Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegi forseti. Vegna orða 1. þm. Suðurl. Þorsteins Pálssonar vil ég ítreka það að ríkisstjórn Íslands hefur haft miklar áhyggjur af þróun mála í lýðveldunum sem eru að berjast fyrir sjálfstæði sínu við Eystrasalt. Ég vænti þess að hv. þm. sé kunnugt um það að utanrrh. hafði forgöngu um það í síðustu viku að send var sérstök orðsending frá ríkisstjórn Íslands til utanríkisráðherra Sovétríkjanna og annarra ráðamanna til þess að vara eindregið við því að hernaðarlegu ofbeldi væri beitt gagnvart sjálfstæðishreyfingum þessara lýðvelda. ( ÞP: Telur ráðherrann að nóg sé að gert?) Nei, ég tel ekki að nóg sé að gert. En það hefði hins vegar verið vel við hæfi ef þingmenn, þar með talinn hv. 1. þm. Suðurl., hefðu beitt sér fyrir því að umræða yrði hér utan dagskrár á Alþingi um það mál. En það gerði hv. 1. þm. Suðurl. ekki. Hv. 1. þm. Suðurl. taldi þess vegna að það væri nóg að gert. ( Forseti: Má ég benda á hvað hér er á dagskrá.) Já, það er rétt, virðulegi forseti. Ég taldi hins vegar nauðsynlegt vegna þessara orða hv. 1. þm. Suðurl. að ítreka það sem hefur verið gert af hálfu ríkisstjórnarinnar og sem við höfum tekið fullan þátt í. Sé það vilji þingmannsins eða annarra að hér fari fram ítarlegar umræður um þessa þróun, þá stendur ekki á okkur í þeim efnum.
    Ég vil svo bara undirstrika það, vegna þess misskilnings sem fram kemur í umræðunni, að sú njósnastofnun bandrísk sem gerð er að umtalsefni í þessari frétt er ekki með neinum hætti tengd Atlantshafsbandalaginu. Hún er ekki í neinum formlegum eða óformlegum tengslum við Atlantshafsbandalagið og er þess vegna ekki á neinn hátt hluti af því varnarkerfi sem Ísland hefur tengst.