Geir H. Haarde:
Herra forseti. Ég tel óhjákvæmilegt úr því sem komið er að þessari umræðu verði frestað. Hér hafa komið fram sakir og gagnsakir af hálfu stjórnarliðsins um atriði úr þessu frv. sem óhjákvæmilegt er að ræða í mun betra tómi hér í hv. deild. Ég skal ekki hafa þetta mál lengra, en ég óska eftir því að gefið verði færi á því að ræða þetta mál á næsta fundi deildarinnar hvenær sem hann verður.