Geir H. Haarde:
    Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til annars en að verða við þessari ósk. Ég met mikils gott samstarf við forseta og fyrst hann leggur þetta mat á málið í ljósi þeirra umræðna sem hér hafa farið fram þá skal ég fúslega verða við því.