Tekjuskattur og eignarskattur
Þriðjudaginn 27. mars 1990


     Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Eins og sést á nál. á þskj. 801 skrifa undir það einungis fulltrúar meiri hl. hv. fjh.- og viðskn. Eins og fram hefur komið var fulltrúi Kvennalistans ekki viðstaddur afgreiðslu málsins og fulltrúar Sjálfstfl. hafa ekki skilað nál.
    Að mínu áliti er hér á ferðinni mjög athyglisvert mál. Það er alveg ljóst, eins og kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni, að það fjölskylduform sem hér er verið að tala um er oftast dýrt í rekstri. Einstæðir foreldrar með börn á aldrinum 16--20 ára njóta ekki skattfríðinda eins og ef um hjón eða sambýlisfólk er að ræða og þó er vitað að börn á þessum aldri, unglingar í skóla, eru mjög dýrir í rekstri fyrir foreldrana. Þetta á ekki síst við nú þegar minni líkur eru til þess að fólk í framhaldsskólum fái sumarvinnu eins og áður tíðkaðist jafnvel með þeim hætti að sumarhýran dugði til vetrarnámsins.
    Það er rétt sem kom fram hjá síðasta ræðumanni að sjálfstæðisþingmenn hafa flutt tillögur sem ganga í svipaða átt en þær hafa ekki náð fram að ganga. Þegar rætt er um skattamál, og þó einkum persónuafslátt sem hægt er að nýta af öðrum en þeim sem hefur réttinn til persónuafsláttarins, þarf kannski aðeins að rifja upp að það hefur lengi verið álitamál í umræðunni um skattamál hvort hér skyldi taka upp sérsköttun eða halda áfram á leið samsköttunar. Þegar tekju- og eignarskattslögin voru samþykkt, ef ég man rétt á árinu 1977 eða 1978, var meginstefna laganna að hafa sérsköttun sem kom í staðinn fyrir þá samsköttun sem áður gilti. Hún var í því fólgin að sá sambúðaraðili sem hærri hafði tekjurnar var framteljandi og þurfti ekki að telja fram nema helming tekna hins makans. Því var breytt með þessari nýju löggjöf og meginstefnan í skattalögunum varð sú að leggja skyldi skatta á einstaklinga. Því miður var strax frá upphafi sá galli á gjöf Njarðar að þetta kerfi gekk ekki upp, m.a. vegna þess að frá því var tryggilega gengið í skattalögunum að ef um
eignatekjur var að ræða af eigum þess sem hafði lægri tekjur var honum ekki heimilt að telja þær eignatekjur fram, heldur þurfti sá sem meiri tekjur hafði að leggja þær eignatekjur við sínar tekjur og greiða skatt af sameiginlegum tekjum beggja. Þessi ósanngirni varð til þess að hugmyndir manna um þessa skattlagningu breyttust smám saman. Síðasta og stóra skrefið sem stigið var til breytinga á þessari löggjöf var þegar heimilt var að færa ónýttan persónuafslátt á milli hjóna allt að 80%. Þar með má segja að löggjafinn hafi tekið þá stefnu að líta á tekjuskatta sem nokkurs konar fjölskylduskatta og ber þó að rifja það upp að um það ríkir ekki eining hér á landi. Meira að segja innan þeirra stjórnmálaflokka sem hafa tekið þátt í þessari breytingu hafa verið deilur um það hvort fara ætti sérsköttunarleiðina eða samsköttunarleiðina.
    Sú tillaga sem hér er til umræðu er um að fara lengra í átt til samsköttunar en áður hefur gilt og líta á skattlagninguna fremur sem eins konar fjölskylduskatta en einstaklingsskatta. Má segja að það

sé í hátt við þá breytingu sem varð á skattalögunum þegar nýta mátti ónotaðan persónuafslátt með því að færa frá þeim sem lægri höfðu tekjur yfir til hins sem hærri hafði tekjurnar.
    Það kom fram á nefndarfundi hv. nefndar að fjmrn. telur að verði þetta frv. að lögum muni það kosta ríkissjóð umtalsverðar tekjur. Þess vegna hefur meiri hlutinn, að því er virðist, ákveðið að senda þetta mál til frekari rannsóknar til hæstv. ríkisstjórnar. Í máli hv. síðasta ræðumanns kom fram að flm. sætta sig við þá málsmeðferð og telja að með því sé tryggt að þetta mál verði skoðað til næsta þings og það er ugglaust gert til þess að þá gefist tækifæri til þess að flytja frv. sem gangi í þá átt sem um getur í frv.
    Fyrir mitt leyti vil ég taka undir þessi sjónarmið og lýsa því yfir að þrátt fyrir það að sjálfstæðismennirnir í nefndinni hafi ekki skilað nál., né heldur undirritað nál. meiri hl., munum við ekki standa í vegi fyrir því að þessu máli verði vísað til ríkisstjórnarinnar. Þvert á móti styðjum við það í trausti þess að hæstv. ríkisstjórn kanni þetta mál til hlítar og kanni jafnframt hvort hugsanlegt sé að koma til móts við þau sjónarmið sem fram komu m.a. í þeim frv. sem hv. sjálfstæðismenn hafa flutt fyrr á kjörtímabilinu.
    Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um frv. sem er til umræðu. Það hefði vissulega verið þess virði að ræða nokkuð ítarlega um meginstefnuna í íslenskum skattalögum. Ræða um það hvort eðlilegt sé að hverfa aftur algerlega til sérsköttunar eða hvort fara eigi í átt til fjölskylduskatta. Eins og sakir standa eru íslensk skattalög eins konar bastarður og þess vegna er eðlilegt að hv. alþm. velti fyrir sér hvernig bæta megi núverandi löggjöf þannig að sem mest réttlæti ríki í skattlagningunni.
    Virðulegur forseti. Erindi mitt í ræðustólinn var fyrst og fremst að skýra það hvers vegna þingmenn Sjálfstfl. í fjh.- og viðskn. skiluðu ekki nál. Þeir munu standa að því að frv. verði sent hæstv. ríkisstjórn í þeirri von að hún láti fara fram ítarlega könnun á þessu máli.