Tilhögun þingfunda
Mánudaginn 26. mars 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Hv. þm. til upplýsingar skal á það minnt að að aflokinni afgreiðslu 1. dagskrármáls hefur verið leyfð hálftíma umræða um njósnakerfi á vegum öryggisþjónustu Bandaríkjanna á Íslandi. Umræðan fer fram að beiðni hv. 2. þm. Austurl. og fer fram skv. fyrri mgr. 32. gr. þingskapalaga.