Peningamagn í umferð
Fimmtudaginn 22. mars 1990


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Hæstv. forseti. Ég þakka forseta fyrir að leyfa mér að gera stutta athugaemd. Það sætir furðu að hv. þm. skuli bera fram þessar fyrirspurnir, þessar athugasemdir, einmitt í þann mund þegar betri horfur virðast á því en verið hafa um árabil ef ekki áratuga skeið að hér takist að koma á sæmilegri samstillingu kraftanna og stærðanna í þjóðarbúskapnum þannig að við getum búið hér við svipaða verðbólguþróun og verður í löndunum í kring.