Fyrirspyrjandi (Guðni Ágústsson):
    Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér að flytja svohljóðandi fsp. til hæstv. utanrrh.:
,,1. Hver tók ákvörðun um vopnaburð íslenskra lögregluþjóna í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli árið 1986?
    2. Hvaða reglur eru í gildi varðandi umgengnisvenjur vopnaðra lögregluþjóna í flugstöðinni? Hversu margir starfa í vopnadeildinni?
    3. Hver er kostnaður af sérdeild vopnaðra lögreglumanna frá upphafi til síðustu áramóta?
    4. Hver er ástæða þess að vopnaðir lögregluþjónar yfirtóku störf tollvarða við málm- og vopnaleitartæki í flugstöðinni í nóvember sl.?
    5. Hversu oft hefur þurft að beita vopnum?``

     Hver á sér meðal þjóða þjóð,
     er þekkir hvorki sverð né blóð.
     En lifir sæl við ást og óð,
     og auð sem friðsæld gaf.

    Svo kvað skáldið. Ég hef aldrei verið sáttur við að sjá Íslendinga ganga undir vopnum í flugstöð okkar Íslendinga frá morgni til kvölds. Ég get hins vegar viðurkennt að nauðsynlegt er að eiga sveit manna sem kann og getur á neyðarstundu gripið til aðgerða, svo sem hin íslenska víkingasveit sem sérstaklega hefur verið þjálfuð upp til slíkra verka. Það er allra dómur að vopn kalli á aukna hörku. Ég kannast t.d. við þá speki að ,,mýktin sigrar hörkuna``. Ég á varla von á því að ef til átaka kæmi yrðu menn, sem kannski árum saman ganga vopnaðir um en eiga sér aldrei neins ills von eins og þessir menn í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli, mikils megnugir ef hætta steðjaði að.
    Ég hef þess vegna hreyft þessu máli hér að ég tel að við Íslendingar eigum hvar sem við erum staddir að mæla fyrir friði. Burt með kúluna úr byssunni. Heimurinn á að mínu mati að fara þá leið að menn mæti óvopnaðir til leiks og takist þannig á við vandamálin. Þannig held ég að smátt og smátt verði hægt að stuðla að friði í heiminum og þar eigum við að ganga á undan, Íslendingar. Við eigum ekki að láta menn standa undir vopnum eins og því miður hefur orðið raunin svo víða í heiminum.