Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Það er misskilningur hjá hinum ágæta þingmanni Halldóri Blöndal að ég hafi verið að færa rök að því að vegna þess að þingið hefur tekið sér þrjá mánuði til að fjalla um þetta mál megi ekki skoða það atriði hér í Ed. sem hann er að nefna. Ég var eingöngu að vekja athygli á þeirri staðreynd að það hefði ekki staðið á ríkisstjórninni í sjálfu sér í þessu máli því hún lagði þetta frv. fram fyrir tveimur mánuðum síðan. Hins vegar finnst mér sjálfsagt að taka málið til nánari skoðunar fyrst þingmaðurinn hafði ekki tækifæri til þess að mæta í hv. nefnd.
Vil ég nú, virðulegi forseti, fyrir söguna og þær heimildir sem þingtíðindin eru, geta þess að hv. þm. Halldór Blöndal hefur vikið inn í hliðarherbergi og er að tala í símann, --- hefur nú lokið símtali sínu og er genginn í salinn á nýjan leik. Vona ég að hv. þm. hafi numið það sem ég sagði en mér finnst sjálfsagt mál að hann fái tækifæri til að kanna þetta atriði í fjh.- og viðskn. Það er af minni hálfu, sem flutningsmanns málsins, allt í góðu lagi þó það verði tekið fyrir hér aftur á morgun þannig að þingmaðurinn hafi tækifæri til þess að skoða málið og geti lokið símtölum sínum í ró og næði.