Læknalög
Miðvikudaginn 21. mars 1990


     Geir H. Haarde:
    Herra forseti. Ný læknalög voru afgreidd hér á hinu háa Alþingi fyrir u.þ.b. tveimur árum, á fyrsta þingi þessa kjörtímabils, og höfðu þá verið til umfjöllunar bæði hér á vettvangi þingsins og hjá hagsmunaaðilum um töluvert langa hríð.
    Það liggur í eðli laga sem þessara að það er óheppilegt og jafnvel óeðlilegt að gera miklar breytingar á þeim mjög oft. Það er affarasælast að löggjöf sem þessi geti staðið tiltölulega lítt breytt um langan tíma. Eigi að síður er það svo að ef í ljós koma ágallar á lögum sem þessum er auðvitað skylt að gera þar breytingar á. Mér sýnist að það sé það sem hér er verið að gera og vil taka undir sjónarmið ráðuneytisins sem fram koma í 1. og 2. gr. og reyndar 3. gr. einnig, um að ekki megi ganga um of gegn þeirri viðurkenningu sem læknar hafa aflað sér sem sérfræðingar á Norðurlöndum eða þrengja möguleika manna með óeðlilegum hætti til að starfa hér á landi án þess að gangast undir íþyngjandi próf eða þess háttar hluti.
    Að því er varðar seinni hluta frv. er rétt að hafa í huga þá umræðu sem varð hér á sínum tíma í tilefni af afhendingu sjúkraskráa og hugsanlegum aðgangi aðila, annarra en sjúklings, að slíkum gögnum. Ég sé ekki í fljótu bragði að með tillögum þessa frv. sé í grundvallaratriðum horfið frá þeim reglum sem gilt hafa eða þeirri nauðsynlegu leynd sem á að hvíla yfir slíkum trúnaðarmálum. Ég sé ekki í fljótu bragði að neitt slíkt sé hér á ferðinni. En ég tel eigi að síður nauðsynlegt --- þar sem hér er vikið að þessum atriðum í frv. --- að minna á nauðsyn þess að sjúklingar geti ævinlega treyst því að með sjúkraskrá þeirra og önnur mjög svo persónuleg gögn sem tengjast þeirra sjúkrasögu og meðferð hjá einstökum læknum sé ævinlega farið sem trúnaðarmál og að engin hætta sé á ferðum varðandi það að slík gögn komist í hendur aðila sem ekki eiga eða mega með þau fara.
    Að öðru leyti skal ég ekki fjölyrða um þetta frv. Ég tel að 6. gr. þess um heimildir lækna sem orðnir eru 75 ára til að starfa áfram séu eðlilegar og geri ekki frekari athugasemdir við frv.