Geir H. Haarde:
Herra forseti. Hér er komið til 2. umr. frv. sem allir hv. þm. Sjálfstfl. í þessari deild fluttu hér í deildinni á síðasta hausti. Ég vil byrja á því, herra forseti, að þakka starfandi formanni hv. fjh.- og viðskn. fyrir að afgreiða málið þó að meiri hluti nefndarinnar hafi að vísu ekki afgreitt það með þeim hætti sem flm. hefðu helst óskað. Aðalatriðið er samt það að hv. starfandi formaður nefndarinnar, Jón Sæmundur Sigurjónsson, 5. þm. Norðurl. v., hefur tekið upp breytta starfshætti í þessari nefnd og fagna ég því. Vil ég þakka honum sérstaklega fyrir það. Um leið vil ég láta þess getið að ég hef ekki hugsað mér að níðast á þingtímanum hér með langri ræðu, þó svo að þetta frv. sé komið á dagskrá á nýjan leik og fyllsta ástæða til þess að ræða það vel og lengi. Ég ætla ekki að misnota þennan möguleika sem hér gefst til þess að ræða þetta mál að nýju.
Frá því þetta frv. var lagt fram í fyrra hefur ríkisstjórnin beitt sér fyrir nokkrum breytingum á því atriði skattalaga sem þetta frv. varðar, þ.e. 83. gr. laganna sem lýtur að eignarskatti manna. Því fer hins vegar víðs fjarri að þær breytingar séu fullnægjandi fyrir flm. þessa frv. Þær breytingar ganga alls ekki nægilega langt í því að afturkalla þær gríðarlegu hækkanir sem ríkisstjórnin beitti sér fyrir fyrir jólin 1988 og sem komu til framkvæmda á sl. sumri, 1989, með afleiðingum sem í mörgum tilfellum voru hinar hörmulegustu, ekki síst fyrir einstæðinga, ekkjur og ekkla.
Ríkisstjórnin hefur viðurkennt, með þeirri breytingu sem hún beitti sér fyrir fyrr á þessu þingi, að álagningin 1989 og lögin sem samþykkt voru fyrir jól 1988 voru mistök, voru hin herfilegustu mistök. Með ekknaskattinum svokallaða var ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur og tekin upp gríðarlega ranglát skattlagning eins og margsinnis hefur verið sýnt fram á, eins og sýnt er fram á í grg. þess frv. sem nú er til umræðu og í minnihlutaáliti frá fjh.- og viðskn. með skattalagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir síðustu jól.
Ríkisstjórnin neyddist til þess að taka undir gagnrýni á þessa lagasetningu með því að beita sér fyrir breytingum í þessu efni. Breytingarnar eru hins vegar ófullkomnar og eftir stendur það, herra forseti, að lögaðilar greiða lægri skatta en einstaklingar, félög borga lægri eignarskatta en menn. Félögin og fyrirtækin í landinu, sem hafa gjarnan þótt digur skattstofn og breið bök til að borga skatta þegar vinstri menn hafa verið annars vegar, borga lægri eignarskatta en hinn almenni borgari, hinn almenni einstaklingur í landinu, ekkjan, einstæðingurinn, og aðrir sem greiða þurfa eignarskatta. Þetta er félagshyggjan í reynd hjá þessari ríkisstjórn. Skattprósentan á fyrirtæki verður aldrei hærri en 1,2% samkvæmt þeim lögum sem þessi ríkisstjórn hefur samþykkt en getur orðið mun hærri, allt að því 2,2%, á einstaklinga. Þetta er auðvitað fáránlegt og eitt af því sem verður að breyta þótt síðar verði, eitt af því sem safnast hefur fyrir í þeim slóða mistaka og
ranginda í skattamálum sem þessi stjórn hefur beitt sér fyrir. Fingraför vinstri mannanna eru út um allt í þeim skattalögum sem nú gilda, eða réttara sagt hófaför út um öll þessi skattalög sem óhjákvæmilegt er að breyta þótt síðar verði.
Auðvitað þýðir þessi staðreynd, að félögin borga lægri eignarskatta en einstaklingar, það að menn sjá sér hag í því að breyta eignarhaldi yfir í félagsform. Skattalögin eiga að vera hlutlaus gagnvart eignarhaldsformi og félagaformi. Þau eiga hvorki að hvetja menn til þess að stofna félög eða stofna þau ekki. En það er ekki von að núverandi hæstv. ráðamenn átti sig á því, sem hvað eftir annað beita sér fyrir ákvæðum í þessum lögum sem hafa hin og þessi óæskileg áhrif og eru afturvirk ef þeim sýnist svo. Eins og til að mynda ákvæði í lögunum sem ég ræddi áðan, sem samþykkt voru hér fyrir síðustu jól um breytingar á skattalögum og hafa afturvirk áhrif, bæði að því er varða húsnæðisbætur og skilgreiningu á því hvað kalla megi vaxtagjöld í skilningi skattalaga. Við höfum hér nokkrir þingmenn flutt frv. um að breyta þessum ákvæðum og ég skal ekki koma að þeim frekar á þessu stigi, mun gera það þegar það frv. kemur til meðferðar en þar er gott dæmi um þá áráttu sem virðist vera gjörsamlega ólæknanleg þegar vinstri menn eru annars vegar, að það virðist vera stefna þeirra hreint og beint, þvert á ákvæði stjórnarskrár, að beita skattalögunum afturvirkt hvenær sem þess er kostur. Ég kem nánar að því, herra forseti, þegar það frv. verður hér til umfjöllunar.
En varðandi þetta mál sem nú er á dagskrá og sem minni hl. nefndar leggur til að verði samþykkt er rétt að geta þess, að verði frávísunartillaga meiri hl. nefndarinnar felld er óhjákvæmilegt að gera brtt. við 3. umr. um að hækka viðmiðunarfjárhæðirnar í 1. gr. frv. vegna þess að þær eru miðaðar við skattalögin eins og þau voru á síðasta ári, þ.e. áður en hækkanir með tilliti til fasteignamats komu inn í lögin. Þess vegna eru tölurnar sem við er miðað, 2,5 millj., úreltar. Ef það færi svo ólíklega að þetta frv. kæmi til 3. umr. vil ég hér með boða það fyrir hönd flm. að þá verður flutt brtt. til þess að bæta hér úr og breyta þessum tölum til samræmis við núgildandi lagaákvæði og
við þær hækkanir sem orðið hafa á fasteignamati. Eins og fram kemur í gildandi lögum er talan 2,5 millj. nú orðin 2 millj. 875 þús. kr. og teldi ég rétt að miða við þá upphæð ef til þess kæmi.
Ég lofaði því, herra forseti, að hafa ekki langt mál um þetta og skal standa við það. Að endingu vil ég endurtaka þakkir mínar til starfandi formanns fjh.- og viðskn. fyrir að hafa beitt sér fyrir því að málið fengist afgreitt og það kemur þá einfaldlega hér til atkvæða í hv. deild. Ef það er fellt eða vísað til ríkisstjórnarinnar nær þetta ekkert lengra. En þar með er komin þingleg niðurstaða í málið og þannig á það auðvitað að vera. Það er að sjálfsögðu til fyrirmyndar þegar nefndaformenn beita sér fyrir slíkri afgreiðslu.