Jóhann Einvarðsson:
Hæstv. forseti. Ég tek undir með hæstv. fjmrh. að ég tel að hér sé hreyft merku máli og brýnu þó það megi út af fyrir sig finna einhver atriði í því frv. sem mættu fara betur en fram kemur hjá flm. Ég tel samt útilokað að þetta frv. eða lagasetning um ársreikninga og endurskoðun lífeyrissjóða bíði eftir endanlegri afgreiðslu þingsins á hinu stóra lífeyrissjóðafrv. sem er væntanlegt næstu daga til þessarar deildar. Ég tek undir með flm., það er ekki af neinni tortryggni við lífeyrissjóðina um að þeir annist ekki fjárvörslu vel yfirleitt. Ég tel að það eigi að vera skýrar og klárar reglur um það hvernig ársreikningar eru og endurskoðun sjóðanna fer fram. Það er eins og fram kom hjá hv. flm. að sennilega eru lífeyrissjóðirnir, en rúmlega 100 lífeyrissjóðir eru starfandi í landinu, hvað eignir og ráðstöfunarfé áhrærir hugsanlega sterkari en allt bankakerfið samanlagt og auðvitað ber brýna nauðsyn til að allir hlutir séu þar í besta lagi og hafnir yfir alla tortryggni eða efasemdir um að reikningsfærsla sé rétt og skilmerkileg, sem ég efast ekki um að er í langflestum tilfellum. Þess vegna mun ég gera mitt til þess að greiða götu þessa frv. eftir því sem kostur er í þeirri nefnd sem ég á sæti í.
Það eru tvö atriði sem ég vildi aðeins minnast á. Í fyrsta lagi held ég að taka ætti skýrt fram í 1. gr. að Seðlabanka Íslands, bankaeftirlitinu, sé falið að gera þetta. Það er bankaeftirlitið sem fer með eftirlit með bankastofnunum og fjármálasjóðum þjóðarinnar og það er eðlilegt að það sé skýrt tekið fram að þetta sé þess verkefni. Í öðru lagi, svona til ábendingar, held ég að það hafi nú orðið --- ég veit ekki hvort maður á að segja prentvilla, smáskyssa kannski í næstsíðustu málsgrein 3. gr. þar sem segir: ,,Skoðunarmönnum er skylt að veita lífeyrissjóðaeftirlitinu ...``
en þar á auðvitað að standa Seðlabankanum eða bankaeftirlitinu.
Að öðru leyti tek ég undir megintilgang frv. og mun gera mitt til þess að greiða götu þess í þeirri nefnd sem ég á sæti í.