Tekjuskattur og eignarskattur
Þriðjudaginn 27. mars 1990


     Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Friðrik Sophusson):
    Virðulegur forseti. Ég flyt hér framsöguræðu fyrir minni hl. hv. nefndar og þakka hæstv. forseta fyrir að gefa mér tækifæri til þess að flytja þessa ræðu með nál. sem reyndar er ekki mjög langt. Það er þannig orðað, með leyfi forseta:
    ,,Minni hluti leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.``
    Undir þetta nál. ritar ásamt mér hv. 1. þm. Vestf. Matthías Bjarnason.
    Ég vil byrja á því, virðulegi forseti, að þakka núverandi starfandi formanni hv. nefndar fyrir að hafa tekið þetta mál fyrir í nefndinni og afgreitt það. Ég tel það til fyrirmyndar því hér er um að ræða mjög mikilvægt mál. Jafnvel þótt það hafi fengið afgreiðslu fyrr á þessu þingi var sú afgreiðsla ekki eins og best hefði verið á kosið, horft frá þeim sem eru flm. þess frv. sem hér er til umræðu.
    Til þess að rifja upp í örfáum atriðum út á hvað þetta frv. gengur er frá því að segja að lagt er til í frv. að eignarskattur yrði greiddur með sama hætti og var fyrir þá breytingu sem gerð var rétt fyrir jól 1988 og gilti fyrir álagningu á sl. ári miðað við tekjur ársins á undan. Það þarf ekki að rifja það upp fyrir hv. þm. að eignarskattar voru stórkostlega hækkaðir á síðasta þingi, svo mikið að upp reis hópur fólks og mótmælti þessari skattpíningu. Hún hlaut að koma mjög misjafnlega niður á fólki og þá sérstaklega á þeim sem eru einir í heimili. Einkum var þetta tilfinnanlegt fyrir ekkjur og ekkla sem misst höfðu maka sinn nýlega og bjuggu af þeim sökum kannski í stærra húsnæði en hefði verið ef þeir hefðu verið einstæðir um langan tíma.
    Það er alkunna að húsnæði fólks er með þeim hætti að viss hluti húsnæðisins þarf að vera fyrir hendi hvort sem um er að ræða einstaklinga eða heilar fjölskyldur, svo sem baðherbergi, eldhús og annað, og skiptir þá ekki
máli hve margir búa í viðkomandi húsnæði. Hins vegar er skattálagningin með þeim hætti að frádrátturinn tvöfaldast ef um hjón eða sambýlisfólk er að ræða. Eftir þessa skattaherferð hæstv. ríkisstjórnar, sem átti sér stað á síðasta þingi, gerðist það í meðferð málsins að stjórnarfrv. sem þá lá fyrir var breytt lítillega þannig að tekið var tillit til fyrstu áranna eftir að viðkomandi missti maka sinn. Enn fremur var frádráttarheimildin eða frádrátturinn að nokkru aukinn. Þrátt fyrir þetta var um að ræða í langflestum tilvikum gífurlega hækkun á eignarskatti.
    Þegar rætt er um eignarskatt verða menn að átta sig á því að eignarskattar eru greiddir af tekjum, því að í mörgum tilvikum er engar tekjur að hafa af eignum fólks, allra síst eignum sem eru bundnar í íbúðarhúsnæði. Á þeim tíma fluttu þingmenn Sjálfstfl. brtt. sem gekk út á það að skatthlutfallið yrði það sama og verið hafði áður. Sú tillaga var felld og reyndar voru slíkar tillögur einnig felldar fyrr á þessu þingi. En þess ber að geta að hæstv. ríkisstjórn gerði

ákveðnar breytingar á lögunum nú á þessu þingi þegar í ljós hafði komið, eins og ég hafði fyrr sagt í mínu máli, að skattpíningin hafði leitt til þess að nánast lá við uppreisn í þjóðfélaginu.
    Sé litið á gildandi lög er nú greiddur eignarskattur, 1,2%, af fyrstu 5.175.000 kr. Síðan bætast við 0,75% sem leggst ofan á þær eignir sem umfram eru, þannig að skatthlutfallið verður 1,95% af hreinni eign skattgreiðanda sem er yfir 5.175.000 kr. Til að skýra út hvaða þýðingu þetta hefur er hægt að vitna í raunverulegt dæmi. Við getum tekið dæmi um einstakling, ekkju sem býr í þriggja til fjögurra herbergja góðri íbúð sem er 111 fermetrar með bílskýli. Viðkomandi á bifreið og er þá eignarskattsstofninn 8.660.000 kr. Skattfrelsi viðkomandi einstaklings er 2.875.000 kr. þannig að eignarskattsstofninn er 5.785.000 kr. Síðan leggst 1,2% eignarskattur á 5.175.000 kr. og að auki leggst 1,95% á 610 þús. kr. Þetta gerir samtals tæplega 74 þús. kr. og hefur þá skatturinn lækkað um 4500 kr. frá því sem hann hefði verið ef þau lög væru enn í gildi sem hæstv. ríkisstjórn setti á þinginu fyrir ári síðan. Væri hins vegar farið að þeirri tillögu sem kemur fram í því frv. sem hér er til umræðu hefði eignarskatturinn af þessari íbúð orðið 55 þús. kr. Ég vel þetta dæmi vegna þess að hér er um að ræða mjög litla eign, litla íbúð. Hér er ekki um að ræða einbýlishús eða stóra eign heldur aðeins þriggja til fjögurra herbergja góða 111 fermetra íbúð. Eins og sjá má er munurinn umtalsverður, ekki síst ef haft er í huga að í mörgum tilvikum er um tekjulágt fólk að ræða.
    Virðulegur forseti. Það ber þó að geta þess að síðara þrepið, hærra eignarskattsþrepið, tekur breytingum eftir tekjum fólks þannig að skatturinn leggst að fullu á þá sem hafa 1680 þús. kr. tekjuskattsstofn en þurrkast út ef tekjur fara niður úr 840 þús. kr. Þrátt fyrir þessa breytingu sem gerð var á tekju- og eignarskattslögunum að tilhlutan hæstv. ríkisstjórnar fyrir síðustu jól er ljóst að enn er um að ræða mjög ósanngjarna og háa skattlagningu á fólk sem býr eitt og sér, ekki síst það fólk sem hefur misst maka sinn og býr þar af leiðandi í stærra húsnæði en ella.
    Það er ástæðulaust, virðulegur forseti, fyrir mig að rekja þetta mál frekar.
Mér finnst ástæða til þess að það sé látið á það reyna hvort hv. Alþingi ætlar sér til frambúðar að láta hæstv. ríkisstjórn komast upp með það að leggja eignarskatta á fólk með þessum ósanngjarna hætti. Ég vil ítreka það að eignarskattar taka í eðli sínu mjög lítið tillit til tekna viðkomandi og þess vegna gerist það í mörgum tilvikum sem þekkt eru að viðkomandi einstaklingar þurfa að selja eignir sínar og geta þar af leiðandi lent í talsverðum vandræðum.
    Ég tel ekki ástæðu til þess, virðulegi forseti, að fjölyrða um þetta mál hér frekar en vil ítreka það sem kemur fram í nál. minni hl. hv. fjh.- og viðskn. en þar er lagt til að frv. verði samþykkt óbreytt.