Jón Kristjánsson:
Herra forseti. Ég vil þakka fyrir að þetta frv. er komið fram. Ég tel að hér sé um merkt mál að ræða og ég átti einmitt hlut að þeirri þáltill. sem þetta frv. er framhald af. Það var hljótt um hana á sínum tíma en eftir henni var unnið og þetta frv. er árangur af þeirri vinnu.
Ég er þeirrar skoðunar að auðvitað eigi að hafa allan vara á um innflutning dýra og erfðaefnis. Hins vegar er þetta nauðsynlegur þáttur í því að auka samkeppnishæfni íslensks landbúnaðar. Og ef svo er þá er vel því menn verða að leita allra leiða í því efni. Þetta mál hefur komið upp í umræðum nýverið varðandi samkeppnishæfni landbúnaðar á Íslandi, t.d. hvað varðar eggja- og kjúklingaframleiðslu. Því er nauðsynlegt að huga sem best að nýjungum í þeim efnum.
Ég vil lýsa ánægju minni með að þetta frv. er komið fram þó nokkuð sé um liðið síðan þessi mál voru til umræðu hér á hv. Alþingi síðast. Ég vona að frv. verði að lögum hér á Alþingi innan tíðar.