Rit um kristni á Íslandi í þúsund ár
Fimmtudaginn 22. mars 1990


     Flm. (Guðrún Helgadóttir):
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um samningu rits um kristna trú á Íslandi í þúsund ár en hún liggur frammi á þskj. 752 og er 431. mál þingsins. Flm. eru forsetar Sþ., Ed. og Nd. ásamt formönnum allra þingflokka. Tillagan hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Alþingi samþykkir, með tilvísun til þingsályktunar frá 17. apríl 1986 um þúsund ára afmæli kristnitökunnar, að fela forsetum þingsins í samráði við þjóðkirkju Íslands og guðfræðideild Háskóla Íslands að standa fyrir samningu ritverks um kristni á Íslandi og áhrif hennar á þjóðlíf og menningu í þúsund ár.
    Forsetar þingsins skipi að höfðu samráði við biskup Íslands þriggja manna ritstjórn og ráði ritstjóra verksins frá ársbyrjun 1991. Ritstjóri ráði síðar aðra þá höfunda er að verkinu standa með samþykki ritstjórnar.
    Kostnaður við verkið greiðist með öðrum útgjöldum Alþingis.
    Ljúka skal samningu verksins á fimm árum.``
    Hvað sem mönnum sýnist um kristni og kirkju, hverjar sem trúarskoðanir manna kunna að vera getur engum blandast hugur um að ein er sú löggjöf merkust í sögu hins háa Alþingis og þjóðarinnar allrar en það er kristnitakan árið 1000. Varla verður um það deilt að sú ákvörðun hefur markað spor í sögu þjóðlífs á Íslandi sem ekki verða burtu máð. Það er því vart annað við hæfi en að Alþingi taki þátt í 1000 ára afmæli kristnitökunnar árið 2000 með þeim hætti sem til sóma geti talist enda hefur náðst einhuga samstaða um það.
    Aðdragandi þeirrar till. til þál. sem hér er mælt fyrir er nokkur og skal nú gerð grein fyrir honum. Hinn 17. apríl 1986 samþykkti Alþingi svohljóðandi ályktun, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Alþingi ályktar að fela forsetum Alþingis að vinna að athugun á því með hvaða hætti verði af hálfu Alþingis minnst þúsund ára afmælis kristnitökunnar.``
    Tillögu þessa fluttu forsetar þingsins og formenn þingflokka. Enginn vafi er á að einn þáttur aðdragandans er setning laga nr. 12/1982, um samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar, sem hefur styrkt samvinnu þings og kirkju. Í samstarfsnefndinni eiga sæti af hálfu Alþingis forseti sameinaðs Alþingis og einn fulltrúi sem tilnefndur er af hverjum þingflokki, en af hálfu þjóðkirkjunnar situr í nefndinni kirkjuráð. Forseti þingsins og biskup fara með formennsku í nefndinni sitt árið hvor.
    Á fundi í nefndinni á öndverðum þessum vetri kom fram að kirkjuráð hefði samkvæmt ákvörðun kirkjuþings tilnefnt þrjá menn í nefnd til að undirbúa hátíðahöld í tilefni 1000 ára afmælis kristnitökunnar. Í henni áttu sæti biskupinn yfir Íslandi, herra Pétur Sigurgeirsson, séra Heimir Steinsson og Jónas Gíslason prófessor. Jafnframt kom fram að sú nefnd hefði hugleitt að stuðla að samningu nýrrar kirkjusögu.
    Skömmu eftir að núverandi biskup, herra Ólafur

Skúlason, tók við embætti kvaddi hann til fundar frú Vigdísi Finnbogadóttur, forseta Íslands, forseta sameinaðs Alþingis og Steingrím Hermannsson forsrh. til að ræða undirbúning hátíðahaldanna. Á þeim fundi var m.a. rætt um fyrirhugaða ritun nýrrar kirkjusögu. Varpaði ég þá fram þeirri skoðun minni að töluvert hefði verið ritað um sögu kirkjunnar sjálfrar sem stofnunar þó að vissulega megi betur gera þar en minna um áhrif kristnitökunnar á hugmyndaheim fólksins í landinu og á þjóðlíf allt og væri þar enginn þáttur undanskilinn. Það lét vitanlega engan þátt þjóðlífsins ósnortinn þegar heiðin norræn menning og kristin Evrópumenning mættust á mörkum hins byggilega heims. Nýr hugmyndaheimur leystist úr læðingi, ný vitund varð til sem breytti öllu þjóðlífi og hafði víðtæk áhrif á allan hugsanagang manna, á menningu og listir, stjórnmál, dómskerfi og hvað eina sem mannlegt líf varðar. Undir þessa skoðun var vel tekið og í kjölfar þessa fundar skipaði ríkisstjórnin 20. okt. sl. að tillögu biskups forseta Íslands, handhafa forsetavalds og biskup Íslands í starfshóp til að undirbúa þátttöku ríkisvaldsins í hátíðahöldunum árið 2000. Hefur þessi hópur verið nefndur kristnihátíðarnefnd. Í framhaldi af þessum undirbúningi hefur ríkisstjórnin ákveðið að bera kostnað af nýrri þýðingu Gamla testamentisins úr hebresku og er það starf nú þegar hafið.
    Í hinni nýju nefnd reifaði ég enn þessa hugmynd um ritun kristinnar hugmyndasögu og varð það úr að ég ræddi við forseta þingsins um samningu ritverks um sambúð þjóðar og kirkju í þúsund ár og kristna menningu hennar. Forsetar Alþingis ræddu málið mjög vandlega og urðu ásáttir um að hér yrði vel að vanda til. Mikilvægt væri að verkið færi ekki úr böndunum svo að úr yrði verk sem aldrei yrði lokið eins og dæmi eru til í ritun íslenskrar menningarsögu. Þess í stað yrði að ákveða því tíma, undirbúa það gaumgæfilega og gæta þess að því verði haldið innan skynsamlegra marka. Jafnframt voru forsetar einhuga um að samráð þyrfti að hafa í hvívetna við kirkjuna og guðfræðideild Háskóla Íslands. Því varð að ráði að leita til dr. Hjalta Hugasonar, lektors við Kennaraháskóla Íslands, um undirbúning málsins, en hann er eini formlega menntaði kirkjusagnfræðingur þjóðarinnar og höfðum við heyrt
fara hið besta orð af honum. Einnig um það var haft samráð við biskup. Dr. Hjalti Hugason skilaði sérlega vönduðu áliti til forseta þingsins og varð það til þess að styrkja forseta mjög í fyrirætlun þeirra. Þá var beðið um skriflegt álit biskups sem einnig kom á fund forseta og hvatti hann mjög til verksins.
    Í áliti dr. Hjalta Hugasonar segir m.a.:
    ,,Undirrituðum er ljúft að verða við þeirri beiðni að taka saman nokkrar athugasemdir vegna fram kominna hugmynda um samningu ritverks um kristni á Íslandi og áhrif hennar á þjóðlíf og menningu í þúsund ár í tilefni af þúsund ára minningarhátíð kristnitöku hér á landi.`` Síðan segir dr. Hjalti: ,,Frá sjónarhorni sérfræðings í íslenskri kirkjusögu er ljóst að brýn þörf er á samningu yfirlitsrits á ofangreindu sviði.

Skýringarnar á þessari þörf eru fjölmargar.
    Fyrst ber að geta þess að íslensk kirkjusaga hefur fram til þessa ekki verið rituð út frá því félagslega og menningarsögulega sjónarhorni sem að ofan getur. Þá eru tiltæk yfirlitsrit á sviði íslenskrar kirkjusögu í hefðbundnari skilningi orðin mjög gömul. Ber hér einkum að nefna tveggja binda yfirlitsrit herra Jóns Helgasonar biskups frá 1925--1927. Rit þetta hefur lengi verið ófáanlegt og fáum tiltækt á bókasöfnum. Þótt vel hafi verið til ritsins vandað í upphafi stenst það engan veginn þær kröfur er nú verður að gera til fræðilegra yfirlitsrita á þessu sviði. Sama máli gegnir einnig um viðamikil yfirlit yfir íslenska kirkju- og kristnisögu í almennum sagnfræðiritum íslenskum. Ber hér einkum að geta kirkjusöguyfirlitanna í fjölbindaverkinu Sögu Íslendinga sem kom út á vegum menntamálaráðs og Þjóðvinafélags á árunum 1942--1958.
    Önnur ástæða felst í því að í yngri yfirlitsritum um íslenska sögu hefur þætti trúarsögunnar verið fremur lítill gaumur gefinn og í raun minni en verjandi virðist út frá sjónarhorni kirkjusagnfræðings, þegar þess er gætt hversu víðfeðmu félags- og menningarlegu hlutverki kirkjan gegndi og hversu fjölþætta skírskotun hin trúarlega hugsun hafði í samfélagi fyrri tíma. Þetta einkennir a.m.k. sum bindi Sögu Íslands sem nú er í útgáfu.`` Þá segir dr. Hjalti:
    ,,Þriðja ástæðan og ekki sú þýðingarminnsta felst í því að kirkjusaga virðist um langt skeið hafa verið mjög einangruð og afmörkuð fræðigrein hér á landi sem stunduð hefur verið af fáum fræðimönnum en aðrir sniðgengið þátt kirkjunnar og trúarinnar í íslenskri menningarsögu meira en eðlilegt virðist. Er hér annars vegar um að kenna takmarkaðri aðferðafræðilegri umræðu innan greinarinnar sjálfrar og þröngrar afmörkunar á verksviði hennar en hins vegar vanmati á hinum trúarlega þætti í menningu fyrri alda. Í þessu efni má merkja markverða breytingu á síðari árum þar sem fleiri fræðimenn virðast hafa tekið að fást við afmörkuð sagnfræðileg rannsóknarefni sem tengjast kirkjusögu.``
    Dr. Hjalti Hugason svarar þeirri spurningu hverjir hafi þörf fyrir ritverk sem hér er um rætt. Hann nefnir íslensku þjóðkirkjuna og önnur trúfélög, guðfræðideild Háskóla Íslands, íslenska sagnfræðinga og hugvísindamenn almennt og síðast en ekki síst allan almenning í landinu. Um það segir hann:
    ,,Allur almenningur í landinu sem afla vill sér heildstæðrar þekkingar á sögu og menningu þjóðarinnar hefur mikla þörf fyrir vandað yfirlitsrit yfir kristnisögu landsmanna er fallið getur að þeim fjölmörgu ritum um almenna sögu sem völ er á og breikkað getur þá mynd af sögunni sem þar er dregin upp. Ljóst er að þarfir og áhugasvið þeirra hópa sem nefndir hafa verið eru með mjög misjöfnum hætti. Við mörkun ritstjórnarstefnu verður að kveða nokkuð á um hverja forgangsröð skal viðhafa. Vert er þó að stefna að því að fullnægja þörfum sem flestra. Metnaðarfullt og vandað ritverk hefur enda forsendur til þess að höfða í senn til almennings og fræðimanna sem ekki

eru sérfræðingar í viðkomandi grein í þröngum skilningi.``
    Forsetar hafa eins og áður er sagt haft náið samráð við biskup Íslands. Í bréfi hans dags. 5. mars sl. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Eftir að ég fékk uppkast að nefndri þáltill. hef ég borið hana undir ýmsa menn, þar á meðal prófessorinn í kirkjusögu við guðfræðideild Háskóla Íslands og aðra þá sem gerst munu kunnugir þessu máli og hafa allir lokið upp einum munni um gagnsemi þessa rits. Kemur þar líka fram að hér er um að ræða málefni sem snertir ekki aðeins Alþingi og þjóðkirkjuna heldur Íslendinga alla, enda mun trauðla unnt að gera greinarmun á þjóðinni og þeim aðilum sem hér fjalla um mál.`` Bréf biskups endar á þessum orðum: ,,Ég vil enn á ný þakka þingforsetum fyrir tillöguna og þann hug sem hún lýsir og treysti því að Alþingi styðji hana við atkvæðagreiðslu.``
    Þingforsetar skrifuðu síðan formönnum þingflokka og ræddu einnig mál þetta á fleiri en einum fundi með þeim og hafa nú allir þingflokkar samþykkt að standa að tillögunni. Forsetum var fullljóst að ekki kæmi til mála að bera fram tillögu sem þessa nema allt Alþingi stæði að henni. Um hana yrði að vera full samstaða. Það er til marks um vilja allra hv. alþm. til að hefja hið háa Alþingi úr viðjum daglegs amsturs og ágreinings þegar saga og menning
þjóðarinnar er annars vegar að um þessa tillögu hafa allir þingflokkar sameinast.
    Síðan ákveðið var að þar sem guðslög og landslög greindi á skyldu guðslög ráða hefur íslenskt þjóðlíf tekið miklum breytingum og þó að landslög vegi nú þyngra en guðslög þegar ákvarðanir eru teknar er það víst að löggjafarsamkoman vill eiga gott og heiðarlegt samstarf við þjóðkirkjuna um allt sem verða má íslensku þjóðinni til heilla og farsældar. Er sú afstaða vel í samræmi við það sem gerðist við Öxará árið 1000 þegar heiðinn maður var fenginn til að segja upp lög kristinna manna, lög um að allir skyldu einn sið hafa.
    Hæstv. forseti. Í lok máls míns vil ég taka það fram að með þessari tillögu er ekki öllum afskiptum Alþingis af kristnitökuhátíð lokið. Alþingi mun að sjálfsögðu taka þátt í undirbúningi hátíðarinnar á komandi árum með þátttöku í kristnihátíðarnefnd. Þingvallanefnd sem Alþingi kýs verður tvímælalaust virkur þátttakandi í hátíðahöldunum og þingið mun eflaust á ýmsan annan hátt koma nálægt þeim. Sú er vafalaust von allra hv. alþm. að þar takist vel til. En öll hátíð tekur enda og við tekur daglegt stríð hugar og handa. Með þessum tillöguflutningi vona flm. að þá standi eftir ritverk um áhrif kristnitökunnar árið 1000 á þjóðlíf og menningu íslensku þjóðarinnar í þúsund ár sem gjöf frá Alþingi. Þessu ritverki er ætlað að bregða ljósi inn í myrkur aldanna, að auðvelda íslenskum almenningi að skilja og skilgreina sjálfan sig sem grein á þeim meiði sem við öll erum af og staðið hefur af sér storma og hret í aldanna rás. Með þeim huga er mælt fyrir þessari till. til þál.
    Hæstv. forseti. Þar sem tillaga þessi er flutt af

forsetum Alþingis og þingflokksformönnum öllum og í náinni samvinnu við biskup Íslands geri ég ekki tillögu um að mál þetta sæti frekari athugun í nefnd heldur verði því vísað beint til síðari umræðu.
    Ég hef lokið máli mínu, hæstv. forseti.