Tekjuskattur og eignarskattur
Þriðjudaginn 27. mars 1990


     Ragnhildur Helgadóttir:
    Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Það var mér sérstakt tilefni til þess að biðja um orðið þegar ég heyrði talsmann Kvennalistans í þessu máli, hv. 18. þm. Reykv., skýra frá því að þingmenn Kvennalistans hygðust sitja hjá um þetta frv.
    Mig undrar það stórlega að skref í áttina til réttlætis einmitt á þessu sviði skuli ekki fá stuðning kvennalistakvenna. Fyrir því eru e.t.v. sömu rökin og voru fyrir því að Kvennalistinn stuðlaði að því með sinni afstöðu eða afstöðuleysi að þetta óréttlæti komst á fyrir atbeina þessarar hæstv. ríkiksstjórnar. Kvennalistakonur höfðu lýst því yfir að þær mundu styðja alla réttláta skattlagningu. Með öðrum orðum, niðurstaða þeirrar afstöðu varð sú að þetta hefði verið réttlát skattlagning.
    Ég leyfi mér að láta í ljós þá skoðun að þetta fyrirkomulag á innheimtu eignarskatts sem nú tíðkast að því er varðar einstaklinga sé einhver ljótasti bletturinn á framkomu þessarar hæstv. ríkisstjórnar gagnvart öldruðu fólki í landinu sem fyrirfinnst og samþykkt hefur verið hér á Alþingi. Og er þá mikið sagt því að það ríður því miður ekki við einteyming hve einkennilegt það er að það er eins og hæstv. ríkisstjórn sjái ekki ástæðu til þess að taka hið minnsta tillit til þess hvernig aldrað fólk hefur unnið langan dag og á erfiðara með að koma eignum sínum umsvifalaust í verð til þess að gjalda keisaranum það sem keisarans er. Ég geri ráð fyrir að það sé sú kynslóð sem ekki telur slíkt eftir sér, en hún telur hins vegar að sér sé misboðið þegar henni er sýnt jafnhróplegt óréttlæti og komið hefur fram m.a. í þessari skattheimtu. Svo að minnst sé á annars konar skattheimtu, sem ekki er í þessu frv. en var lögleidd svona í leiðinni, var lætt inn sjúklingaskatti sem leggst á aldrað fólk þegar samþykkt var frv. um málefni aldraðra hér á sl. vori. Ef aldrað fólk leggst á sjúkrastofnun á það allt í einu að fara að greiða sérstakan skatt, sem stundum hefur verið nefndur sjúklingaskattur, eða borga fyrir sig þar sem annað fólk borgar ekki fyrir sig. Svona ráðslag gagnvart hópum sem eru illa settir til þess að bera hönd fyrir höfuð sér tel ég vera andstætt góðu siðferði og andstætt öllu réttlæti. Þess vegna harma ég það að sá gjörvulegi hópur kvenna sem skipar þingflokk Kvennalistans skuli hafa tekið ákvörðun um að sitja hjá við þetta frv. og skuli ekki svo mikið sem lyfta litla fingri til þess að styðja skref í réttlætisátt til hagsbóta fyrir einstæðinga og aldraða.