Forseti (Árni Gunnarsson):
    Forseti vill taka það fram að í kvöld er árshátíð starfsfólks Alþingis. Þess vegna var fyrirhugað að reyna að ljúka fundi hér um kl. 3. Það hefur dregist úr hömlu að ljúka þessum fundi. Forseti vill endilega standa við það að fundi ljúki snemma svo að fólk komist heim til að undirbúa sig fyrir þessa skemmtan og mælist til þess við hv. þm. að þeir reyni nú að stytta mál sitt.