Fyrirspyrjandi (Danfríður Skarphéðinsdóttir):
Virðulegur forseti. Við teljum það sjálfsagt mál í nútímaþjóðfélagi að hver þegn eigi þess kost að fá starf. Flestir reikna með því við upphaf starfsævi sinnar að geta séð sjálfum sér farborða og að allir séu jafnvelkomnir á vinnumarkaðinn. Allflestir fatlaðir einstaklingar eru þess fullkomlega megnugir að leggja sitt af mörkum til nytja- og verðmætasköpunar í samfélaginu séu þeim sköpuð rétt skilyrði til þess að rækta og nýta þá eiginleika sem þeir búa yfir rétt eins og aðrir þjóðfélagsþegnar. Atvinnumál fatlaðra eru því ekki síður hagsmunamál samfélagsins en réttindamál hins fatlaða. Nauðsynlegt er að stjórnvöld geri sér grein fyrir þessari staðreynd og líti á það sem skyldu sína annars vegar að skapa öllum mönnum atvinnu sem vilja og geta unnið og tryggja þeim réttlátan hlut í þeim auðæfum sem skapast og hins vegar að búa öllum þegnum félagslegt öryggi.
Sennilega verða flestir til að svara spurningunni um það hvers vegna þeir vinni á þann hátt að það sé til þess að sjá sjálfum sér farborða. Það er vissulega rétt en auðvitað engan veginn tæmandi. Gildi vinnunnar er ekki síður hinn félagslegi þáttur og atriði sem tengjast sjálfsímynd hvers og eins. Það er ekki síst fyrir fatlaða sem vinnan hefur mikla þýðingu í sambandi við félagslega stöðu og sjálfsmynd. Margir verða fyrir alvarlegum áföllum sem gjörbreyta öllu þeirra lífi og knýr þá til að taka algerlega nýja stefnu í lífinu. Sérlega mikilvægt hlýtur að vera að þjóðfélagið og vinnumarkaðurinn taki vel á móti fólki sem hefur orðið fyrir slíkum áföllum og verður jafnframt því að sætta sig við fötlunina að hefja leit að atvinnu, e.t.v. á nýjum og áður óþekktum starfsvettvangi. Það er ekki síst vegna félagslega þáttarins sem það getur jafnvel verið brýnna fyrir fatlaða en aðra að hafa trygga atvinnu þrátt fyrir það fjárhagslega öryggi sem tryggingabótum er ætlað að veita þeim. En eins og allir vita hrökkva þær nú skammt. Á síðustu árum hefur ýmislegt verið reynt til þess að bæta stöðu fatlaðra en enn eigum við langt í land. Hugarfarsbreytingar er þörf og e.t.v. er það meginskýringin á því hversu hægt miðar að ná jafnrétti með fötluðum og ófötluðum.
Um þessar mundir er meira atvinnuleysi um land allt en um langt skeið og spurning hvernig það kemur við fatlaða einstaklinga í þjóðfélaginu. Á þeim tölum sem félmrn. sendir frá sér mánaðarlega má sjá að á slíkum tímum bitnar atvinnuleysi yfirleitt harðar á konum en körlum. En spurningin er: Hvar standa fatlaðir þegar illa árar? Í fréttabréfi félmrn. í október sl. var frétt þess efnis að búið væri að ráða starfskraft til þess að sinna tímabundnu verkefni varðandi atvinnumál fatlaðra. Í framhaldi af þeirri frétt hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. félmrh. á þskj. 711 um skráða atvinnulausa í hópi fatlaðra og hvort sú úttekt sem starfsmanni þessum var falið að gera liggur fyrir. Síðasta spurningin, ég veit að hún er nokkuð víðtæk, snýst um það hvernig áætlað sé að vinna að því að ná jafnrétti með fötluðum og
ófötluðum á vinnumarkaði.