Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á bifreiðagjaldi. Það frv. kemur hér til hv. efri deildar í nokkuð breyttri mynd frá því sem það birtist í neðri deild. Frv. í núverandi búningi var hins vegar afgreitt frá neðri deild sl. þriðjudag í 2. og 3. umr.
Sú breyting sem gerð hefur verið á frv. tengist því að í tengslum við nýgerða kjarasamninga lýsti ríkisstjórnin því yfir að hún mundi beita sér fyrir þeim breytingum á sköttum, gjöldum og gjaldskrá opinberra fyrirtækja sem fyrir hefur verið sem samsvaraði 0,3% lækkun á mælikvarða framfærsluvísitölu. Eftir óformlegar viðræður við fulltrúa aðila vinnumarkaðarins var ákveðið að breyta bifreiðagjaldinu sem lið í þessum aðgerðum á þann hátt að í fyrsta lagi var horfið frá þeirri 83% hækkun sem áformuð var 1. mars, í öðru lagi að álagningu gjaldsins verði breytt þannig að það verði áfram föst krónutala upp að 1000 kílóum en fyrir hvert umframkíló komi 50% álag. Áfram verði hámarksgjald fyrir þyngstu bílana. Í þriðja lagi að grunngjaldið, þ.e. upp í 1000 kíló, hækki um 20% 1. apríl, eða úr 2,83 kr. í 3,40 kr. Í fjórða lagi að gjaldið hækki um 15% 1. okt., úr 3,40 kr. í 3,91 kr. pr. kíló.
Að teknu tilliti til 50% álags svarar þessi breyting á bifreiðagjaldinu til um 30% hækkunar að meðaltali fyrir alla bíla, bæði fyrir einkabíla og atvinnubíla. ( HBl: Hvað sagðist ráðherrann hafa lækkað framfærsluvísitöluna 1. mars? Það varð enginn var við þá lækkun.) Ég sagði það ekki, hv. þm. Það er einhver misheyrn hjá hv. þm. Ég var eingöngu að vísa í það að miðað við þann búning sem var á lögunum og frv. í neðri deild var horfið frá þeirri 83% hækkun sem áformuð var 1. mars.
Þær breytingar sem ég hef hér gert ráð fyrir þýða að bifreiðagjaldið mun hækka í kringum 50% á árinu, en í forsendum fjárlaga var reiknað með 98% hækkun. Að öllu samanlögðu svara þær breytingar á bifreiðagjaldinu, sem ég hef gert grein fyrir, frá því sem áformað var í fjárlögum, og sú breyting sem gerð var á bensíngjaldinu til 0,3% lækkunar á framfærsluvísitölu miðað við forsendur fjárlaga. Þá má einnig upplýsa að ákveðið var að afturkalla 8% hækkun á þungaskatti frá síðustu áramótum og jafnframt að draga úr fyrirhugaðri hækkun 1. júlí þannig að hún verði 6% í stað 9%.
Með þessu tvennu er staðið við þau fyrirheit sem ríkisstjórnin gaf aðilum vinnumarkaðarins í nýgerðum kjarasamningum og vil ég í því sambandi vekja athygli á bréfi frá forseta Alþýðusambands Íslands til formanns fjh.- og viðskn. neðri deildar sem kom fram í þingtíðindum í neðri deild í síðustu viku.
Ég legg svo til, virðulegur forseti, að að lokinni 1. umr. verði frv. vísað til hv. fjh.- og viðskn.