Karl Steinar Guðnason:
    Virðulegur forseti. Mér er í fersku minni þegar fyrir nokkrum árum var gerð atlaga að minningu Stefáns Jóhanns Stefánssonar með rætnum tilgátum um óþjóðhollustu hans við íslenskan málstað og haft eftir erlendum fréttariturum. Það reyndist fleipur eitt. Nú er enn þá hlaupið eftir erlendum fréttariturum og erlendum upplýsingum og það tekið upp hér á Alþingi.
    Ég spyr: Dettur nokkrum heilvita manni í hug að þar sem herstöð er séu ekki stundaðar einhvers konar njósnir og upplýsingastarfsemi? Dettur nokkrum manni það í hug að varnarlið eða herstöð standi í stykki sínu ef hún sinnir ekki slíkum málum? Ég held að svo sé ekki. Og ég held að það sé óþarfi fyrir utanrrh. að vera að leita upplýsinga um slíka hluti. Sannleikurinn er sá að það má gera ráð fyrir þessu og ég tel að tilvist okkar í Atlantshafsbandalaginu, sú staðreynd að við höfum varnarlið hér í landinu, geri það að verkum að við gerum kröfu til þess að varnarliðið sinni á allan hátt því hlutverki sem það hefur að gegna, þ.e. að gæta öryggishagsmuna okkar í hvívetna. Það hefur tekist til þessa og ég vænti þess að svo verði áfram. Ég tel einmitt að tilvist varnarliðsins hér og aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu hafi gert það m.a. að verkum að við höfum lifað í friði hér í 40 ár. Tilvist Atlantshafsbandalagsins hefur fyrst og fremst orðið til þess að nú stendur kommúnisminn ber að þeirri kúgun sem öllum er ljóst að fyrir hendi er.