Guðrún Agnarsdóttir:
    Hæstv. forseti. Ég vil taka hér til máls vegna þess að ég undrast það hvernig þessi umræða hefur þróast.
    Í fyrsta lagi er hér um að ræða frétt í bandaríska dagblaðinu Washington Post sem hingað til hefur verið álitinn einn af ábyrgum fjölmiðlum í Bandaríkjunum. Útvarpspistillinn fjallaði um grein í þessu dagblaði. Ég tel engan vafa á því að slík grein gefur tilefni til þess að við þingmenn, eins og aðrir Íslendingar, hugum að því hvort einhver fótur geti verið fyrir því sem þar stendur.
    Í öðru lagi kom fram í máli hæstv. fjmrh., að hér er um að ræða stofnun sem rekur persónunjósnir eða borgaralegar njósnir. Þær geta ekki talist til athafna herstöðva. Þess vegna er mjög rík ástæða til þess að íhuga þetta enn frekar.
    Í þriðja lagi vildi ég spyrja að því: Hvaða tök á varnarmáladeild utanríkisráðuneytisins í raun og veru, og þar með íslensk stjórnvöld, á því að ganga úr skugga um að jafnheimuleg starfsemi sé rekin hér eða ekki? Munu þeir taka neitun gilda sem svar?
    Í fjórða lagi, vegna þess sem fram kom í umræðunni, það er auðvitað fyllsta ástæða fyrir Alþingi Íslendinga að hafa mjög miklar áhyggjur af þróun mála í Austur-Evrópu og þá sérstaklega í Litáen undanfarna daga. Og það er enginn sem bannar hv. þm. að hefja umræðu um það hér á þinginu.