Útvarpslög
Miðvikudaginn 21. mars 1990


     Jóhann Einvarðsson:
    Virðulegur forseti. Nokkrar ábendingar um þetta frv. til útvarpslaga sem hér liggur fyrir þar sem ég á ekki sæti í menntmn. sem fær frv. til meðferðar.
    Ég skal taka það strax fram að í meginatriðum er ég sammála frv. eins og það liggur fyrir en það eru nokkur atriði sem ég vildi þó drepa á.
    Í fyrsta lagi er það um Menningarsjóð útvarpsstöðva og Sinfóníuhljómsveitina. Í lögunum nú er ákvæði um að Menningarsjóður útvarpsstöðva skuli fá ákveðnar tekjur af öllum auglýsingum sem birtar eru í útvarpi og standa undir ákveðnum kostnaði af rekstri Sinfóníuhljómsveitarinnar sem er um 25% ef ég fer rétt með. Ég hefði talið nauðsynlegt, þrátt fyrir yfirlýsingar ráðherra hér í framsöguræðu um að það kæmi frv. um þessi efni, bæði Menningarsjóðinn og Sinfóníuhljómsveitina, að það hefði fylgst að hér í gegnum þingið. Ég tel útilokað og slæma reglu að taka það upp á eftir, ég tala nú ekki um þegar svo stutt er til þingslita. Það er reiknað með að lögin öðlist þegar gildi og þá getur myndast hugsanlega dauður tími fram að því að ný lög taki gildi á hausti komandi um Sinfóníuhljómsveitina og Menningarsjóð útvarpsstöðva.
    Ég vil líka taka það fram í sambandi við að menntmrh., eins og segir í 2. gr. frv., skuli veita öðrum leyfi til útvarps en Ríkisútvarpinu að ég tel að sú reynsla sem við höfum af útvarpsréttarnefnd sé slík að það sé rétt að halda þeirri nefnd. Ég tel óeðlilegt að leggja þetta í hendur ráðherra eins, jafnvel þó hann hafi sér til ráðuneytis útvarpsnefnd sem skipuð er af Hæstarétti, enda sýnist mér að ákvæði um útvarpsnefndina í frv. séu svolítið loðin. Í 2. gr. er talað um að hún skuli vera ráðherra til ráðuneytis um vafaatriði og ágreiningsmál, í öðrum greinum á hún að úrskurða, í 6. gr. er talað um í þriðja tilfellinu að það
skuli fá umsögn útvarpsnefndar. Ég held að það sé ekki heppilegt fyrir neinn ráðherra að hafa þetta vald í sínum höndum og útvarpsréttarnefnd, eins og hún hefur starfað, hefur sett ákveðnar reglur, grundvallarreglur sem fulltrúar ýmissa stjórnmálaafla hafa komið sér saman um, hvaða meginreglur skuli gilda við að veita leyfi til útvarps. Ég tel t.d. að nú þegar sveitarstjórnarkosningar eru fram undan og það flykkjast inn til útvarpsréttarnefndar beiðnir frá einstökum stjórnmálaflokkum, sveitarfélögum og ýmsum fleiri aðilum um að fá að opna staðbundin útvörp o.fl. væri óheppilegt að setja ráðherra í þá stöðu að annaðhvort samþykkja allt sem inn kemur, sem ég held að sé óheppilegt án þess að setja um það skýrar reglur, eða ef ráðherra hugsanlega hafnar einhverju er áfrýjunarfresturinn það skammur að það yrði náttúrlega orðið of seint að fá úr því skorið. Ég er á því að ekki sé óheppilegt að hafa áfram útvarpsréttarnefnd skipaða á svipaðan hátt og hún er í dag.
    Smáatriði þarna í 3. gr., ég held það sé nú bara prentvilla eða það hafi fallið niður orð, það er 2.

liður: ,,Óheimilt er að veita erlendum aðila, félagi eða stofnun, leyfi til útvarpsreksturs, þar sem eignarhlutdeild erlendra aðila er meiri en 10%.`` --- Ég held það hljóti að vanta þarna inn í ,,... óheimilt er að veita erlendum aðila né félagi eða stofnun ...`` --- enda held ég að það sé þannig orðað í lögunum eins og þau eru í gildi í dag.
    Ég var búinn að ræða um útvarpsréttarnefnd. Í 4. gr. er líka talað um að útvarpsstöðvar skuli eigi síðar en einum mánuði fyrir hverjar almennar kosningar til Alþingis og sveitarstjórna og til forsetakosninga koma sér saman um reglur til að takmarka stjórnmálaauglýsingar. Ég held það sé til of mikils mælst að útvarpsstöðvar nái samkomulagi um slíka framkvæmd, ég held það verði að vera einhver annar aðili, svo sem útvarpsréttarnefnd eins og hún er skipuð í dag, sem setji reglur um hvernig þetta eigi að vera og þá eru það um leið orðnir fulltrúar stjórnmálaflokkanna sem hafa þá fullan skilning á því hvers vegna reglurnar eru settar en að útvarpsstöðvar setji svona reglur, það hef ég mjög takmarkaða trú á að sé skynsamlegt.
    Í sambandi við fjármál Ríkisútvarpsins. Nú er það svo að tolltekjurnar eru felldar niður og renna beint til ríkissjóðs eins og kannski hefur verið í reynd. Um leið er fellt niður, eins og ég gat um áðan, að Ríkisútvarpið eða Menningarsjóðurinn skuli standa straum að einum fjórða hluta af rekstri Sinfóníuhljómsveitarinnar. Þetta er réttlætt, sem er alveg eðlilegt, með því að óeðlilegt sé að tolltekjurnar falli til Ríkisútvarpsins en ekki til annarra sjónvarpsstöðva, eðlilegt sé að þær fari frekar til ríkissjóðs eins og
aðrar tolltekjur. En mér finnst í raun gilda það sama um afnotagjaldið sem slíkt. Ég held að það sé óeðlilegt að við tökum afnotagjald í þeim dúr sem við höfum gert. Ég er þeirrar skoðunar að taka eigi upp nefskatt eða þetta eigi að borgast beint úr ríkissjóði með nefskatti sem ég held að sé hægt að halda fyllilega aðgreindum. Sú staða hefur nefnilega komið hvað eftir annað upp með einstök sjónvarpstæki, sem einhver hefur einhverra hluta vegna trassað að borga af, að heimilt er að innsigla þau og jafnvel að taka þau af viðkomandi eiganda vegna vanskila. Að mínu viti er sjónvarpstæki sem slíkt eða útvarp
eign þess einstaklings sem það kaupir og undarlegt að afnotagjaldið hafi réttarstöðu fram yfir aðra. Það er óeðlilegt að loka fyrir báðar stöðvarnar þó ekki sé kominn myndlykill á Ríkissjónvarpið líka. Og það er út af fyrir sig einkennilegt eins og þetta er í frv., og reyndar er í lögunum í dag, að útvarpsgjaldinu, ásamt kostnaði, dráttarvöxtum eða öðrum slíkum innheimtukostnaði, skuli fylgja lögveðsréttur í viðkomandi tæki sem helst þó eigendaskipti verði. Ég verð að segja það, þó ég sé ekki lögfræðingur, að þetta hljómar illa í mínum eyrum. Hafi ekki verið gerð krafa til þessa gjalds og tækið innsiglað og engin krafa liggi fyrir þegar einhver selur sitt tæki þá er óeðlilegt að sú krafa haldist sem Ríkisútvarpið á í tæki sem þegar hefur verið selt. Ég er hræddur um að

það færi illa í okkur ef slíkar kröfur héldust á bíl sem við hefðum átt og værum búin að selja, án þess að nokkur krafa hefði legið fyrir áður en bíllinn var seldur, frá þeim aðila sem teldi sig eiga þann rétt. Mér finnst þetta því hljóma dálítið einkennilega þó þetta virðist samt hafa verið í lögunum alveg fram að þessu.
    En ég er sem sagt þeirrar skoðunar að það eigi að taka upp nefskatt hjá Ríkisútvarpinu. Ríkisútvarpið er nauðsynlegt tæki fyrir alla þjóðina og ekki óeðlilegt að allir taki þátt í þeim rekstri. Þetta er öryggistæki, það er skylda að koma ýmsum boðum á framfæri þegar einhver vá steðjar að. Hið frjálsa útvarp, hið frjálsa sjónvarp, það eru kannski ekki móttökuskilyrði fyrir það hvar sem það er á landinu.
    Ég held að það sé ekkert verra að koma því við að veita afslátt vegna þess að fyrirtæki hafi mörg tæki á sínum snærum eða afslátt til þeirra sem þurfa að fá undanþágu frá þessum gjöldum að einhverju leyti eða öllu vegna blindu eða heyrnarleysis, þannig að ég held að það ætti ekki að torvelda framkvæmdina. Þá væri hægt að spara sér innheimtustofnunina og allt það umstang sem er í kringum þá deild Ríkisútvarpsins.
    Ég er ekki alveg sammála síðasta ræðumanni í sambandi við 14. gr. og ákvæði til bráðabirgða þar sem segir að útvarpsstjóra og framkvæmdastjóra skuli skipa til fimm ára í senn með heimild til ráðningar í önnur fimm ár og að þeir skuli skilyrðislaust hætta fimm árum eftir að lögin taka gildi. Ég er út af fyrir sig sammála því að ráðningartími allra opinberra starfsmanna eigi að vera takmarkaður. En ég er ekki sammála því að það ætti ekki að vera leyfi til framhaldsráðningar. Ef mönnum sýnist að þeir hafi náð í góðan mann til að reka ákveðna stofnun þá á það ekki að vera alveg skilyrðislaust að hann skuli hætta eftir fimm eða tíu ár. Mér finnst að það eigi að vera í mati þess yfirmanns, þess ráðherra eða ríkisstjórnar sem er á hverjum tíma. Svo ör eru skipti á ráðherrum og ríkisstjórnum að það getur farið fram eðlilegt og heiðarlegt mat á þessu. Það eru mörg tilfelli þar sem við höfum fengið úrvals starfsmenn til starfa í opinberum stofnunum og mér finnst óeðlilegt að það skuli vera alveg skilyrðislaust að menn skuli hætta innan ákveðins tíma. Og auðvitað alveg útilokað að það skuli vera ósamræmi milli lagasetningar hjá ýmsum ríkisstofnunum ef það er rétt sem fyrri ræðumaður á undan mér í stólnum hélt fram hér áðan.
    Í 12. gr. er tekið fram að í framkvæmdastjórn skuli sitja útvarpsstjóri, framkvæmdastjórar aðaldeilda og tveir fulltrúar kjörnir af starfsmönnum, annar frá hljóðvarpi en hinn frá sjónvarpi, svo og fulltrúi útvarpsráðs, en hann hefur þar málfrelsi og tillögurétt. Ef ég tók rétt eftir í framsöguræðu ráðherra hér í gær, þá orðaði hann það þannig að fulltrúar starfsmanna væru áheyrnarfulltrúar. Þeir eru það nú ekki samkvæmt mínum lestri á þessari frumvarpsgrein. Ég verð að segja að þar sem útvarpsráð á að fylgjast með og taka ákvarðanir til að tryggja gerð dagskrárefnis og að rekstur dagskrárdeilda sé innan marka fjárhagsáætlunar, eins og segir í 16. gr., þá finnst mér

ekki óeðlilegt, ef tveir starfsmenn, af ekki stærri framkvæmdastjórn en þetta, hafa fullt málfrelsi og atkvæðisrétt og ákvörðunarrétt í þeirri stjórn, að fulltrúi útvarpsráðs, sem ber svo endanlega ábyrgð á því að stofnunin haldi sig innan fjárhagsáætlunar, hafi líka slíkan rétt. Ég vil því benda mönnum á að skoða þessa grein betur og lagfæra þetta. Ég held að það sé brýnt.
    Ég var búinn að geta um útvarpsnefndina og útvarpsréttarnefndina og um nefskattinn. Það sem ég ætla svo að leggja áherslu á að lokum er það að hið fyrsta og áður en þetta frv. verður samþykkt hér í þinginu verði lagt hér fram og afgreitt samhliða frv. um Sinfóníuhljómsveitina og um Menningarsjóð útvarpsstöðva, ef sú stofnun á að halda áfram. En alla vega um Sinfóníuhljómsveitina því annars held ég að horfi til vandræða fram að þeim tíma sem ný lög um Sinfóníuhljómsveitina yrðu sett á haustþingi. Þar á ofan held ég að hæstv. fjmrh. geti ekki verið ánægður með að ekki sé gerð full grein fyrir því hvernig á að greiða kostnað af hljómsveitinni. Ég dreg í efa að hann sé tilbúinn að eyða 50 millj. kr. núna í ár vegna Sinfóníuhljómsveitarinnar umfram það sem hann á að borga, en ég skil það svo að það sé einn fjórði hluti rekstrarkostnaðar Sinfóníuhljómsveitarinnar á þessu ári.
    Að öðru leyti mun ég hafa samband við flokksbræður mína sem sitja í menntmn. um önnur þau smærri atriði sem ég hef áhuga á að koma á framfæri.