Fyrirspurnir og svör við þeim
Fimmtudaginn 22. mars 1990


     Eiður Guðnason:
    Virðulegi forseti. Þegar því er lýst yfir úr þessum ræðustól af hv. þm. að ráðherra, sem þarf að hverfa úr þingsal vegna skyldustarfa sinna og hefur svarað þeim spurningum sem til hans var beint, sé með því að sýna þingræðinu alveg sérstaka fyrirlitningu finnst mér slík ummæli vera vítaverð og þau beri að víta úr forsetastóli.