Guðrún Agnarsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég fagna því að þetta frv. er komið inn á þingið á nýjan leik. Að vísu er orðið nokkuð áliðið og ég verð að segja að ég er nokkuð uggandi um að frv. nái fram að ganga. Ég vona þó að það veitist tími til þess að fjalla vel um það í hv. allshn. þannig að við getum náð samstöðu um þær breytingar sem gera þyrfti á frv. áður en það verður samþykkt og gert að lögum.
Það er vissulega orðin brýn þörf á því að breyta hegningarlögunum hvað varðar ákvæði um skírlífisbrot eða kynferðisbrot því að þessi lög eru orðin gömul. Þau eru frá 12. febr. 1940 og nú eru í raun breytt viðhorf, breyttir þjóðfélagshættir að mörgu leyti sem krefjast þess að breyting sé gerð á lögunum.
Ég átti sæti í nauðgunarmálanefnd sem hæstv. ráðherra gat um áðan og starfaði í henni í fjögur ár. Þar var gott samstarf um ýmsar breytingar sem voru ræddar ítarlega í fyrirspurnatímum nýlega á þinginu. Þar kom fram að þó að þær tillögur hefðu legið í láginni og ekkert verið hreyfðar er fullur hugur hjá stjórnvöldum, bæði hæstv. dómsmrh., heilbrmrh. og menntmrh. að hefjast handa í þessum málum, gera tillögur til breytinga og hrinda þeim breytingum í framkvæmd. Þeirra orð hef ég fyrir því og bind við þau miklar vonir. Þetta er eitt af fyrstu skrefunum sem stigið er í þá átt, vona ég.
Í nefndinni, sem ég áður gat um, voru unnar ýmsar brtt., m.a. á þeim kafla almennu hegningarlaganna sem við ræðum um hér. Þær breytingar eru í þessu frv. auk annarra sem unnar voru af formanni nauðgunarmálanefndar, Jónatani Þórmundssyni lagaprófessor og Þorsteini Jónssyni, deildarstjóra í dómsmrn. En nefndin sem slík kom ekki að gerð frv. í heild sinni.
Þær breytingar sem hér eru lagðar til eru, eins og fram kom áðan, gerðar með hliðsjón af norrænum lögum. Það hefur tekist samstarf milli dómsmálaráðherra á
Norðurlöndunum um að halda breytingum sem mest jafnfætis hjá Norðurlandaþjóðunum og þessar breytingar hafa verið miðaðar nokkuð svo við lögin í þessum nágrannalöndum okkar.
Í raun hafa mínar skoðanir á þessu frv. ekki mikið breyst, heldur kannski styrkst og eflst síðan við ræddum frv. við annan hæstv. dómsmrh. á síðasta þingi en ég vil fara lítillega yfir frv. eins og það liggur fyrir og gera nokkrar athugasemdir.
Ég álít að hér séu margar breytingar til bóta. Hins vegar er ég ekki alveg sammála öðrum og geri athugasemdir við þau atriði og jafnvel tillögur til breytinga þar sem það á við. En að mestu tel ég að þessar breytingar bjóði mun betri réttarstöðu og réttarvernd fyrir þá sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi. Það er þá fyrst, eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra, að ákvæðin eru ókynbundin hvað varðar nauðgun og kynferðislegt ofbeldi. Þarna er um að ræða aukna réttarvernd og þá ekki síst fyrir börn. Ég tel þetta vera réttlætismál því að þó að konur að
langstærstum meiri hluta verði fyrir slíkum brotum geta einnig drengir og einstaka sinnum karlar orðið fyrir þessum brotum og mikilvægt að bæta réttarvernd þeirra. Síðan tel ég mjög mikilvægt að önnur kynferðismök eru lögð að jöfnu við samræði og ekki síður að kynferðisleg áreitni er nú tekin upp sem refsivert athæfi og skilgreind eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra áðan. En ég hygg að það væri athugandi fyrir nefndarmenn að gera þær breytingar á frv. að kynferðisleg áreitni nái ekki einungis til barna heldur líka til fullorðinna og skilgreina hana á sama hátt. Það kemur fram í athugasemdum með frumvarpsgreinunum að rétt þykir að veita þessari háttsemi meiri athygli en áður með sérákvæði og taka harðar á brotum og ég held að það sé rétt. Síðan eru, eins og hæstv. ráðherra gat um, refsiákvæðin almennt fremur þyngd í þeim tillögum sem hér koma fram. Ég vil nú víkja lítillega að greinunum.
Það hefur komið fram í skilningi margra á frv. að það getur verið nauðsynlegt að taka sérstaklega fram í 194. gr., þ.e. 2. gr. frv., að í skilgreiningu á verknaðinum sé átt við nauðganir sem eiga sér stað í hjónabandi alveg jafnt og þær nauðganir sem eiga sér stað utan hjónabands. Þessi skilningur margra við lestur frv. kemur af því að í 4. gr. er sérstaklega tekið fram að refsivert sé að notfæra sér geðveiki eða aðra andlega annmarka manneskju til að hafa við hana samræði eða önnur kynferðismök utan hjónabands eða óvígðrar sambúðar. Þar er að vísu annað samhengi en greint er í 2. gr. Sömuleiðis kemur þetta fram í 6. og 7. gr., þar er sérstaklega tekið fram að samræði sé refsivert utan hjónabands. Þetta veldur því að einhverjir hafa skilið 2. gr. á þann veg að það sé möguleiki á því að þetta athæfi sé ekki refisvert í hjónabandi. Lögfróðir menn fullyrða að þessi skilningur sé rangur, að ákvæðið eigi vitanlega við ofbeldisverk sem unnin eru hvort sem er í hjónabandi eða utan hjónabands en ég vil vekja athygli hæstv. ráðherra og hv. þm. á því að sums staðar erlendis er slíkt athæfi í hjónabandi enn ekki refsivert. Ég er einmitt með grein úr breska blaðinu The Independent frá 8. mars sl. þar sem greint er frá því í frétt að samkvæmt enskum lögum sé ekki hægt að ákæra eiginmann fyrir nauðgun á eiginkonu sinni nema þau séu
lagalega skilin eða á eiginmanninum --- nú kann ég ekki að þýða þetta lagamál --- hvíli einhvers konar skuldbinding um að limlesta ekki konu sína, ,,non molestation injunction``, ég kann ekki að þýða það réttilega. Í sumum löndum er jafnvel nýlega orðið refsivert að fremja nauðgun í hjónabandi. Þetta er matsatriði en ég varpa því fram til umhugsunar fyrir þá sem eiga eftir að fjalla um frv. í nefndinni hvort ástæða sé til að skilgreina eða leggja áherslu á það sérstaklega, þó ekki væri nema í athugasemdum, til að koma skilningi lögfróðra manna á greininni skilmerkilega til skila.
Ég geri ekki athugasemdir við aðrar greinar fyrr en kemur að greinum sem varða sifjaspell. Úr XXI. kafla um sifskaparbrot er flutt grein, sem varðar
kynferðislegt athæfi, yfir í XXII. kafla sem nefndur hefur verið kafli um kynferðisbrot, sem ég tel reyndar vera betra heiti en skírlífisbrot, og skipað niður í tvær greinar, 8. og 9. gr. Þar er lagt til að ,,önnur kynferðismök`` verði lögð að jöfnu við samræði og ég tel það til bóta. Þar er einnig felld niður refsiábyrgð barna og annarra niðja og refsimörk nokkuð þyngd og ég tel það líka til bóta. Þó vek ég athygli á því að ég tel mjög vafasama og í raun ranga þá aðgreiningu sem gerð er í 8. og 9. gr. milli þeirra sem eru blóðskyldir og þeirra sem hafa forræði yfir börnum vegna þess að þau eru kjörbörn, stjúpbörn, fósturbörn, sambúðarbörn eða ungmenni sem manni hefur verið trúað fyrir til kennslu eða uppeldis.
Ég held og hef fulla ástæðu til að halda, eftir að hafa kynnt mér ýmsar rannsóknaniðurstöður og hlustað á reynslu þeirra sem hafa fjallað um þessi mál og vinna með þau, að sá áverki og það áfall sem barn verður fyrir við sifjaspell sé jafnalvarlegt og jafnþungbært hvort sem um er að ræða blóðskyldan aðila eða aðra fullorðna manneskju sem er forræðis- eða umhyggjuaðili barnsins, þ.e. sá aðili sem barnið tengist tilfinningalega og ber mest traust til. Ég held að trúnaðurinn og tilfinningatengslin séu grundvallaratriði í þessum málum. Þess vegna finnst mér að það þurfi að víkka út skilgreininguna á sifjaspelli, hún eigi ekki fyrst og fremst að taka til blóðtengsla hvað varðar mat löggjafans á verknaðinum. Og ég vil endurtaka og ítreka að ég held að verknaðurinn geti haft jafnalvarleg áhrif á barnið og sé í raun jafnvítaverður glæpur fullorðinnar manneskju gagnvart kynfrelsi barns ef um er að ræða þann aðila fullorðinn sem barnið treystir best.
Þetta er ekki einfalt mál og ég hef heyrt þær röksemdir að með því að víkka út þessa skilgreiningu verði refsimörkin og túlkun lagagreinarinnar e.t.v. ómarkvissari sem reyndar kom fram í máli hæstv. ráðherra áðan. En trúnaðarbresturinn við barnið og brotið gegn kynfrelsi þess tel ég sé meginatriði hér. Við erum í raun að fjalla um ævaforn tabú eða helgispjöll þar sem um er að ræða sifjaspell á milli blóðskyldra og kannski liggja einhverjar mjög djúpstæðar ástæður að baki strangari refsingum gegn slíkum brotum, eins og t.d. verndun á kynstofninum eða því um líkt, þar sem um blóðskyldan aðila er að ræða. En auðvitað koma þarna líka til tilfinningar væntumþykju og það að fremja glæp gegn sínu eigin blóði. En ég ítreka aftur, ef við lítum á þolandann, á barnið, held ég að glæpurinn gegn því sé og geti oft orðið jafnalvarlegur þegar um staðgengil blóðskyldra aðila er að ræða.
Mig langar í þessu sambandi að vitna til umsagna sem komu til allshn. þegar hún fjallaði um þetta mál á síðasta þingi. Þá voru kvaddir á fund nefndarinnar fulltrúar Kvennaráðgjafarinnar, ráðgjafarhóps um nauðgunarmál, Hildigunnur Ólafsdóttir afbrotafræðingur, sem sat í nauðgunarmálanefnd, og Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi sem hefur látið þessi mál mjög til sín taka. Það var samdóma álit allra í ítarlegum og vönduðum greinargerðum, sem skilað var
til nefndarinnar, að taka undir þetta sjónarmið. Og mig langar til að vitna, með leyfi hæstv. forseta, í eina umsögnina. Hún er frá Guðrúnu Jónsdóttur. Þar segir um sifjaspell:
,,Sifjaspell hafa þá sérstöðu miðað við önnur kynferðisbrot sem frv. tekur til að þau standa oftast yfir í langan tíma, allt upp í áratug, og að brotamaðurinn er einhver sem barnið er háð tilfinningalega eða um framfærslu. Önnur kynferðisbrot eru flest þess eðlis að þau taka til eins afmarkaðs brots og oft er brotamaðurinn ekki tengdur þeim sem hann beitir valdi eða ofbeldi tilfinningaböndum. Þetta ásamt valdaleysi barna gagnvart fullorðnum skýrir að hluta til hversu afdrifaríkar afleiðingar sifjaspella verða fyrir börn. Það er því mikið í húfi við endurskoðun þessa hluta hegningarlaga að aukin þekking á eðli og afleiðingum sifjaspella endurspeglist í þeim lagabreytingum sem fyrirhugaðar eru um þessi brot.``
Síðan segir: ,,Því miður virðist mér að alvarlegustu ágallar þessa frv. felist í þeim tveimur greinum, 8. og 9. gr., sem kveða á um refsingar vegna sifjaspella. Megingallarnir felast annars vegar í því að skilgreining á sifjaspellum er of þröng og hins vegar hvernig refsiákvæðum er beitt og að þau eru of lág. Varðandi fyrra atriðið, skilgreiningu á sifjaspellum, þá er hún of takmörkuð þar sem hún virðist ekki ganga út frá þeirri grundvallarstaðreynd sem einkennir sifjaspell að í þeim misnotar hinn fullorðni, sem barnið þekkir og er tengt fjölskyldu- eða vinaböndum, traust barnsins. Undir skilgreininguna
sifjaspell falla að mínu viti kynferðisbrot þeirra sem um getur í 8. og 9. gr. að viðbættum systkinum, frændum og þeim fullorðnum öðrum sem barnið þekkir, er háð, er tengt tilfinningaböndum og ber vegna tengsla traust til.``
Ég legg því megináherslu á að þetta atriði og gæti vitnað til fleiri umsagna um það en mun ekki gera það hér. Ég býst við að þessir aðilar og fleiri verði kallaðir fyrir fund nefndarinnar og þá má ræða þetta nánar.
Í sambandi við refsimörkin held ég að flestir geri sér grein fyrir því að refsingar sem slíkar eru ekki það sem vegur þyngst til að bæta fyrir þessi brot eða bæta úr málum og hreint ekki eins og fangelsismálum er háttað hjá okkur nú. Þar efast ég um að mannbætandi áhrif verði ríkust eða skili sér til þeirra sem fremja slík brot. Hins vegar eru refsingar mælikvarði löggjafans og samfélagsins á það hversu vítaverður glæpur, hversu refsiverður hann er í raun og veru. Og það kom nýlega fram einmitt í umfjöllun um afbrot síbrotamanns á þessu sviði að dómar fyrir þjófnaði, fyrir fjárstuld af ýmsu tagi voru þyngri en kynferðisbrot gagnvart litlum börnum og það er vissulega umhugsunarvert atriði fyrir þessa deild. Ég tel þetta mjög alvarlegan glæp. Sumir kalla þetta jafnvel alvarlegasta glæpinn og þess vegna og vegna þess sem ég hef áður sagt tel ég að þurfi að samræma refsingarnar í 8. og 9. gr. En ég viðurkenni fúslega að ég tel ekki að hægt sé að bæta þeim sem verður fyrir
slíku broti með refsingu gerandans. Hins vegar verður að beina meginathygli að því að finna meðferðarúrræði og hjálpa og reyna að lækna þá sem fremja slík ofbeldisverk. Meðferðin hlýtur að vera meginefnið þó alls ekki megi líta fram hjá þyngd refsinga í þessu tilviki.
Ég vil síðan víkja að 12. gr. Þar segir:
,,205. gr. orðist svo: Refsing samkvæmt 194.--199., 202. og 204. gr. má falla niður, ef karl og kona, er kynferðismökin hafa gerst í milli, hafa síðar gengið að eigast eða tekið upp óvígða sambúð, ef þau voru þá í hjónabandi eða óvígðri sambúð, hafa eftir það tekið upp eða haldið áfram sambúð.``
Nú skilst mér að það hafi í raun aldrei reynt á þessa grein og mér finnst að það mætti fella hana niður. Það hlýtur að vera mat dómsvalds og ákæruvaldsins á hverjum tíma að fella slíkt út og þurfi ekki sérstaka lagaheimild til. En eins og greinin stendur þarna finnst mér hún vekja villandi hugrenningatengsl. Hún vekur þau hugrenningatengsl að hjónaband eða óvígð sambúð geti á einhvern hátt, þótt síðar verði, réttlætt slíkan verknað og þá komum við að því aftur sem ég ræddi áðan í sambandi við skilgreininguna á því hvenær nauðgun er réttlætanleg eða leyfileg og hvenær hún er refsiverð. Mér finnst þetta vera hættulegt og ég legg það til að þessi grein verði athuguð nánar í nefndinni og geri tillögu um að hún verði felld út, sérstaklega þar sem aldrei hefur reynt á hana í öll þau ár sem þessi lög hafa gilt.
Ég vil þá víkja að 13. gr. sem fjallar að hluta til um vændi eða 1. mgr. gerir það. Ég legg ríka áherslu á það að orðin ,,stundar vændi sér til framfærslu eða`` verði felld úr þessari 1. mgr. Ég er sömu skoðunar og ég var þegar þetta frv. var rætt síðast og jafnvel finnst mér frekari rök og upplýsingar hafa rennt traustari stoðum undir þá skoðun að þeir sem stunda vændi hafa yfirleitt leiðst út í það ekki bara vegna vandræða sinna heldur mjög veikrar stöðu í samfélaginu. Flestar erlendar rannsóknir sem gerðar hafa verið á þeim sem stunda vændi sýna að þar er um mjög marga einstaklinga að ræða sem hafa skerta sjálfsmynd og hafa oft verið beittir kynferðislegu ofbeldi í bernsku, bera, má segja, ör á sálu sinni eftir illa meðferð í bernsku.
Annar þáttur kemur líka til mjög oft og það er eiturlyfjaneysla. Mjög margar þeirra kvenna sem stunda vændi sér til framfærslu erlendis eru að því til þess að fjármagna eiturlyfjaneyslu sína. Inn í þetta blandast síðan alls kyns félagsleg vandamál og heilbrigðisvandamál, eins og t.d. eyðni. Ég ætla ekki að fara neitt ítarlegar út í þetta nú, en mér finnst fáránlegt að sjá þetta hér í íslenskum lögum, þar sem vændi er sem betur fer ekki alvarlegt vandamál, að refsivert skuli vera að stunda vændi sér til framfærslu án þess að nefna einu orði þá sem notfæra sér og eru neytendur vændis því að staða þeirra hlýtur ævinlega að vera mun sterkari en þess sem lendir í þeirri ógæfu að þurfa að selja líkama sinn á þennan hátt. Og það kemur einnig fram í umsögnum þeirra sem komu til nefndarinnar að allir taka umsagnaraðilarnir undir það
að fella þennan lið út. Það kom t.d. fram í máli afbrotafræðingsins. Hún sagði: ,,Vændi er ekki
viðskipti jafngildra aðila. Kaupandinn misnotar nær alltaf stöðu seljandans vegna þess að seljandinn hefur mun veikari stöðu.``
Síðan er annað atriði í þessari grein sem ég vildi gera athugasemd við og ég vil lesa, með leyfi hæstv. forseta. Þar stendur:
,,Sömu refsingu varðar það einnig að stuðla að útflutningi nokkurs manns úr landi í því skyni að hann hafi ofan af fyrir sér erlendis með lauslæti, ef útflytjandinn er yngri en 21 árs eða honum er ókunnugt um þennan tilgang með utanförinni.``
Ég held að þessi grein hafi skilað sér til okkar úr gömlum lögum meðan hvít þrælasala kann að hafa verið vandamál á Vesturlöndum, svokallað mansal. Ég held að þeir tímar séu liðnir. Flutningur fólksins er ekki á sama hátt og áður í þessum tilgangi. Það er mun algengara að konur flytjist úr öðrum heimshlutum eða séu fluttar úr öðrum heimshlutum í þessum tilgangi til Vesturlanda og það hefur sýnt sig sérstaklega á Norðurlöndum að þar hafa konur frá Austurlöndum lent í miklum hrakningum eftir að þær hafa verið tældar þangað í því augnamiði að þær ættu að ganga í hjónaband en verið síðan misnotaðar kynferðislega á freklegan hátt. Sem betur fer hafa margar konur frá Suðaustur-Asíu flust til Vesturlanda án þess að lenda í nokkrum hrakningum. Þær hafa gengið þar í hjónaband þar sem þeim er ekki misboðið og þar sem þær eru jafnréttisaðilar og ekkert er við það að athuga, en ég held að það væri í takt við þróun tímans að bæta inn í þessa setningu eða þessa málsgrein að ákvæðið varði bæði útflutning og innflutning því að auðvitað hlýtur hvort tveggja að vera jafnsaknæmt í raun og veru. Ég vil vekja athygli á till. til þál. sem hefur verið flutt af kvennalistakonum einmitt til þess að reyna að taka á þessum vanda að einhverju leyti og þá um leið vanda allra þeirra sem flytjast til landsins erlendis frá. Þessi þáltill. fjallar um skipulega fræðslu og leiðsögn fyrir útlendinga sem taka sér búsetu á Íslandi. Og þar er sagt, með leyfi forseta, ég vil aðeins vitna:
,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að sjá um að útlendingar sem taka sér búsetu á Íslandi hljóti skipulega fræðslu og leiðsögn sem miði að því að auðvelda þeim að takast á við daglegt líf í íslensku umhverfi. Fræðslan skal einkum ná til eftirtalinna atriða: Kennslu í íslensku, fræðslu um réttindi og skyldur íslenskra þjóðfélagsþegna, fræðslu um íslenska þjóðfélagið og helstu stofnanir þess, fræðslu um sögu landsins og staðhætti, íslenska menningu og þjóðlíf.`` Vona ég að þessi tillaga fái vinsamlega og jákvæða umfjöllun hér á þinginu.
Ég hefði gjarnan viljað lesa ýmislegt úr umsögnum þeirra sem komu til okkar á fund allshn. í fyrra, en ég ætla ekki að tefja umræðu málsins við 1. umr. en mun sannarlega mælast til þess eða fara fram á það að þessum umsögnum verði dreift aftur og sömu aðilar og fleiri kallaðir á fund nefndarinnar. Ég vona vissulega að þetta frv. nái fram að ganga en ég tel að
það þurfi að gera á því nokkrar breytingar til þess að það nái í raun og veru tilgangi sínum. Og í því skyni er mjög mikilvægt fyrir hv. nefndarmenn að hlusta grannt á þær konur sem vinna daglega með þessi mál, bæði í Kvennaathvarfinu, í ráðgjafarhóp um nauðgunarmál, í nýjum samtökum sem heita Stígamót og vinna að því að hjálpa þeim sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi og fjölmarga aðra, þar á meðal fagfólk sem hefur verulega mikla og alvarlega reynslu af því að annast um þá sem hafa orðið fyrir þessum erfiðu ofbeldisverkum. Ég er viss um að nefndin hefur fullan vilja til að vinna þetta mál og vinna það vel og vil ekki lengja mál mitt nú. Ég veit að Kvennalistinn á fulltrúa í hv. allshn. og þar mun okkur gefast tækifæri til að koma okkar brtt. og athugasemdum á framfæri. Svo þakka ég aftur fyrir að frv. skuli vera komið fram og vona að þetta verði einungis fyrsta skrefið af mörgum sem þessi ríkisstjórn ætlar að stíga til að leita marktækra úrræða til meðferðar og stuðnings fyrir þá sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi.