Jóhann Einvarðsson:
Hæstv. forseti. Út af þessari umræðu sem fer hér fram í dag um njósnastarfsemi á Keflavíkurflugvelli held ég að menn verði nú að átta sig á því að við erum búin að vera meðlimir í NATO í 40 ár. Að vera meðlimur í varnarbandalagi eins og NATO hlýtur að krefjast þess að við fylgjumst vel með og leyfum að fylgjast vel með því sem fer fram í höfunum í kringum okkur og í loftunum fyrir ofan okkur.
Ég hef enga trú á því að persónunjósnir fari fram á Keflavíkurflugvelli. Út af fyrir sig finnst mér ekkert athugavert við það að hæstv. utanrrh. láti kanna það og fái nánari upplýsingar um starfsemi einhverra ákveðinna stofnana hér á landi. En ég óska þá eftir því að hann kanni þá líka hvað er að ske hér uppi á Túngötu. Þar er rekið stærsta sendiráðið hér á landi. Og hefur þó helmingi minni viðskipti við okkur að ýmsu leyti en nokkurn tímann bandaríska sendiráðið. Hvað eru þeir að gera þarna? Það er ekki einu sinni svo að það séu ráðnir íslenskir starfsmenn þangað. Það er svo lokað að Íslendingar fá ekki einu sinni að vaska upp þar á kvöldin. Eitthvað er nú leyndardómsfullt sem þar skeður. Ég held því að ef á að fara að kanna hvað skeður innan þess varnarbandalags sem við tökum þátt í, fylgjast með þeirri umferð sem hér er í kringum okkur vegna öryggismála þjóðarinnar, þá sé full ástæða til þess að kanna hvað fer fram þar uppi á Túngötu. Ég held að það séu fleiri atriði sem má nefna um þetta en tíminn er takmarkaður hérna núna. Við ættum kannski að taka síðari umræðu um það þegar rædd verður skýrsla um utanríkismál sem utanrrh. flytur hér í lok vikunnar.