Salome Þorkelsdóttir:
Hæstv. forseti. Það eru aðeins örfá orð vegna þessa frv. sem hæstv. dómsmrh. hefur nú mælt hér fyrir. Ég get tekið undir orð hv. 6. þm. Reykv. og fagnað því að frv. hefur aftur séð dagsins ljós. Það er alveg ljóst að breytinga er þörf á hegningarlögunum hvað varðar skírlífisbrot því að hér er um mjög mikilvægt og viðkvæmt mál að ræða og vegna þeirra breytinga sem orðið hafa í þjóðfélaginu á undanförnum árum og áratugum hefur þetta mál líka komið meira upp á yfirborðið. Það má kannski segja að það hafi komið úr felum eins og ýmislegt annað.
Ég hef hlustað með athygli á málflutning hv. 6. þm. Reykv. þar sem hún átti sæti í þeirri nefnd sem var skipuð af þáv. hæstv. dómsmrh. Jóni Helgasyni og var falið að kanna hvernig háttað væri rannsókn og meðferð nauðgunarmála og gera tillögur til úrbóta. Hún er þess vegna vel kunnug starfi þeirrar nefndar og þessum málum. Hún hefur farið ítarlega í ýmsar greinar frv. og gert athugasemdir og bent á ýmislegt sem henni fannst að mætti kannski vera með öðrum hætti, og ég tek undir það með henni að það væri mjög gagnlegt fyrir nefndina að fá slíkar athugasemdir og þær umsagnir sem til eru. Það er óhætt að segja að þessi umræða um kynferðisafbrot hafi blossað upp í þjóðfélaginu æ oftar á undanförnum árum og því miður að gefnu tilefni, þegar kynferðisafbrot hafa verið framin og þá ekki síst gagnvart börnum eins og við þekkjum að hefur verið allt of mikið um á umliðnum árum. Kannski er það einmitt það sem hér hefur komið fram áður, að það sé vegna þess að nú fá þessi mál opinbera umfjöllun sem áður voru oft í felum.
Sjálf hef ég flutt þessi mál hér inn á Alþingi. Ég flutti frv. á árinu 1987 um breytingu á lögum um meðferð opinberra mála sem vörðuðu brot sem falla undir XXI. og XXII. kafla hegningarlaganna, um sifskaparbrot og skírlífisbrot. Það frv. var flutt að gefnu tilefni því að þá var mikil umræða um þessi mál
í þjóðfélaginu og einmitt það sem sneri að börnum þar sem þessi mál voru látin bíða í dómskerfinu og fengu ekki afgreiðslu fyrr en eftir dúk og disk. Þar kom jafnvel fram að dómarar töldu þessi mál ekki þýðingarmeiri en svo að þeir töldu sig þurfa að vera svo upptekna í stóru málunum, sem þeir kölluðu, sem voru þá kannski ýmiss konar fjármál eða afbrot sem sneru að slíkum málum, að þessi mál, kynferðisafbrot gagnvart börnum, voru að velkjast í kerfinu jafnvel árum saman. Og það getur hver maður gert sér í hugarlund hvaða áhrif það hefur á sálarástand bæði barna og aðstandenda að eiga slík mál yfir höfði sér óafgreidd. Nóg er nú samt.
Ég vildi aðeins minna á þessa breytingu vegna þess að hún var samþykkt hér á Alþingi. Lögunum var breytt og ég veit ekki hvort hægt er að spyrja hæstv. dómsmrh. að því hér við þessar aðstæður hvort þessi lagabreyting hafi haft áhrif til góðs, hvort þessi mál fái nú betri forgang í dómskerfinu en áður var. En sá
var tilgangurinn með þessari lagabreytingu og eins og ég sagði varð þetta að lögum og þess er því að vænta að svo sé nú.
Ég lagði einnig fram fyrirspurn sem ég óskaði eftir skriflegu svari við. Hún var um fjölda kæra sem hefðu verið lagðar fram varðandi kynferðisafbrotamál gagnvart börnum. Þetta náði yfir nokkuð langt tímabil, frá 1950 til 1987. Ég ætla ekki að lesa upp þessa fyrirspurn. Hún er til á þingskjali hér í þinginu, en ég óskaði eftir skriflegu svari og mér fannst þetta svar vera athyglisvert en ekki var hægt að gefa þessar upplýsingar nema að mjög takmörkuðu leyti vegna þess að skýrslur um fjölda kærðra brota í einstökum kæruflokkum eru ekki til hér á landi, var sagt í þessu svari, og auk þess væru kynferðisafbrot gagnvart börnum ekki flokkur í kæruskrám heldur féllu þau undir safnheitið ,,kynferðisafbrot``.
Jafnframt því sem greint var frá því í þessu svari að ráðuneytið hefði ekki í höndum umbeðnar upplýsingar og eftirgrennslan hjá lögreglustjóraembættum leiddi í ljós að eigi var unnt að afla þeirra án verulegrar fyrirhafnar, þá var farið út í að biðja um svar yfir skemmra tímabil, en jafnframt hefði verið ákveðið að koma gerð og úrvinnslu afbrotaskýrslna í betra horf í framtíðinni og væri unnið að því verkefni. Ef hæstv. ráðherra veit svar við þessu, ég get kannski ekki ætlast til að hann hafi það handbært hér, væri mjög æskilegt að fá upplýsingar um hvort búið sé að koma þessum málum í betra horf. Mér fannst við þetta tækifæri vera full ástæða til þess að koma inn á þessi atriði því að ég held að það hljóti að skipta heilmiklu máli hvernig staðið er að þessum málum. Og í lok þessa skriflega svars er sagt að betri svara sé að vænta þegar úrvinnslu afbrotaskýrslna hafi verið komið í fastar skorður.
Ég vildi aðeins nota þetta tækifæri til að koma þessu á framfæri við umræðu um þetta frv. Að sjálfsögðu gæti ég í sérstöku þingmáli lagt þessa fyrirspurn fyrir hæstv. ráðherra og má vel vera að ástæða sé fyrir mig til að gera það ef hann hefur ekki svör við þessu hér á þessari stundu.
Eins og ég sagði áðan hlustaði ég af athygli á ræðu hæstv. ráðherra og ekki síst á ræðu hv. 6. þm. Reykv. því að hún hefur kynnt sér þessi mál það ítarlega og m.a. verið með fyrirspurnir hér í Sþ. varðandi þessi mál að
undanförnu. Ég get tekið undir margt sem hún kom inn á hér eins og t.d. það að refsingar bæta í sjálfu sér ekki fyrir afbrotin sem slík og það er auðvitað meðferðarúrræði þessara ógæfusömu aðila sem lenda í að fremja kynferðisafbrot og þá ekki síst síbrotamenn hvað snertir kynferðisafbrot gagnvart börnum. Reynslan hefur sýnt að það virðist ekki vera auðvelt að leysa þau mál eða finna lausn á þeim. Ég man ekki betur en að þessi ógæfusami síbrotamaður hafi farið í einhvers konar meðferð og það hafi verið gefist upp á því og hann hafi þrátt fyrir það sýnt tilburði til að halda uppteknum hætti svo að þetta eru hreint ekki einföld mál. Og þetta hlýtur að vera þýðingarmikill þáttur, hvernig hægt er að bregðast við
varðandi meðferðarúrræði þegar um slík tilfelli er að ræða.
Ég á sæti í hv. allshn. sem fær þetta mál til umfjöllunar og fæ því tækifæri til að fjalla þar um einstakar greinar frv. Ég ætla ekki að gera það nú, enda treysti ég mér ekki til þess á þessari stundu, tel mig ekki hafa næga þekkingu til að gera það. Ég tek undir það að nauðsynlegt hlýtur að vera fyrir nefndina að fá einhverja til viðtals eða umsagnar frá þeim hópum sem hafa verið að vinna að þessum málum eins og Kvennaathvarfinu og ráðgjafarhópnum varðandi nauðgunarmál og þessum nýja hópi, Stígamótum. Ég tek undir það að ég held að mjög nauðsynlegt sé fyrir nefndina að fá að heyra frá þessum hópum og fá ábendingar frá þeim. En ég vil ítreka að marktæk úrræði fyrir þá sem lenda í þessum málum skipta öllu máli.