Dræm fundasókn og nefndastörf
Miðvikudaginn 21. mars 1990


     Ásgeir Hannes Eiríksson:
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Ísleifi Gunnarssyni fyrir að vekja máls á þessu. Ég get í stórum dráttum tekið undir það sem hann segir. Ef við ætlum að ljúka hér þeirri vinnu sem ríkisstjórnin óskar eftir verður náttúrlega að mæta, ekki bara stjórnarsinnar því það er ekki síður skylda stjórnarandstöðunnar að halda uppi málefnalegri stjórnarandstöðu á þann hátt að láta sjá sig í þingsölum og taka þátt í þingstörfunum. En það eru fleiri mál en mál prestsins hér á þinginu. Það eru líka mál frá einstaka þingmönnum og við einstakir flm. hljótum að krefjast þess af ríkisstjórninni að ef við eigum að vera fyrir hendi þegar þarf að kjósa og greiða atkvæði um mál ríkisstjórnarinnar að ráðherrarnir verði það líka þegar þarf að taka okkar mál á dagskrá.