Hreggviður Jónsson:
    Hæstv. forseti. Það er ekkert nýtt að ákveðnir stjórnmálamenn séu eins og hlaupakettir á eftir hvers konar fréttum ef þær eru í þá veru að hægt sé að klína á Bandaríkjamenn einhverju ljótu. Þessi utandagskrárumræða er byggð á óljósum fréttum og því miður hafa fréttamenn Ríkisútvarpsins oft og tíðum flutt frekar óábyggilegar fréttir á ýmsum sviðum. Þar að auki liggur ekkert fyrir að um neina njósnastöð sé að ræða. Við vitum að þarna er hlustunarstöð í sambandi við hernað og höfum vitað það í fjölda ára. Og þessi umræða gengur náttúrlega í þá veru að maður er undrandi. Ég ætla að taka undir það sem hv. 3. þm. Vesturl. sagði hér áðan og minna á þá umræðu sem hér varð fyrir nokkrum árum um þessi mál á svipuðum grundvelli þegar Ríkisútvarpið flutti eina af þessum ábyggilegu fréttum sínum. Og í öðru lagi vil ég taka undir það sem hv. 1. þm. Suðurl. kom hér inn á áðan, það hefði verið meiri reisn fyrir Alþingi Íslendinga að ræða málin fyrir botni Eystrasalts. ( SJS: Bannar einhver að gera það?) Það hefði verið meiri reisn. ( SJS: Af hverju gerið þið það þá ekki?) Það má vel vera að svo verði, hæstv. ráðherra. Ég held að það væri tími til kominn að menn líti sér nær og líti á staðreyndirnar eins og þær liggja fyrir, líti á það hvort nauðsyn er að ræða um hlutina en ekki um slíkan hégóma eins og hér hefur verið tekið upp.