Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Virðulegi forseti. Það er óhjákvæmilegt vegna fyrirspurnar hv. 1. þm. Suðurl. um það hverjar kveðjur Alþingi eða Íslendingar og íslensk stjórnvöld sendu Litáum þessa stundina að taka skýrt fram eftirfarandi:
Fyrir hönd íslensku ríkisstjórnarinnar sendi ég orðsendingu beint til utanríkisráðherra Sovétríkjanna með áskorun um það að því væri heitið af hálfu Sovétríkjanna að beita ekki vopnavaldi í þessum samskiptum og að setjast þegar í stað að samningaborði til þess að ræða við rétt kjörin stjórnvöld í Litáen um framkvæmd á sjálfstæðisyfirlýsingu Litáa. Þetta gerðum við fyrstir þjóða á Vesturlöndum. Ég hef fengið orðsendingu frá Landsbergis, forsvarsmanni Litáa, þar sem hann þakkar alveg sérstaklega fyrir þetta frumkvæði íslenskra stjórnvalda.
Í annan stað vil ég taka það fram að á nýloknum fundi á vegum Evrópuráðsins í Lissabon urðum við einnig fyrstir manna til þess að taka þetta mál upp með mjög afdráttarlausum hætti. Við fengum þau svör frá sovéska fulltrúanum sem þar var staddur að hann áréttaði þá yfirlýsingu sovéskra stjórnvalda að undir engum kringumstæðum mundi verða beitt vopnavaldi í þessum samskiptum. Íslendingar hafa í þessu máli gengið fram fyrir skjöldu og gengið lengra en aðrar ríkisstjórnir á Vesturlöndum.
Virðulegi forseti. Þetta varðar það mál sérstaklega sem hér er á dagskrá. Við skulum gera greinarmun á því hvort hér er um að ræða svokallaða eftirlitsstarfsemi á vegum varnarstöðvar Atlantshafsbandalagsins eða eitthvað sem geti flokkast undir njósnastarfsemi. Ef spurt er: Hvernig hyggjast íslensk stjórnvöld ganga úr skugga um það hvort hér séu stundaðar njósnir eða ekki? þá byggist það að sjálfsögðu fyrst og fremst á því að rannsaka þann búnað sem hér er fyrir hendi. Ég vek athygli á því, og það er rétt sem fram kom í máli hv. þm. Jóhanns Einvarðssonar, að samkvæmt fréttinni er því hvergi haldið fram að njósnir séu stundaðar á Íslandi. Það hefur hvergi komið fram í þessari frétt. Tilvera þessa hóps er viðurkennd. En því er hvergi haldið fram að njósnir séu stundaðar á Íslandi. Rannsókn mín mun fyrst og fremst beinast að því hvort einhver sá búnaður sé hér fyrir hendi sem gerir það á annað borð kleift. Við skulum ekki ganga að því gruflandi að ekki dugar að spyrja þann aðila sem hugsanlega er talinn geta stundað njósnir um hvort þær séu stundaðar. Við erum að kanna hvort þessi búnaður sé fyrir hendi.
Það er ástæða til þess að árétta þetta, virðulegi forseti. Þessi frétt út af fyrir sig segir ekki mikið. En það er eitt atriði enn, einmitt að því er varðar þennan búnað. Í fréttinni er því haldið fram að hér á landi séu fyrir hendi svokölluð hlerunarloftnet, AFRD-10. Það er þegar upplýst af hálfu varnarliðsins að þetta hlerunarloftnet er ekki til hér á landi. Ég vek athygli á því að af hálfu forsvarsmanns Pósts og síma var
þeirri skoðun lýst, þótt hann vildi ekki fullyrða það án frekari athugunar, að hann teldi að varnarliðið hefði ekki yfir að ráða þeim búnaði, þ.e. því loftneti, sem gerði því kleift að stunda þá starfsemi sem þarna var skýrt frá.