Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Ég er þeirrar skoðunar að það megi aldrei misnota þingsköp með því að biðja um orðið til þess að bera af sér sakir ef menn hafa ekki sakir af sér að bera. Tilefni mitt er það að hv. 3. þm. Vesturl., sem hafði uppi tilburði til þess að svara því efnislega sem ég hafði áður sagt, sá að hans málstaður var svo vonlaus að hann greip til þess að bera á mig sakir, þær sakir að ég hefði ekki hagað mér 17. apríl 1986 í samræmi við hegðun mína 22. mars 1990. Og hann gerði grein fyrir því í hverju þetta lægi, að 1986 hefðu forsetar Alþingis og formenn stjórnmálaflokka borið fram þáltill. um kristnitökuafmælið og þar hefði ég lagt til að sú þáltill. færi ekki til nefndar. En í gær hefði ég lagt til að þáltill., sem varðaði sama efni eða 1000 ára afmæli kristnitökunnar, færi til nefndar.
Þetta er rétt. En sá grundvallarmunur er á því sem skeði 1986 og því sem skeði í gær að 1986 var engin athugasemd gerð við það að málið færi ekki í nefnd, enginn ágreiningur var í þinginu. Í gær var gerð athugasemd við tillöguna og gerð tillaga um að hún gengi til nefndar. Og ég vil segja að það eru óhæf vinnubrögð ef tillögu eða þingmáli er ekki vísað til nefndar ef eftir því er óskað. Þess vegna var mín afstaða í gær rétt og í samræmi við þingsköp og þingvenjur en afstaða hæstv. forseta Sþ. var ekki rétt. En þingheimur sá við þessu og samþykkti þá tillögu sem ég lagði til.