Skýrsla umboðsmanns Alþingis
Fimmtudaginn 22. mars 1990


     Birgir Ísl. Gunnarsson:
    Virðulegi forseti. Í þessari skýrslu umboðsmanns kemur fram í nokkuð mörgum greinum gagnrýni á störf ýmissa ráðherra, þar á meðal hæstv. fjmrh. eins og síðasti ræðumaður, hv. 6. þm. Reykv., kom inn á í ræðu sinni. Það er líka gagnrýni hér á fleiri ráðherra sem nauðsynlegt er að ræða því hér er um að ræða í sumum greinum mál sem áður hafa komið til umræðu á hv. Alþingi og þingmenn skipst á skoðunum um. Þess vegna finnst mér satt að segja útilokað að umræðan haldi áfram án þess að ráðherrar, að mínu áliti a.m.k. hæstv. fjmrh., sé viðstaddur og ég býst við að aðrir ræðumenn hafi áhuga á því að það séu fleiri ráðherrar hér, t.d. hæstv. forsrh. sem ber höfuðábyrgð á stjórnsýslunni sem forsrh. Þess vegna tel ég, hæstv. forseti, að það þyrfti að fresta umræðunni þar til ráðherrar væru viðstaddir. Ég býst við að það sé erfitt að drífa þá út af sínum stöðum hvar sem þeir nú eru á þessari stundu. En mér finnst afar erfitt að halda þessari umræðu áfram því að ég vildi krefja ráðherra ákveðinna skýringa á vissum atriðum í skýrslunni. ( Forseti: Forseti hlýtur að viðurkenna að það er auðvitað mjög slæmt að hæstv. ráðherrar skuli ekki vera viðstaddir umræðu sem þessa. Nú vil ég spyrja hv. þm. hvort honum nægði að reynt yrði að ná til hæstv. forsrh.) Ég hef nú einkum hug á því að ræða við hæstv. fjmrh. ( Forseti: Ég hygg að forseti verði að verða við þeirri ósk að umræðunni verði frestað og reynt að sjá til þess að hæstv. ríkisstjórn verði að eins miklu leyti og unnt er viðstödd þessa umræðu n.k. mánudag.) Ég þakka hæstv. forseta þessi góðu viðbrögð og sanngjarna úrlausn á málaleitan minni.