Almenn hegningarlög
Föstudaginn 23. mars 1990


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Hæstv. forseti. Ég þakka hv. 6. þm. Reykn. og hv. 6. þm. Reykv. fyrir þær yfirgripsmiklu ræður sem þessir hv. þm. hafa flutt hér um þetta mál.
    Ég mun ekki lengja umræðuna. Fyrst vil ég geta þess að ég get því miður ekki svarað fyrirspurn hv. 6. þm. Reykn. að neinu marki, um hröðun afgreiðslu dómsmála á þessu sviði eða það sem út úr úrvinnslu afbrotaskýrslna hefur komið, en ég mun kynna mér það innan tíðar og væntanlega þá koma því svari á framfæri.
    Að öðru leyti vil ég aðeins segja þetta: Það er rétt sem hér hefur komið fram, að frv. er tiltölulega seint fram komið en það kemur fram nákvæmlega eins og á sl. ári og í sömu deild. Það finnst mér gefa tilefni til að vona að málið nái fram á þessu þingi, þannig að tekið verði til að vinna að því þar sem frá var horfið í fyrra, sérstaklega vegna þess að hér er, eins og rækilega hefur komið fram í þessari umræðu, einungis um að ræða fyrsta skref af mörgum sem þarf að stíga nær samtímis í þessum mikilsverða málaflokki.
    Ég býst við að koma hingað inn í þingið eftir fáa daga frumvarpi um breytingu á lögum um meðferð opinberra mála sem snertir þetta og önnur afgreiðsluatriði sem bar á góma við svör fyrirspurna í sameinuðu þingi fyrir fáum dögum eru einnig í burðarlið. Og ég bind við það vonir að allt þetta saman stefni í sömu átt og niðurstaða verði árangursrík innan tíðar.