útvarpslögin eru fimm ára gömul. Það var mjög skemmtilegt að vera formaður í menntmn. Nd. þegar frv. um frjálsan útvarpsrekstur hér á landi var lagt fram í þinginu. Þáv. menntmrh. Ragnhildur Helgadóttir beitti sér mjög fyrir því máli. Mér er skylt að geta þess jafnframt að fyrsti þingmaðurinn sem hreyfði því með tillöguflutningi á Alþingi að útvarpsrekstur yrði gefinn frjáls var hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson, 14. þm. Reykv. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það að við sjálfstæðismenn vorum í mjög þröngri stöðu á þeim tíma. Andstaða var mikil, t.d. í þingflokki Alþb., gegn málinu. Framsóknarmenn voru líka mjög erfiðir og voru í rauninni þannig þenkjandi að helst mætti ekki leyfa hér útvarpsrekstur sem gæti staðið undir sér. Kratar voru svona hér og þar eins og vant er og Kvennalisti var með sérstakan frumvarpsflutning sem gekk í þveröfuga átt við það sem við sjálfstæðismenn vildum.
    Ég hygg að á síðasta áratug a.m.k. hafi ekki verið haldnir jafnmargir og langir fundir um neitt mál eins og menntmn. Nd. hélt þá um frv. til útvarpslaga. Eina frv. sem ég man eftir að hafi fengið ítarlegri umfjöllun var frv. um tekju- og eignarskatt sem samþykkt var á árinu 1978 þegar Matthías Mathiesen var í sæti fjmrh. Það frv. fékk mjög ítarlega umfjöllun, enda var sú lagasetning mjög til fyrirmyndar fyrir margra hluta sakir og mjög dæmigerð í
rauninni fyrir þau vinnubrögð sem við sjálfstæðismenn viljum hafa í skattamálum. Er oft til þeirrar löggjafar vitnað síðan, bæði varðandi vandaðan undirbúning, vegna þess að í þeirri löggjöf voru ekki afturvirk skattaákvæði sem eru aðal vinstri stjórnar, og líka vegna þess að sú löggjöf var rækilega kynnt þeim fyrirtækjum og einstaklingum í landinu sem hygðust starfa eftir löggjöfinni gagnstætt því sem var gert t.d. nú um síðustu áramót í sambandi við álagningu virðisaukaskatts, þar sem öll kurl eru raunar ekki komin til grafar enn.
    Við sjálfstæðismenn vorum satt að segja mjög ánægðir yfir því að okkur skyldi hafa tekist að knýja það fram að útvarpslögin voru samþykkt á þinginu 1984--1985. Ég þarf auðvitað ekki að taka fram að hluti af skýringunni á því að okkur tókst að ná málinu fram var sá að formaður Framsfl. misskildi málið og misminnti það sem við hann hafði verið sagt. Það misminni og sá misskilningur varðaði þá grein laganna sem fjallaði um heimild til auglýsinga, en sú grein frv. er í grófum dráttum óbreytt nú frá því sem við sjálfstæðismenn lögðum til þá. Þetta sýnir auðvitað að hugmyndir okkar sjálfstæðismanna hafa orðið ofan á og eru nú búnar að fá almennan skilning í þjóðfélaginu, svo mikinn skilning að jafnvel ráðherra Alþb. sér sig knúinn til þess að flytja frv. um útvarpsrekstur sem í verulegum atriðum viðurkennir þau sjónarmið sem við höfðum áður lagt til grundvallar en er í öðrum atriðum byggt á hinum

sérstöku viðhorfum Alþb. sem ég mun víkja nánar að síðar. Sérstaklega er mér það þó ánægjuefni að svo virðist sem framsóknarmenn hafi séð að sér í sambandi við ýmis álitamál sem varða þetta frv.
    Ég mun, til að stytta mál mitt, halda mig við upptalningu í grófum dráttum um helstu nýmæli frv. en vil þó áður aðeins gera að umtalsefni 4. tölul. 3. gr. frv. og 3. mgr. 8. gr. frv. Í þessum greinum báðum er um það fjallað að útvarpsstöðvar skuli halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur. Útvarpsstöðvum beri að virða tjáningarfrelsi og stuðla að því að fram komi í dagskrá rök fyrir mismunandi skoðunum í umdeildum málum. Enn þá ríkari kröfur eru gerðar til Ríkisútvarpsins í þessu efni. 2. mgr. 8. gr. er þannig orðuð í frv. og ég hygg að hún sé nokkurn veginn óbreytt frá því sem er í lögunum. Ég hef ekki borið það saman. Það er kannski smámeiningarmunur, þar eins og kom fram í orðum ráðherra:
    ,,Ríkisútvarpið skal halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og mannréttindi, svo og frelsi til orðs og skoðana. Það skal gæta fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð. Stefnt skal að því að hlutur innlends efnis sé sem mestur og vandað sé til þess sem verða má. Ríkisútvarpið skal veita almenna fræðslu, gera sjálfstæða dagskrárþætti er snerta Ísland eða Íslendinga sérstaklega. Ríkisútvarpið skal veita almenna fréttaþjónustu og er vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni er almenning varða.``
    Við vitum auðvitað að þessi grundvallarsjónarmið sem ég er hér að fjalla um eru sjálfsögð í hugum okkar allra. Auðvitað viljum við öll að þessir fjölmiðlar, ég tala nú ekki um ríkisreknir fjölmiðlar, gæti fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð. Og við viljum að fréttastofa Ríkisútvarps og sjónvarps sé vettvangur fyrir mismunandi skoðanir. Við viljum að frásögn sé óhlutdræg, túlkunin sé með öðrum orðum rétt á þeim atburðum sem um er fjallað. Þetta viljum við.
    En við vitum á hinn bóginn að jafnsjálfsagt og það er að setja slík orð um svo háleit markmið niður á blað, í lagatexta, er erfitt að fylgja þessum markmiðum eftir í raun. Og það er óhjákvæmilegt að vekja á því athygli að því
fer nokkuð fjarri að íslenskum sjónvarpsstöðvum og útvarpsstöðvum hafi tekist að nálgast þetta háleita markmið þannig að við getum í rauninni verið ánægð með árangurinn. Ég er með þessum orðum ekki að halda því fram að starfsmenn t.d. fréttastofu Ríkisútvarps, Ríkissjónvarps eða Stöðvar 2 séu viljandi að villa um fyrir hlustendum sínum, séu viljandi að draga taum eins fremur en annars. Það sem ég vil leggja áherslu á er að mannafli á þessum fréttastofum er svo knappur að þess er í rauninni engin von að hann hafi tíma til að vinna til einhverrar hlítar úr því efni sem berst til fréttastofunnar á hverjum degi og fréttamönnum er gert að vinna úr. Við verðum oft vör við þetta sem vinnum hér á Alþingi. Við sjáum og skiljum að fréttamenn hefur skort tíma til þess að geta

staðið við þau háleitu markmið sem hér er verið að tala um.
    Það er í rauninni ekki undarlegt, svo ég taki Ríkisútvarpið sérstaklega sem dæmi, þótt sú stofnun hafi ekki bolmagn til þess að setja bærilega nauðsynlegan mannafla til úrvinnslu frétta og þáttaefnis. Ég vil vekja athygli á því og rifja upp að t.d. á því herrans ári 1988 stóðu ráðherrar Framsfl. og Alþfl. gegn því að heimilt yrði að hækka afnotagjöld Ríkisútvarps til samræmis við fjárlög á þeim tíma. Ég hygg að tilgangurinn bak við þessa undarlegu afstöðu ráðherra Framsfl. og Alþfl. hafi ekki endilega verið sá að koma höggi á Ríkisútvarpið, draga úr mætti þess til að sinna sínum störfum, þessi aðför að Ríkisútvarpinu var pólitísks eðlis til þess að reyna að gera viðskilnað Sjálfstfl., eins og þeir kölluðu það, sem verstan í þessari menningarstofnun. Þá hefði maður getað haldið að með nýjum manni í stól menntmrh. á því ári hefðu hlutirnir eitthvað breyst, en það var nú síður en svo. Áfram var haldið að svelta Ríkisútvarpið út árið 1988 og verðum við þó að segja sem erum vanir
því að hlusta á vinstri menn hér í deildinni að í orði kveðnu eru ástarjátningar þeirra til Ríkisútvarpsins mjög heitar og tíðar enda þykjast þeir eiga mikið undir því að starfsmenn Ríkisútvarpsins séu þeim velviljaðir.
    Nú stendur svo á að á þessu ári verður Ríkisútvarpið 60 ára. Það var mjög fjallað um það í fjh.- og viðskn. þegar við vorum að tala um lánsfjárlögin hvort ekki væri hægt að koma til móts við óskir Ríkisútvarpsins, hvort væri hægt að ná t.d. fram að fullgera skrifstofubyggingu stofnunarinnar, hvort hægt væri að leggja fram einhverja framkvæmdaáætlun um það hvernig unnt yrði að flytja starfsemi Ríkisútvarpsins undir eitt þak í tilefni af 60 ára afmælinu.
    Í stuttu máli fór það svo að meiri hluti ákvað að virða skoðanir og óskir starfsmanna Ríkisútvarpsins og vilja stjórnarandstöðunnar að vettugi. Ákveðið var að stöðva svo fjárveitingar til Ríkisútvarpsins að ekki verður séð að unnt verði að halda áfram framkvæmdum við útvarpshúsið á þessu ári. Ég á þó á hinn bóginn von á því, vegna þess að ég veit að hæstv. menntmrh. hefur gaman af að vera með digrar yfirlýsingar, að hann muni í ávarpi sínu til þjóðarinnar og starfsfólks Ríkisútvarpsins á afmælisdegi stofnunarinnar lýsa því yfir að hann hafi gert framkvæmdaáætlun um það hvenær Ríkisútvarpið verði komið undir eitt þak með sama hætti og hæstv. menntmrh. hefur gert framkvæmdaáætlun um það hvenær hægt verði að ljúka Þjóðarbókhlöðunni. En það mun fara svo, herra forseti, meðan þessi ríkisstjórn situr að framkvæmdaáætlunin mun dragast um eitt ár, hvert eitt ár sem ríkisstjórnin situr.
    Ég tók eftir því að hæstv. menntmrh. sagðist hafa skrifað Ríkisútvarpinu og öðrum útvarpsstöðvum bréf þar sem hann spurði hver væri menningarstefna viðkomandi útvarpsstöðva. Og hann sagðist hafa fengið mjög ánægjulegt og gott svar frá

Ríkisútvarpinu um það hver væri menningarstefna þess. Mér heyrðist á hæstv. menntmrh. að hann teldi að dagskrárliðir Ríkisútvarpsins væru í stórum dráttum menningarlegir. Ríkisútvarpið skal leggja rækt við íslenska tungu, sögu þjóðarinnar og menningu.
    Það hefur komið fyrir einstaka sinnum að ég hafi verið svo óheppinn að það hefur verið opnað fyrir Ríkisútvarpið, mér er sagt að það sé Rás 2, þegar þáttur sem mér er sagt að heiti Þjóðarsálin hefur verið í útvarpinu. Ég verð að lýsa því yfir, hæstv. menntmrh., að ekki er hægt að kalla dagskrá Rásar 2 menningarlega í heild meðan stofnunin stendur fyrir þeim þætti. Þannig hefur verið lagst gegn nafngreindum einstaklingum í þættinum að ómögulegt er að sætta sig við að Ríkisútvarpið skuli standa fyrir slíku.
    Ég held að ekki sé hægt að fella þetta undir það að verið sé að efla skilning á mismunandi viðhorfum og menningarheimum --- er það ekki nýja setningin sem er sett núna inn í Ríkisútvarpið? --- ,,Það skal efla skilning á mismunandi viðhorfum og menningarheimum.`` --- Það er nú gott að fá það inn, ljómandi. Og nóg um það raunar nema ég vil taka fram að ég get ekki unað því né fellt mig við það að á meðan Ríkisútvarpið býr við þau forréttindi um tekjuöflun sem það býr við skuli það lögfest að það skuli senda til landsins alls a.m.k. tvær hljóðvarpsdagskrár. Ég hygg að nóg sé að hafa það eins og í gömlu lögunum, heimildagrein til útsendingar á tveimur rásum, en sé ekki ástæðu til að slíkt sé bundið í lögum.
    Í þessu frv. er lagt til að breyta Ríkisútvarpinu í starfsmannaútvarp í þeim skilningi að einungis starfsmenn Ríkisútvarpsins eigi að ráða dagskrárefni og dagskrárgerð en útvarpsráð skuli ekkert hafa um það að segja. Þetta er mjög,
ég vil segja umdeild niðurstaða. Við erum að reyna að tala um það öðrum þræði að rétt sé að Ríkisútvarpið reyni að gæta óhlutdrægni, og ekki aðeins óhlutdrægni heldur fyllstu óhlutdrægni. Við vitum það af reynslu að menn átta sig kannski ekki á því sjálfir hvort þeir hafi gætt þessarar fyllstu óhlutdrægni eða ekki, fyrir svo utan það að mikil tilhneiging er hjá hverjum einstökum til þess að reyna að standa sem lengst á sínum sjónarmiðum. Nú hefur starf útvarpsráðs smátt og smátt verið að breytast þannig að útvarpsráð hefur ekki eins og áður þau miklu áhrif á dagskrárgerð útvarpsins, er miklu frekar eftirlitsaðili eða umsagnaraðili eftir á, sem ég tel raunar nauðsynlegt að sé í Ríkisútvarpinu. Auðvitað er það rétt að þessi umsagnaraðili er kjörinn pólitískri kosningu hér á Alþingi og ekki getur verið um það ágreiningur milli mín og hæstv. menntmrh. að það er í þágu lýðræðisins að halda uppi pólitískum kosningum í landinu. Það er algjörlega úrelt og það sjónarmið hverfandi að ekki sé rétt að mismunandi pólitískar skoðanir eigi sinn rétt og hafi sinn rétt og það er algjörlega úrelt og hverfandi, var raunar brotið niður með Berlínarmúrnum, að ekki mætti hafa lýðræðislegt eftirlit með lýðræðinu. Á hinn bóginn væri óæskilegt

að búa til sérstakar ríkisstofnanir sem störfuðu án aðhalds, án eftirlits. Þetta aðhald og þetta eftirlit hefur verið í höndum útvarpsráðs.
    Nú vill hæstv. menntmrh. leggja þetta niður, breyta Ríkisútvarpinu í starfsmannaútvarp. Ég held það sé mjög hæpin ráðstöfun og ég held að það sé alveg nauðsynlegt að nefndin athugi það atriði alveg sérstaklega, ég vil taka fram að þau rök sem hæstv. ráðherra bar fram voru algjörlega ófullnægjandi. Á hinn bóginn get ég ekki séð að neitt sé með sjö manna útvarpsráð að gera sem skuli fylgjast með og taka ákvarðanir er tryggi að gerð dagskrárefnis og rekstur dagskrárdeilda sé innan marka fjárhagsáætlunar. Þetta held ég að sé algjörlega út í hött. Miklu einlægara að leggja útvarpsráðið niður en að vera með þetta gervihlutverk sem þarna er, ég skil raunar ekki hvað fyrir hæstv. menntmrh. vakir. Hvað ætli það kosti ef útvarpsráð ætti að fylgja slíkri verkefnalýsingu að einhverju marki og líta á það sem sitt höfuðhlutverk? Ég held þvert á móti að slíkt eftirlitshlutverk sé ekki til tjóns en ég álít að höfuðtilgangur útvarpsráðs hljóti að vera að hafa visst eftirlit með dagskrárgerðinni, að fyllsta hlutleysis sé gætt, óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð. Það verður því miður ekki sagt að allir útvarpsmenn standi við það fyrirheit en ég geri mér um leið grein fyrir því að menn eru misjafnir og ekki get ég ætlast til þess að hver einstakur sem að þeirri stofnun ræðst sé gallalaus, fremur er rétt að gera ráð fyrir því að öllum geti yfirsést og ekkert við því að segja. En ég sé sem sagt ekki að við útvarpsráð sé neitt að gera ef það á ekki að hafa það eftirlitshlutverk sem það hefur haft fram að þessu.
    Það er talið til helstu nýmæla frv. í fyrsta lagi að útvarpsréttarnefnd verði lögð niður en menntmrh. veiti framvegis leyfi til útvarpsrekstrar. Nú hygg ég að útvarpsréttarnefnd hafi starfað þannig að yfirleitt og kannski hvarvetna sé borið til hennar mikið traust. Það er þess vegna ekki af þeim sökum sem útvarpsréttarnefndin er lögð niður. Það er ekki vegna þess að hún hafi brugðist, hugmyndin á bak við hana hafi reynst röng. En ef ég man rétt, ég hef ekki flett því upp, lagðist hæstv. menntmrh. gegn útvarpsréttarnefndinni þegar frv. var hér. (Gripið fram í.) Ekki sérstaklega. En hvort sem svo er eða ekki þá er þetta ekki höfuðatriði í mínum huga, útvarpsréttarnefndin hefur reynst vel. Hér eru sett almenn skilyrði fyrir því hverju útvarpsleyfi skuli vera háð og ég get verið sammála þeim en ég hygg að hitt sé með öllu óviðunandi og alls ekki hægt að framselja það vald til menntmrh. eins, að hann hafi síðan úrskurðarvald um það hvort viðkomandi sé veitt útvarpsleyfi eða ekki. Ef við leggjum það vald í hendur menntmrh., pólitísks ráðherra, þá hlýtur það að vera alveg ljóst að hann hefur ekki vald til þess að leggja pólitískt mat á það hvort menn fái útvarpsrekstrarleyfi eða ekki. Það verður að taka slíkt vald af honum og þess vegna verður að athuga hvort frumvarpsgreinarnar séu nógu afdráttarlausar í þeim efnum, að ráðherranum verði ekki gefið slíkt vald.

    Í öðru lagi vil ég lýsa ánægju minni yfir því að frv. skuli gera ráð fyrir því að leyfi til einkaútvarpsstöðva miðist ekki við þrönga skilgreiningu á afmörkuðum þjónustusvæðum heldur að þær geti náð til landsins alls. Við sjálfstæðismenn lögðum einmitt mikla og ríka áherslu á það þegar lögin voru sett að við vildum hafa það þannig, svo ég er mjög ánægður yfir því að vinstri menn skuli nú komnir til móts við okkar skoðanir að þessu leyti.
    Ég er sammála því að það á að leggja ríka þýðingarskyldu á sjónvarpsstöðvar. Ég vil þó vara við því að þar sé gengið of hratt fram því að það ríður líka á miklu að efni sé vel fram reitt og nauðsynlegt að verulegir fjármunir séu settir einmitt í það að börnin fái sómasamlegt efni.
    Þegar við vorum að berjast fyrir því að lögin yrðu sett á sínum tíma stóð mikil deila um það hvort lögfesta ætti Menningarsjóð útvarpsstöðva, eins og hann var lögfestur. Við sjálfstæðismenn vorum ekki ánægðir með þá hugmynd sem
lá til grundvallar þeirri sjóðsstofnun en á hinn bóginn lágu málin þannig fyrir í þinginu að Framsfl., sem við vorum þá í stjórnarsamstarfi við, gerði það að algjöru skilyrði fyrir því að frv. yrði samþykkt að Menningarsjóður útvarpsstöðva yrði settur á fót með þeim verkefnum sem greinir í lögunum.
    Ég er algjörlega sammála því að það lagaákvæði þurfi endurskoðunar við og endurmats og er fullkomlega sammála því að Menningarsjóður útvarpsstöðva verði lagður niður í núverandi mynd. Ég verð á hinn bóginn að lýsa því yfir að það mál hlýtur að koma til skoðunar um leið og hæstv. menntmrh. leggur fram frv. um menningar- og fjölmiðlasjóð. Hér stendur að sá sjóður eigi að leysa af hólmi gildandi lög um Menningarsjóð og menntamálaráð og Menningarsjóð útvarpsstöðva og er auðvitað óhjákvæmilegt að sjá það frv. áður en maður getur fjallað um þetta atriði, Menningarsjóð útvarpsstöðva. Maður verður að fá að vita hvað eigi að koma í staðinn.
    Í þessu samhengi er óhjákvæmilegt að minna á að með síðustu fjárlögum voru stórauknar opinberar greiðslur, opinber framlög til þess að gefa út flokksmálgögn, Tímann, Þjóðviljann, Dag, Alþýðublaðið. Ég held að það sé líka alveg óhjákvæmilegt að minna á að í þeim hugmyndum sem komu fram, ef ég man rétt í stefnuræðu forsrh., er gert ráð fyrir að þessi svokallaði menningar- og fjölmiðlasjóður hafi m.a. það hlutverk að halda uppi alls konar fréttamennsku, alls konar blaðaútgáfu sem almenningur vill ekkert með hafa. Einhverjum dauðum flokksmálgögnum vinstri flokkanna sem almenningur vill nákvæmlega ekkert með hafa. Og auðvitað verðum við að horfa á ákvæði um Menningarsjóð útvarpsstöðva út frá því sjónarmiði.
    Í ræðu sinni talaði hæstv. menntmrh. um það að hann hefði verið að velta fyrir sér með hvaða hætti ætti að leggja á afnotagjald Ríkisútvarpsins. Hann var með ýmsar hugmyndir sem allar snerust um að skylda landsmenn til þess að greiða fullt verð til

Ríkisútvarpsins hvort sem þeir vildu eða ekki. Ef við veltum fyrir okkur hvað það kostar venjulega fjölskyldu að greiða þetta gjald og vera líka t.d. áskrifandi að dagskrá Stöðvar 2 skilst mér að það séu um 20 þús. kr. á ári. Ég veit ekki hvort þetta er rétt með farið, mér var sagt það, ég hef ekki flett því upp, ég tek það fram. ( Gripið fram í: Það er meira, 36 þús. kr.) Bara Ríkisútvarpið og Stöð 2? Ef það eru 36 þús. kr. sjáum við að við erum að tala um mjög verulegar fjárhæðir. Ef viðkomandi vill nú kaupa eitt eða tvö dagblöð til viðbótar fer þetta að skipta mjög verulegum fjárhæðum.
    Ég held þess vegna að við hljótum að velta því fyrir okkur hvaða leið við eigum að fara til þess að hér sé hægt að halda uppi frjálsri fjölmiðlun. Ég rifja það upp að sums staðar erlendis og kannski hvarvetna, ég er náttúrlega ekki nógu kunnugur hvarvetna, en sums staðar erlendis eru auglýsingar bannaðar í ríkissjónvörpum t.d. Það er mikil spurning ef við gerum það að lagaskyldu að menn verði að greiða afnotagjöld Ríkisútvarps og sjónvarps hvort ekki sé kominn tími til þess að banna ríkisfjölmiðlum að koma inn á auglýsingamarkaðinn. Til þess einmitt með jákvæðum hætti að tryggja
frjálsa fjölmiðlun í landinu. Tryggja það að einstaklingarnir geti notið meira en eins fjölmiðils, að einstaklingarnir geti verið áskrifendur að dagblöðum einu eða tveim, án þess að finna mjög fyrir því. Þetta er auðvitað mjög brýn spurning, ekki síst nú þegar fyrir liggur að tekjur heimilanna hafa lækkað verulega síðan þessi ríkisstjórn tók til starfa. Þar tölum við um tveggja stafa tölu. En á hinn bóginn hefur afnotagjald Ríkisútvarpsins hækkað á sama tíma langt umfram verðbólgu. Ég held þess vegna að við hljótum að velta þessu fyrir okkur.
    Ég geri ráð fyrir að sú nefnd sem fjallaði um frv. hafi einmitt tekið það atriði til athugunar hvort ekki sé tími til kominn að við látum einkastöðvunum auglýsingamarkaðinn eftir en bindum tekjur Ríkisútvarpsins við afnotagjöldin. Ég vil líka minna á að einkastöðvarnar verða að greiða tekju- og eignarskatt gagnstætt því sem Ríkisútvarpið gerir. Ég hef ekki flett því upp og man það satt að segja ekki, en greiðir Ríkisútvarpið t.d. aðstöðugjald? Ég þori ekki að fullyrða það án þess að fletta því upp en mig minnir að það greiði hvorki landsútsvar eða aðstöðugjald. Þannig að það sleppur líka við þær greiðslur.
    Það hefur mjög borið á því, ekki síst nú eftir að þeir hafa til skiptis setið í sæti fjmrh., formenn sósíalistaflokkanna, Jón Baldvin Hannibalsson og Ólafur Ragnar Grímsson --- þeir heita ekki tveim nöfnum báðir vegna þess að þeir hafi verið í tveim stjórnmálaflokkum því að þeir hafa verið í tvisvar sinnum tveimur stjórnmálaflokkum --- að óvissa ýmissa ríkisstofnana hefur verið mjög mikil um það hvaða ráðstöfunarfé þær hafi. Það hefur með öðrum orðum ekki farið eftir efnahag eða áætlun um viðkomandi stofnanir hver afgreiðsla hefur verið í fjárlögum, heldur hefur það farið eftir því hversu stórt

gatið hefur sýnst í ársbyrjun og til allrar hamingju fyrir þessar stofnanir hefur ráðherrunum allt af missýnst í ársbyrjun, gatið hefur alltaf orðið miklu stærra í lokin en þeir héldu. Svo að stofnanirnar hafa þó haldið velli svona nokkurn veginn af þeim sökum.
    Tökum t.d. Póst og síma. Við þurfum ekki að fara mörg ár aftur í tímann til að rifja það upp að hér á Alþingi voru tíðar umræður um það hversu hátt
afnotagjaldið væri, hversu dýrt væri að hringja milli landshluta. Þingmenn Vestf. voru þar framarlega í hópi. Ekki höfðu Matthíasar farið lengi með málefni Pósts og síma áður en þær raddir þögnuðu og þegar þeir skildu við samgrn. var staðan orðin þannig að vinstri flokkarnir ákváðu að allt afnotagjaldið skyldi renna beint í ríkissjóð og þannig er það núna. Afnotagjaldið eins og það leggur sig er skattur ríkisstjórnarinnar á Póst og síma. Ef við förum 20 ár aftur í tímann rifjast upp að í þeirri ríkisstjórn sem Ólafur Jóhannesson var forsrh. fyrir og Hannibal Valdimarsson símamálaráðherra var ákveðið að söluskattur skyldi lagður á Póst og síma, á símtöl, sem ekki hafði verið áður. ( Gripið fram í: Það eru 19 ár.) Eru það 19 ár já?
    Rifjum upp Landsvirkjun. Þegar Sverrir Hermannsson varð iðnrh. voru mjög tíðar og miklar umræður hér í þinginu um það hversu hátt rafmagnsverðið væri. Það var talað um hitunarkostnaðinn fyrir vestan. Það var mikið talað um það hversu það fólk byggi við erfið skilyrði sem yrði að sæta því að eiga viðskipti við Landsvirkjun eða Rafmagnsveitur ríkisins. Ekki höfðu sjálfstæðismenn fyrr skilið við embætti orkuráðherra en upp komu raddir um það hjá þessari ríkisstjórn að nú væri kominn tími til að leggja á sérstakan orkuskatt sem enginn þarf að borga. Með öðrum orðum það átti að éta innan úr Landsvirkjun. Það átti að éta innan úr Rafmagnsveitum ríkisins og Orkubúi Vestfjarða. Þessi skattur hefði numið á þessu ári, miðað við þá verðlagsþróun sem lá fyrir þegar frv. var lagt fram, um 1,8--2 milljörðum kr. og hefði hækkað orkuverð um 30% síðari hluta ársins. Þannig er nú það.
    Ríkisútvarpið. Ég man ekki betur en að það hafi verið menntmrh. úr röðum félagshyggjuflokkanna sem tók fyrstu skóflustunguna. Og þá var talað um það hversu nauðsynlegt væri að þessi bygging yrði sem allra, allra, allra stærst til þess að hægt yrði að koma útvarpinu undir eitt þak. Það var kannski dæmigert að þegar fulltrúar Ríkisútvarpsins komu á fund fjh.- og viðskn. núna fyrir jólin til þess að ræða við okkur um það hvort þeir gætu fengið einhverja peninga til að nálgast það pínulítið að komast undir eitt þak, þá varð að biðja þá um að koma aftur af því að nefndarmenn úr hópi meiri hlutans gleymdu að mæta á fundinum allt of margir til að hitta fulltrúa Ríkisútvarpsins. Svo við sem sátum á þessum fundi báðum þá að koma aftur. Og aumingja mennirnir komu tvisvar niður eftir bara til að fá þetta nei sem þeir vissu að þeir mundu fá áður en þeir komu í fyrra skiptið því þeir vissu ósköp vel að þeim sem eru núna uppi í Stjórnarráði er alveg nákvæmlega sama um það hvort

Ríkisútvarpið er undir einu eða tveimur þökum. Ragar þá ekki neitt, skiptir engu máli. Sextíu ára afmæli skiptir engu máli nema bara í einni hátíðarræðu sem verður haldin einhvern tímann í sumar eða haust.
    Á hinn bóginn getur vel verið að það skipti máli hér á landi núna eftir að við erum búin að venjast frjálsri fjölmiðlun að henni verði leyft að starfa. Og þess vegna hlýtur sú spurning að vera mjög brennandi hvort ekki sé tími til kominn að Ríkisútvarpið láti sér duga afnotagjaldið og láti auglýsingamarkaðinn öðrum eftir. Ég vil líka láta í ljós þá skoðun mína að á meðan og úr því að Ríkisútvarpið er rekið af ríkinu er eðlilegt að slík starfsemi standi undir sambærilegum sköttum og skyldum eins og önnur fyrirtæki sama rekstrar. Sitji þar við sama borð. Þess vegna tel ég óhjákvæmilegt að Ríkisútvarpinu verði breytt á þann veg að það verði lagt niður sem ríkisstofnun en breytt í hlutafélag í eigu ríkisins. Og mun ég flytja frv. um það á þessu þingi.
    Ég get verið sammála um að ekki sé eðlilegt að Ríkisútvarpið greiði hluta af rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Það er hins vegar ekki aðalatriði í mínum huga heldur hitt að þannig sé búðið að Sinfóníuhljómsveitinni að hún geti starfað með eðlilegum hætti. En ekki komu fram í máli ráðherrans neinar skýringar á því hvernig hann hugsar sér það. En það er rétt að þau lög sem nú liggja fyrir um Sinfóníuhljómsveit Íslands þarfnast ekki endurskoðunar nema þá að þessu leyti.
    Ég hef áður fjallað um þann þáttinn sem veit að því að breyta útvarpsráði þannig að það hafi ekki eftirlit með dagskrá eftir á, sé ekki eftirlitsaðili. Ég skil nú satt að segja ekki hvað fyrir ráðherranum vakir. Ég held að þegar búið verður að ræða þetta mál í nefnd og eftir að það skýrist betur muni meiri hlutinn sannfærast um að nauðsynlegt sé að hafa útvarpsráð sem fylgist með því að Ríkisútvarpið ræki þá skyldu sína að vera óhlutdrægt í frásögn, túlkun og dagskrárgerð. Það er alveg óhjákvæmilegt að hafa einhvern slíkan aðila utan stofnunarinnar. Ef útvarpsráð yrði lagt niður að þessu leyti kæmu þegar í stað upp miklar óánægjuraddir sem mundu einungis kalla á það að slíkt ráð yrði sett á nýjan leik og ástæðulaust að hafa slíkan ófrið um Ríkisútvarpið. Það er alveg rétt hjá hæstv. menntmrh. að aðflutningsgjöldin renna í ríkissjóð og miklu betra að taka úr lögunum það ákvæði að Ríkisútvarpið skuli njóta þeirra en að hafa það þarna inni engrar merkingar.
    Ég vil, hæstv. forseti, vekja athygli á ákvæði til bráðabirgða. Hér er gert ráð fyrir því að skipunar- og ráðningartíma yfirmanna Ríkisútvarpsins skuli
ljúka eigi síðar en fimm árum eftir að lög þessi öðlast gildi og er ég fullkomlega sammála því að hafa þann hátt á. Ég vil á hinn bóginn vekja athygli á því að í frv. sem fyrir liggur um ríkisskipulagið, eða hvað sem það nú heitir þar sem talað er um skipulagsstjóra, er gert ráð fyrir því að hann haldi sinni æviráðningu en hins vegar verði ráðningartími takmarkaður eftir að hann lýkur störfum. Ég vil spyrja hæstv. menntmrh.

hvernig á því stendur að í stjfrv. eru mismunandi ákvæði varðandi þetta atriði? Er það komið undir geðþótta einstakra ráðherra hvort þeim er vel eða illa við yfirmenn stofnana? Er ríkisstjórninni persónulega vel við skipulagsstjóra og vill þess vegna að skipulagsstjóri sé æviráðinn þó eftirmaður hans verði til fimm ára? Og er þá ríkisstjórninni á sama hátt illa við útvarpsstjóra og vill að hann hætti eftir fimm ár? Hvað er á bak við það að þetta skuli ekki vera með sama hætti? Ég held að þingið verði að marka þarna stefnuna burt séð frá því hvernig ráðherrum er til einstakra manna. Ég held að kunningsskapur einstakra ráðherra við einstaka embættismenn skipti engu máli. Og ég held þess vegna að þingið verði að taka af skarið og halda sig við það að ráðningartíma embættismanna ljúki almennt og án undantekninga fimm árum eftir að lögin öðlast gildi.
    Ég skal svo ekki hafa um þetta fleiri orð. Ég legg áherslu á það að andinn yfir þessu frv. er í þá veru að þær grundvallarhugmyndir sem við sjálfstæðismenn lögðum fram þegar við börðumst fyrir frjálsu útvarpi eru þær sömu. Aðrir stjórnmálaflokkar hafa fallist á þau grundvallarsjónarmið okkar sjálfstæðismanna að það eigi ekki að vera einkaréttur ríkisins að reka hljóðvarp og sjónvarp. Ég vil í lokin aðeins þakka hv. 14. þm. Reykv. Guðmundi H. Garðarssyni fyrir það frumkvæði sem hann hafði hér í þinginu fyrir þessu máli og ég er áður búinn að minnast á og öllum þeim sem komu að því verki að okkur tókst fyrir fimm árum að knýja fram viðunandi lausn á þessum málum.