Frsm. fjh.- og viðskn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
Herra forseti. Ég mæli ekki fyrir meiri hl. fjh.- og viðskn. heldur fjh.- og viðskn. alla. Nefndin hefur fjallað um þetta frv. sem fjallar um gagnkvæma aðstoð í tollamálum og gengur út á það að Færeyingar verði aðilar að viðkomandi samningi.
Þórhildur Þorleifsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Undir þetta nál. skrifa Guðmundur G. Þórarinsson, Friðrik Sophusson, Matthías Bjarnason, Ragnar Arnalds, Sverrir Sveinsson og Jón Sæmundur Sigurjónsson.