Yfirstjórn umhverfismála
Þriðjudaginn 27. mars 1990


     Ingi Björn Albertsson:
    Hæstv. forseti. Það virðist vera fastur liður þegar þetta mál er á dagskrá að ræðurnar hefjist á því að fara þess á leit að hæstv. umhverfisráðherra verði viðstaddur umræðuna og á því er engin breyting nú. Því fer ég þess á leit við hæstv. forseta að hann sjái til þess að hæstv. umhverfisráðherra verði kallaður í salinn. --- Ég skil þögnina, hæstv. forseti, á þá leið að það sé verið að sækja hæstv. umhverfisráðherra. ( Forseti: Já, það er rétt athugað hjá ræðumanni. Ég vænti þess að hans sé ekki langt að bíða.) (Gripið fram í.) Nei, vissulega er mjög gott og traustvekjandi að hafa hv. formann allshn. Nd. í salnum innan um allan skarann af flokksbræðrum hans sem sinna sínum þinglegu skyldum að hefðbundinni venju en við hann á ég ekkert vantalað að sinni þó það verði seinna í ræðu minni. Ég fagna því að hv. formaður sýnir málinu þann áhuga að vilja sitja hér undir umræðunni, enda ber honum að gera það, hygg ég. Eins og hv. formanni allshn. Nd. er ljóst hef ég eytt töluverðum tíma í að fara í umsagnir sem borist hafa nefndinni og hyggst halda áfram við þá iðju nokkra stund. Ég hef þegar getið þess að það eru aðeins valdar umsagnir sem ég hyggst fara yfir og það má kannski skilja það sem svo að hv. formaður nefndarinnar hafi ekki lesið þær og telji sér hentugt að sitja hér og hlusta á þær.
    Í fyrri ræðum mínum, sem ég hef orðið að fresta nokkrum sinnum af mismunandi ástæðum sem ég ætla ekki að fjalla nánar um hér, hef ég, eins og ég áður sagði, farið lítillega yfir nokkrar umsagnir sem ég tel að þingheimi beri að vera kunnugt um. Þær eru að sjálfsögðu frá þeim aðilum sem málið varðar og eiga að starfa eftir þeim lögum sem hér er verið að fjalla um og ég tel að betri rök í máli sem þessu verði ekki hægt að flytja en frá þeim sem eftir þessum lögum eiga að starfa skv. frv. Einstakir aðilar og stofnanir eru sáttir við það, aðrar stofnanir eru ekki sáttar við það og það eru kannski þeirra umsagnir í meiri hluta sem farið er yfir. En eins og ég segi, þeirra rök eru best og það er alveg óþarfi að vera að umbylta orðalagi þeirra, heldur réttast að umsagnir þeirra fái að birtast í þingtíðindum. Menn geta þá farið yfir þær þar, enda tel ég að stjórnarliðar yfir höfuð hafi ekki kynnt sér þetta mál nægilega og séu því ekki í raun í stakk búnir til að taka afstöðu í málinu.
    Ég var búinn að fara hér yfir erindi frá Freysteini Sigurðssyni, þar sem hann skilgreinir hvað er umhverfi, sem er að sjálfsögðu mjög þarft innlegg í slíka umræðu. Einnig fór ég yfir erindi Halldórs Þorgeirssonar hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins, þar sem hann skilgreinir hvernig á að fylgjast með umhverfinu. Ég var búinn að fara yfir ályktun búnaðarþings, þar sem m.a. kemur fram að þar sem grundvallarsjónarmiða hafi ekki verið gætt og mikill ágreiningur sé um málið í þjóðfélaginu þá leggi búnaðarþing eindregið til að málið verði athugað nánar og reynt að ná um það sátt. Ég hygg að á þetta hafi verið hlustað að einhverju leyti a.m.k. því að um það bárust fréttir í gegnum fjölmiðla að hér í þinginu

ættu sér stað samningaumleitanir um þetta mál og að verið væri að ræða hvort ekki mætti fresta verulegum hluta þeirra tilfærslna sem frv. gerir ráð fyrir og að forsrh. væri með það mál á sinni könnu. Þannig er nú komin ákveðin viðurkenning á því að búnaðarþing fari með rétt mál. Og við stjórnarandstæðingar höfum reyndar bent á og margítrekað að um þetta mál sé alls engin sátt og miklar efasemdir og ágreiningur um allt land og allt þjóðfélag. Það eina skynsamlega í málinu og stöðunni í dag væri að afgreiða ekki frv. hér út öðruvísi en að setja í málið milliþinganefnd sem ynni málið betur og kæmi með það aftur inn í þing að hausti og þá vonandi í fullri samstöðu við þá aðila sem málið kemur til með að heyra undir. Það er sem sagt farið að vinna, eftir því sem fjölmiðlar segja og ég hygg að þeir fari rétt með, að því að ná einhverri lendingu í þessu máli og ég vona að svo megi fara. Hæstv. umhverfisráðherra getur nú væntanlega skýrt þingheimi nánar frá þessum hreyfingum sem nú eru í gangi og hvort einhver fótur sé fyrir því og væri fróðlegt að heyra á hvaða stigi málið er í dag. En ég vil ítreka að það væri hin eina skynsamlega lausn í þessu máli.
    Ég var búinn að fara hér yfir umsögn Stéttarsambands bænda þar sem Stéttarsambandið telur að landsbætur og gróðurvernd þurfi að verða mun ríkari þáttur í framkvæmd hinnar almennu landbúnaðarstefnu hér eftir sem hingað til og varar sterklega við öllum breytingum á skipan þessara mála sem spillt geti fyrir árangri í þeim efnum.
    Rannsóknastofnun landbúnaðarins sendi ítarlega umsögn sem ég var einnig búinn að fara yfir og mun ekki endurtaka. Sama má segja um Skógræktarfélag Íslands og Landgræðslu ríkisins. Ég var þar kominn í yfirreið minni um umsagnir sem bárust hv. allshn. Nd. að ég var að fara yfir umsögn frá landbrn. sem er afar athyglisverð. Hún er dags. 22. okt. og koma þar fram, vægast sagt, miklar efasemdir um ágæti þessa máls. En ég var staddur í miðri þeirri umsögn þegar ég varð að gera hlé á ræðu minni vegna þess að fundartíma var lokið.
    Ég vil, áður en ég held áfram með umsögnina, ítreka það að ég taldi rétt í fyrri ræðu minni að hæstv. landbrh. yrði hér viðstaddur, í það minnsta þegar
farið er yfir umsögn landbrn. sem kemur reyndar næst á eftir og er nýrri, frá 19. jan. Því eins og ég sagði koma fram miklar efasemdir og alvarlegar um þetta mál. Og ég tel nauðsynlegt að hæstv. ráðherra geri þingheimi grein fyrir því hvort það sé ekki rétt skilið að ráðuneytið túlki þar skoðun ráðherrans. Ég teldi annað í hæsta máta óeðlilegt, að ráðuneytið sem slíkt sé að senda frá sér umsagnir sem ganga þvert á skoðanir og stefnu sjálfs ráðherrans, þannig að þar til hæstv. ráðherra hefur svarað því, túlka ég, og tel mig hafa fulla heimild og rétt til þess, umsögn landbrn. sem skoðun landbrh. Sé það svo staðfestir það náttúrlega enn á ný þann gífurlega ágreining sem er um þetta mál innan ríkisstjórnarinnar, ágreining sem nær reyndar miklu víðar en inn í ríkisstjórnina því að

ég veit með vissu að innan ýmissa þingflokka stjórnarflokkanna er enn mikill ágreiningur um þetta mál. Það er því aldeilis ekki séð fyrir endann á því og þó að ríkisstjórnin telji sig hafa meiri hluta á þingi er ekki útséð um það að þetta mál hafi þingmeirihluta að baki sér.
    Í umsögn landbrn., svo að ég haldi áfram, ég veit að áhugasamir þingmenn fletta bara upp á fyrri ræðunnni og tengja þetta svo saman. (Gripið fram í.) Já, hv. þm. Pálmi Jónsson, ég mun íhuga það að verða við þeirri beiðni síðar í ræðu minni. Ég get ekki alveg lofað því núna en það má vel fara svo. En ég var kominn þar sem segir, með leyfi forseta:
    ,,Í bréfi yðar er ekki óskað umsagnar um annað en það sem snýr að landbrn. Allt að einu vekur það furðu hversu margar stofnanir nefndin vill setja undir forræði umhverfisráðuneytis. Gangi slíkt eftir stefndi í að umhverfisráðuneyti yrði bákn, þannig að mest færi af mannafla og fjármunum í að viðhalda því sjálfu. Af mörgum er árangursríkasta leiðin til virkra aðgerða í umhverfismálum innan stjórnsýslunnar talin sú, að starfrækja innan ráðuneyta sem fara með umhverfismál deildir eða starfssvið um þau viðfangsefni. Viðfangsefni slíkra starfssviða og úrlausnir mætti síðan sameina í umhverfisstofnun sem starfaði innan einhvers núverandi ráðuneyta eða í umhverfisráðuneyti, sem deilt er um að verði sett á laggirnar. Sérstakt umhverfissvið er starfrækt í landbrn. Á vegum þess var á þessu ári í samráði við ýmis samtök gert stórátak til hreinsunar í sveitum landsins. Unnið hefur verið að því að draga úr flakki vörslulauss búfjár þar sem tjón getur af hlotist eða hætta skapast. Auk þess hefur verið unnið að fjölda annarra verkefna. Umhverfisráðuneyti, sem annast eftirlit, fræðslu, aðhald og samræmingu gagnvart öllum þeim sem gætu með aðgerðum sínum eða aðgerðaleysi haft áhrif á umhverfi sitt, ætti eðli málsins samkvæmt að vera lítið ráðuneyti, mannað sérhæfðu starfsliði og ekki hafa með stjórn stofnana að gera umfram brýna nauðsyn. Enginn ætlar t.d. að sól skíni á annan veg á landið og nes þess með því að stjórna málum Veðurstofu Íslands úr stól umhverfisráðherra.
    Helstu niðurstöður:
    1. Árangur í starfi Landgræðslu ríkisins og Skógræktar ríkisins er meira háður góðum samskiptum við bændur og atvinnuvegi þeirra í heild en margir riddarar skrifborða þekkja.
    2. Eftirlit og afskipti af hvers konar auðlindanýtingu í þágu atvinnuvega hljóta að eiga að vera samræmd.
    3. Alþjóðleg stefnumótun í umhverfismálum staðfestir að Íslendingar hafa undanfarin ár staðið í grundvallaratriðum rétt að málum varðandi umhverfismál og auðlindanýtingu.
    4. Ekkert hefur komið fram sem réttlætir breytta skipan þeirra mála en vitað er að breytingar samkvæmt hugmyndum nefndarinnar varðandi vistun málefna Landgræðslu ríkisins og Skógræktar ríkisins mundu riðla mörgu og rústa margt sem áunnist hefur af því sem teljast verður í þágu umhverfismála og

gróðurríkara Íslands.``
    Undir þetta skrifa Sveinbjörn Dagfinnsson ráðuneytisstjóri og Guðmundur Sigþórsson.
    Ég ítreka það, hæstv. forseti, að ég hyggst fara yfir síðustu umsögn sem barst frá landbrn. og vildi gjarnan að hæstv. landbrh. hlustaði á þann lestur til þess að geta sagt okkur hér seinna í umræðunni hvort hér sé verið að fara með hans skoðanir og stefnu í þessu máli. Í fyrri umsögn landbrn. er varað við því, sem við stjórnarandstæðingar höfum ítrekað varað við, að hér sé verið að koma af stað klofningi. Það er tekið undir það hins vegar að það eigi að samræma stjórnun umhverfismála og þau eigi heima í hinum ýmsu fagráðuneytum. Og einnig að hér eigi að vera lítið ráðuneyti með sérhæfðu starfsliði þannig að umsögnin er nánast eins og pöntuð fyrir stjórnarandstæðing.
    Hæstv. forseti. Ég ætla að leyfa mér að leggja aftur þann sama skilning í þögnina --- að það sé verið að ná í hæstv. landbrh. Ég vissi til þess að hann var hér í húsinu fyrir nokkrum mínútum síðan. Í umsögn frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins segir m.a.:
    ,,Sérstök ástæða er að árétta það sem fram hefur komið í fyrri umsögnum stofnunarinnar að rannsóknir á nýtingu auðlinda eru snar þáttur í því að gera atvinnuvegunum kleift að fara með þær með verndunarsjónarmið í huga. Rétt er að árétta, vegna ákvæðisins um gróðurrannsóknir væntanlegs
umhverfisráðuneytis, að allar gróðurrannsóknir á RALA eru unnar út frá hagnýtu sjónarmiði og eru samtengdar t.d. samspili gróðurs, beitar og afurða.`` ( Forseti: Forseti vill upplýsa að hæstv. landbrh. er ekki í húsinu. Óskar ræðumaður eftir því að reynt verði að ná til hans?) Nei, hæstv. forseti. Ég held að við skulum ekki vera að hlaupa á eftir hæstv. ráðherra. Ég skal koma mínum spurningum beint til hans og fara þess á leit að hann taki þátt í umræðunni á seinna stigi.
    Í seinni umsögn landbrn. til nefndarinnar sem er dags. 19. jan. 1990 segir eftirfarandi um 129. mál:
    ,,Í bréfi allshn. kemur fram að nefndin hafði undir höndum umsagnir sem nefnd þeirri bárust er starfaði á vegum forsrn. að samningu frv. um umhverfismál. Ráðuneytið vísar því til greinargerðar þess sem send var aðstoðarmanni forsrh.`` og síðan kemur upptalning á því. Seinna kemur: ,,Greinargerðirnar voru samdar og sendar aðstoðarmanni forsrh. sem svar við drögum að reglugerð um breytingu á reglugerð um Stjórnarráð Íslands frá 1969, en samkvæmt þeim drögum var m.a. gert ráð fyrir því að landgræðslu- og skógræktarmál og stofnanir þær sem með þau fara yrðu fluttar frá landbrn. til umhverfisráðuneytis. Stofnanirnar sem í hlut eiga, Landgræðsla ríkisins og Skógrækt ríkisins, einkum þó Landgræðsla ríkisins, fara fyrir hönd landbrn. með stjórnsýslumál á sviði landnýtingar, gróðurrannsókna, gróðurverndar, beitarstjórnunar og annars sem varðar nýtingu jarðvegs og gróðurs í þágu íslensks landbúnaðar samtímis því að meginmarkmiðið er að efla gróðurríki landsins.
    Ráðuneytið benti í greinargerð sinni á að tillaga nefndarinnar þýddi, ef samþykkt yrði, að landbúnaður

væri að verulegu leyti sviptur forræði yfir þeirri auðlind sem atvinnuvegurinn grundvallast á, þ.e. frjómold landsins og gróðri. Bent var á ýmsa alvarlega annmarka sem það mundi hafa í för með sér og margvíslega röskun sem af henni mundi leiða, varðandi framkvæmd landbúnaðarstefnu og varðandi störf fjölda margra landbúnaðarstofnana og samstarf þeirra innbyrðis.
    Landgræðsla ríkisins og Skógrækt ríkisins eiga með ýmsum öðrum stofnunum landbúnaðarins, svo sem Rannsóknastofnun landbúnaðarins, bændaskólunum á Hólum og Hvanneyri og Garðyrkjuskólanum á Reykjum, margþætt og vaxandi samstarf á sviði leiðbeininga, rannsókna og fræðslu sem hefur auðveldast mjög fyrir það að stofnanirnar starfa allar á vegum landbúnaðarins og lúta forræði sama ráðherra. Auk samstarfs sérfróðra manna hinna ýmsu stofnana fæst samnýting á tækjum og margvíslegri aðstöðu umfram það sem ella væri.
    Margar fleiri efnisástæður voru tilgreindar sem rök gegn hugmyndum nefndarinnar, m.a. að öðrum ráðuneytum atvinnuvega væri ætlað að hafa forræði yfir þeim auðlindum sem þær byggðust á, sem án vafa er rétt stefna og hlýtur eðli málsins samkvæmt að gilda einnig um landbúnað. Nefndin hefur nú breytt fyrri tillögum sínum og gerir ekki tillögur um að taka Landgræðslu ríkisins og Skógrækt ríkisins undir forræði umhverfisráðuneytis og fagnar ráðuneytið þeirri breytingu.
    Allt að einu segir í frv., 2. tölul. ákvæðis til bráðabirgða, að umhverfisráðherra skuli í samráði við viðkomandi ráðuneyti beita sér fyrir endurskoðun á lögum, m.a. lögum um Landgræðslu ríkisins nr. 17/1965, og um Skógrækt ríkisins nr. 3/1955. Ráðuneytið telur eðli málsins samkvæmt að umfjöllun um þau lög til breytinga eigi að lúta forræði landbrh. en í samráði við umhverfisráðuneyti og önnur ráðuneyti eftir því sem við á.
    Í athugasemdum við einstakar greinar segir um 2. tölul. ákvæðis til bráðabirgða að við endurskoðun laga um landgræðslu og skógrækt skuli eftirtalin málefni verða á verksviði umhverfisráðuneytis:
    1. Gróðureftirlit og gróðurrannsóknir.
    2. Gróðurvernd, þar á meðal hvers konar varnir gegn gróðureyðingu án þess að búist verði við að á móti komi arður eða efnahagslegar nytjar.
    Á verksviði landbrn. verði eftirtalin málefni:
    1. Ræktun ógróins lands eða lítt gróins lands með það í huga að fá af þeim beinar nytjar, t.d. að rækta beitilönd og tún.
    2. Breytingar á landi til að bæta gróðurfar þess í atvinnuskyni og þannig renna fleiri stoðum undir landbúnaðinn, t.d. með ræktun nytjaskóga.
    Ef eftir færi eins og fram er sett yrði umhverfisráðuneytið bæði með gróðureftirlit og framkvæmdir á sviði gróðurverndar og varna gegn gróðureyðingu og þar með orðið eftirlitsaðili gagnvart framkvæmdum á eigin vegum.
    Landbrn. hefur frá upphafi umræðu um umhverfisráðuneyti kynnt það sjónarmið að

gróðureftirlit jafnt og annað eftirlit sem varðar umhverfi manna væri eðlilegt viðfangsefni umhverfisráðuneytis. Ráðuneytið er hlynnt því að umhverfisráðuneytið taki að sér slíkt verkefni þó að stofnanir landbúnaðarins, Landgræðsla ríkisins og Skógrækt ríkisins, verði eðli málsins samkvæmt jafnframt að fylgjast með ástandi gróðurs og sinna gróðureftirliti. Ráðuneytið telur að ávinningur geti fengist með gróðureftirliti á vegum umhverfisráðuneytis, þannig að það kynni að minnka þá tortryggni sem verið
hefur í garð landbúnaðar um meðferð gróðurs og jarðvegs. Eftirlit annarra aðila og óháðra að þessu leyti gæti orðið atvinnuveginum til góðs og gróðurverndarmálum samtímis. Verkefnum umhverfisráðuneytis á sviði eftirlits gæti fylgt réttur til að krefjast úrbóta sem yrðu þá mótaðar af ráðuneytunum í sameiningu og framkvæmdar af stofnunum landbrn. Greini umhverfisráðherra og landbrh. á um slík mál virðist rétt að þeim væri skotið til forsrh. Ástæða er til að benda á að samræmi er ekki í tillögum nefndarinnar um nýtingu og meðferð auðlinda lands og sjávar. Umhverfisráðuneyti er ekki ætlað neitt eftirlitshlutverk með auðlindum sjávar eða nýtingu þeirra. Rök mæla með því að nýting auðlinda lands og sjávar fái hliðstæða meðferð af hálfu stjórnvalda.
    Á vegum landbúnaðarins er öll áhersla lögð á gróðurrannsóknir í þágu hagnýtra rannsókna, atvinnutækifæri og arðsemi sem nýting jarðvegs og gróðurs skapar. Slíkar rannsóknir eru fyrst og fremst í þágu atvinnuvegarins og hljóta því að vera rétt vistaðar í stofnunum sem starfa í þágu landbúnaðar. Eftir sem áður hlytu gróðurrannsóknir, sem hluti af almennum náttúruvísindarannsóknum, að fara fram víða og þar á meðal í stofnunum tengdum umhverfisráðuneyti. Á sama hátt telur ráðuneytið að forræði gróðurverndar eigi að vera hjá því fagráðuneyti sem hefur með nýtingu gróðurs og jarðvegs að gera. Nauðsynlegt er við ýmsar ákvarðanir í þágu gróðurverndar að þeir sem slíkar ákvarðanir taka geti jafnframt metið afleiðingar ákvarðana, bæði að því er varðar atvinnurekstur einstakra bænda og afleiðingar gagnvart byggðarlögum sem aðgerðir kunna að beinast að. Gróðurverndaraðgerðir geta verið í ýmsu fólgnar og í flestum tilvikum byggjast þær á nýtingu tækja, mannafla og sérþekkingar sem Landgræðsla ríkisins hefur yfir að ráða og ætti að gera áframhaldandi.
    Álitamál kunna að vakna, hvernig metið skuli fyrir aðgerðir hvort reikna megi með, eins og segir í 2. tölul. ákvæðis til bráðabirgða, arði eða efnahagslegum nytjum af framkvæmdum. Mörg árangursríkustu verkefni Landgræðslu ríkisins á liðnum áratugum og fram á þennan dag hafa verið við að stöðva sandskrið og sandstorma sem ógnað hafa býlum og jafnvel byggðarlögum. Má nefna ýmis dæmi slíks, svo sem byggð við Öxarfjörð, Þorlákshöfn, Vík í Mýrdal, Skógey í Hornafirði, Meðalland í Vestur-Skaftafellssýslu, svo að nokkuð sé talið.

Óyggjandi er að framkvæmdir þær, sem hér hafa verið taldar, hafi bæði skilað arði og efnahagslegum nytjum. Þannig mundu þær ekki teljast verkefni umhverfisráðuneytis samkvæmt texta bráðabirgðaákvæðis, en af textanum verður ekki ótvírætt ráðið að slíkt teljist verkefni Landgræðslu ríkisins á vegum landbrn. sem þó hlýtur að vera ætlunin.
    Í bráðabirgðaákvæðinu eru verkefni landbúnaðarins talin ræktun ógróins eða lítt gróins lands sem breytt er í beitilönd eða tún. Slík verkefni hafa verið framkvæmd samkvæmt jarðræktarlögum til þessa og er þess að vænta að þau verði unnin áfram samkvæmt þeim lögum að svo miklu leyti sem þörf kann á að vera miðað við núverandi aðstæður. Landgræðsla ríkisins hefur lítið sem ekki neitt komið að slíkum verkefnum.
    Samkvæmt 2. tölul. bráðabirgðaákvæðisins eru nær öll viðfangsefni Skógræktar ríkisins sem landbúnaðarstofnunar frá henni tekin. Umhverfisráðuneyti er ætlað að fara með verndun, friðun og eftirlit með náttúrulegum birkiskógum og skógum til útivistar en Skógrækt ríkisins hjá landbrn. málefni um ræktun nytjaskóga í atvinnuskyni. Skógrækt ríkisins er víða um landið með aðalstarfsemi sína í náttúrulegum birkiskógum sem í langflestum tilfellum hafa verið friðaðir. Á þessum svæðum fer fram meginstarfsemi Skógræktar ríkisins við ræktun og uppeldi á þeim trjáplöntum sem síðar verða notaðar í skóglendi á Íslandi, bæði til ræktunar útivistarskóga og til nytjaskóga. Stofnunin hlýtur að verða að hafa fullt forræði þeirra landsvæða þar sem hún er með sína starfsemi, bæði við uppeldi plantna og síðar við gróðursetningu á þeim, sem í auknum mæli er stefnt að á þann hátt að samtímis ræktun nytjaskóga og nánast á sömu svæðum verði jafnframt gróðursettar tráplöntur sem vísir að fjölnytjaskógum og útivistarskógum. Landbrn. leggur því eindregið til að þó umhverfisráðuneytið fari með eftirlit gagnvart náttúrulegu skóglendi taki það ekki til landsvæða Skógræktar ríkisins né svæða sem tekin hafa verið undir skógrækt samkvæmt samþykktum nytjaskógaáætlunum.
    Erfitt kann að vera að skilgreina í samræmi við tilvitnað ákvæði til bráðabirgða hvenær ræktun verður til þess að bæta gróðurfar í atvinnuskyni og hvenær eingöngu í þágu umhverfismála. Ljóst má vera að með öllum gróðri fæst breyting til hins betra sem leiðir jafnframt af sér meiri hagrænan ávinning á margvíslegan hátt. Slíkt kann að skila auknum arði á gripum sem fóðrast á gróðri, skila meiri uppskeru vegna betri jarðvegs og meira skjóls sem bætt gróðurfar skapar, laða ferðamenn að nýjum svæðum og fleira má til telja. Benda má á að í Noregi eru öll málefni skógræktar hjá landbrn., jafnt ræktun nytjaskóga sem útivistar- og fjölnytjaskóga. Ráðuneytið og skógræktaryfirvöld leggja jafnframt áherslu á góða samvinnu við umhverfisráðuneyti Noregs um þessi mál, einkum um útivistarskóga. Ráðuneytið telur að skipting verkefna milli umhverfis-

og landbrn., sem Skógrækt ríkisins og Landgræðsla ríkisins hafa sinnt sem framkvæmdastofnanir, verði ekki til þess að skila auknu og
bættu starfi í þágu gróðurverndar og gróðurbóta en mundi ótvírætt valda auknum kostnaði.``
    Þannig hljóðar uppistaðan í umsögn landbrn. Eins og ég sagði áðan hefði ég hug á að heyra skoðun hæstv. landbrh. á hvort hér sé verið að túlka hans skoðun, sem ég held að hljóti að vera. En ef svo er ekki óska ég eftir því að hæstv. landbrh. geri grein fyrir sínum skoðunum og þá einnig hvort ekki sé hægt að treysta því að það séu skoðanir ráðherrans þegar ráðuneytið gefur umsagnir um tiltekið mál. Meðan annað kemur ekki í ljós hlýtur þessi umsögn að túlka skoðanir og stefnu ráðherrans í málinu.
    Hæstv. forseti. Ég hef einnig undir höndum umsögn frá yfirdýralækni, dags. 11. jan. 1990, þar sem segir eftirfarandi:
    ,,Mér hefur borist bréf yðar, dags. 19. des. sl., þar sem óskað er umsagnar minnar um breytingar á ýmsum lögum vegna frumvarps til laga um umhverfisráðuneyti.`` Síðan vísar yfirdýralæknir í önnur bréfaskrif en segir síðar: ,,Ég vil enn á ný benda á að einn málaflokkur sem verið er að færa frá menntmrn. til hins fyrirhugaða umhverfisráðuneytis eigi frekar heima í landbrn. en það eru lög um dýravernd. Í nágrannalöndum okkar fer landbrn. með þessi málefni nema í Danmörku, þar er það dómsmrn. Stærsti hluti dýraverndunar snertir búfé, aðbúnað þeirra, flutning o.s.frv. Má í þessu sambandi benda á að Ísland er meðlimur í nefnd um dýravernd á vegum Evrópuráðsins og er yfirdýralæknir fulltrúi Íslands á þeim vettvangi. Nú er verið að vinna að reglum um eldi og aðbúnað hænsnfugla og svína í landbrn. og þar er að finna fjölmarga þætti sem skiljanlega snerta dýravernd. Alls staðar eru dýralæknar ráðgefandi um dýravernd. Því teldi ég það vera dýraverndunarmálum styrkur hér á landi ef þessi málaflokkur yrði færður til landbrn. eins og er í nágrannalöndum okkar og hefur reynst vel. Með því sköpuðust betri tengsl milli dýra- og búfjáreigenda annars vegar og héraðsdýralækna hins vegar en þeim ber skylda til að fara með þetta eftirlit.``
    Undir þetta ritar Brynjólfur Sandholt, yfirdýralæknir. Það er enginn vafi á ferðinni um það hver skoðun yfirdýralæknis er. Hann bendir jafnframt á það að í nágrannalöndum okkar er þessi málaflokkur undir landbrn. nema í einu landi þar sem hann er undir dómsmrn. Þannig að ekki fær frv. neinn stuðning frá nágrannalöndunum í þessum málaflokki.
    Dýralæknafélag Íslands sendi inn umsögn þar sem segir m.a.:
    ,,Dýralæknafélag Íslands telur það varhugaverða stefnu að samþykkja lög um umhverfisráðuneyti þar sem ekki er sett fram umhverfismálastefna, ekki markaðar leiðir til að ná fram slíkri stefnu og ekki ákveðið hvernig að framkvæmd og eftirliti umhverfismála skuli staðið. Þá skal lögð rík áhersla á tengsl mengunar í umhverfi og matvælaframleiðslu og að tilgangur umhverfisverndar verði að lúta að

fyrirbyggjandi aðgerðum í heilsuvernd. Dýralæknafélag Íslands telur að stofna skuli heilbrigðis- og umhverfisráðuneyti. Verkefni mengunarvarna og heilbrigðiseftirlits eru nátengd og óskynsamlegt að þau verði aðskilin. Þess vegna telur félagið að ekki skuli skilja að Hollustuvernd ríkisins með því að færa mengunarvarnasvið hennar yfir í umhverfisráðuneyti. Matvælaeftirliti ber að vera í heilbrrn. en ekki í umhverfisráðuneyti. Með stofnun heilbrigðis- og umhverfisráðuneytis fara saman nátengdir málaflokkar sem fjalla um sama markmið, að bæta heilsuvernd og umhverfi. Samræmd yfirstjórn þessara málaflokka er sérlega mikilvæg.
    Að lokum vill Dýralæknafélag Íslands benda á þann verulega ókost er upp kemur við fyrirhugaða stofnun umhverfisráðuneytis en hann er sá, að eftir sitja breytingar á lögum og reglugerðum á verksviði umhverfisráðuneytis sem leiðir af sér glundroða og tómarúm. Góður undirbúningur er nauðsynlegur og afar mikilvægur.``
    Undir þetta ritar Konráð Konráðsson, formaður félagsdeildar dýralækna í heilbrigðiseftirliti.
    Ég verð að segja, hæstv. forseti, að þessi umsögn er með harðari dómum yfir því frv. sem við erum hér að ræða þar eð m.a. er sagt að í því felist engin umhverfismálastefna, að ekki hafi verið markaðar neinar leiðir til að ná fram slíkri stefnu og ekki ákveðið hvernig að framkvæmd og eftirliti umhverfismála skuli staðið. Ég held að það sé varla hægt að taka dýpra í árinni en hér er gert. Formaður félagsdeildar dýralækna í heilbrigðiseftirliti lýkur sinni umsögn á því að segja að góður undirbúningur sé nauðsynlegur og afar mikilvægur. Og þá kemur kannski aftur að því sem ég ræddi örlítið fyrst í ræðu minni, að nú virðast stjórnarherrarnir vera að ranka við sér og sjá að það þurfi að vinna þetta mál betur og uppi eru hugmyndir um að fresta meiri hlutanum af þeim tilflutningi sem við erum að ræða hér í þessu frv. til haustþings og reyna að vinna það betur í sumar þannig að sú hugmynd fær stuðning víða að.
    Eitt af því sem hefur verið mikið ágreiningsmál er flutningur eiturefnanefndar yfir í umhverfisráðuneyti, Geislavarna og náttúrlega Hollustuverndar. Það hefur margsinnis komið fram að þessi málaflokkur og hans starf eru 80--90% undir heilbrrn. og engin skynsamleg rök fyrir því að færa
það yfir í umhverfisráðuneyti. En það virðist vera þannig að það er blásið á skynsamleg rök. Nægir að nefna til að mynda flutning á Veðurstofunni yfir í umhverfisráðuneyti, þar sem ekki er hægt að færa ein einustu rök fyrir því að sú stofnun fari undir umhverfisráðuneyti. En það er eins og í öðrum málum að
stjórnarliðar og ríkisstjórnin tekur engum sönsum, hún tekur engum rökum. Hún keyrir yfir allt og alla, ein sína stefnu hvað sem það kostar og hvaða þjáningar sem það þýðir fyrir þjóðina. Enda erum við hér að ræða ráðuneyti sem því miður er nú búið að stofna, en hér er verið að ræða verkefni þess. Við erum að ræða ráðuneyti sem á sennilega eftir að verða eitt

dýrasta ráðuneyti þjóðarinnar. Það á eftir að verða að miklu bákni áður en við náum að átta okkur á því. En á slíkar viðvaranir er að sjálfsögðu ekkert hlustað frekar en fyrri daginn. Þess vegna erum við, eins og ég hef margoft sagt, að ræða hér eitthvert dýrasta þskj. í sögunni. Og það er náttúrlega hlálegt að Borgaraflokkurinn skuli standa að slíku sem þykist vera að berjast með hag almennings í landinu fyrir brjósti en ætlar að verða þess valdandi að hér verður slíkt bákn sett á að skattar verða væntanlega að hækka verulega bara til að standa undir þeim hégóma sem hér er verið að ræða um. En það er þeirra mál.
    Hæstv. forseti. Eiturefnanefnd sendi frá sér umsögn þann 18. jan. þar sem segir m.a.: ,,Eiturefnanefnd ítrekar þá skoðun sína að með breytingu á yfirstjórn á framkvæmd laga nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, og laga nr. 81/1988, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, sé verið að færa málaflokka undir umhverfisráðuneyti sem eru í raun heilbrigðismál. Eiturefnanefnd tekur ekki afstöðu til þess hvort sérstakt umhverfisráðuneyti skuli stofna í því skyni að samræma umhverfismál. Hins vegar mælir eiturefnanefnd eindregið með því að hafinn verði undirbúningur að gerð frv. um umhverfisvernd.``
    Um frv. til laga um samræmda stjórn umhverfismála ætla ég að leyfa mér að lesa umsögn eiturefnanefndar, enda er hún stutt: ,,Eiturefnanefnd vísar til fyrri umsagna, þar sem fram kemur að nefndin lýsir sig eindregið fylgjandi því að umhverfismál verði samræmd undir einu ráðuneyti en tekur ekki afstöðu til þess hvor leiðin verði valin, þ.e. stofnun sérstakrar stjórnarnefndar umhverfismála og umhverfismálaskrifstofu innan samgöngu- og umhverfisráðuneytisins eða stofnun sérstaks umhverfisráðuneytis.``
    Í annarri umsögn frá eiturefnanefnd segir m.a.: ,,Samkvæmt lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, er yfirstjórn mála er varða eiturefni og hættuleg efni í höndum heilbr.- og trmrh. Hlutverk eiturefnanefndar er að vera heilbr.- og trmrn. til ráðgjafar um framkvæmd ofangreindra laga. Eiturefnanefnd bendir á að einungis hluti af þeim verkefnum sem nefndin fæst við fellur undir svið mengunarvarna. Stór hluti þeirra er hins vegar tengdur málaflokkum er heyra eðlilega undir heilbr.- og trmrn.
    Í frv. til laga um umhverfismál er væntanlegu umhverfisráðuneyti falin framkvæmd laga nr. 52/1988 í heild sinni. Eiturefnanefnd fær ekki skilið forsendur þess að lög sem fjalla aðeins að litlu leyti um mengun á landi, í lofti, í ferskvatni og sjó verði felld undir umrætt ráðuneyti. Hættan af völdum þeirra efna er lögin fjalla um beinist fremur gegn þeim er meðhöndla efnin og neytendum er neyta afurða þar sem efnin eru notuð við framleiðsluna. Eiturefnanefnd telur margt mæla með því að umhverfismál verði samræmd og þá gjarnan í einu ráðuneyti. Nefndin tekur hins vegar enga afstöðu til þess hvort nauðsynlegt sé að stofna sérstakt ráðuneyti til að ná því markmiði.``
    Ég held ég láti þetta nægja frá eiturefnanefnd,

hæstv. forseti, þó að þeir hafi sýnt þessu máli mikinn áhuga og sent inn fleiri umsagnir. Þær hníga flestar í þá veru sem ég hef þegar farið yfir.
    Geislavarnir ríkisins sendu inn umsögn þann 23. okt. þar sem segir m.a.: ,,Samkvæmt drögum að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 96 31. des. 1969, um Stjórnarráð Íslands, er gert ráð fyrir að starfsemi Geislavarna ríkisins flytjist frá heilbr.- og trmrn. til fyrirhugaðs umhverfisráðuneytis. Um stofnunina og starfssvið hennar er ekki fjallað í greinargerð, nema hvað hennar er getið í upptalningu undir liðnum ,,Mengunarvarnir``. Vegna þessa skal sérstaklega á það bent að mengunarvarnir eru mjög lítill þáttur í starfsemi stofnunarinnar. Langstærsti hluti verkefna stofnunarinnar er á sviði heilbrigðismála.
    Í lögum um geislavarnir, nr. 117/1985, er hvorki fjallað um förgun geislavirkra efna né geislavirk efni í umhverfinu, heldur er það gert í reglugerð nr. 356/1986, um öryggisráðstafanir gegn jónandi geislun. Í nýjum lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, er fjallað um förgun slíkra efna, sbr. einnig nýja reglugerð um mengunarvarnir. Því er með einfaldri reglugerðarbreytingu hægt að breyta yfirstjórn þessara þátta í starfsemi stofnunarinnar ef ástæða þykir til.
    Það er sameiginleg niðurstaða stjórnar og forstöðumanns Geislavarna ríkisins að ekki eigi að flytja starfsemi stofnunarinnar frá því ráðuneyti sem fer með yfirstjórn heilbrigðismála undir annað ráðuneyti þar sem langstærsti hluti
verkefna stofnunarinnar sé á sviði heilbrigðismála í tengslum við sjúkrahús, heilsugæslustöðvar og aðrar heilbrigðisstofnanir.
    Núverandi fyrirkomulag geislavarna hér á landi er í samræmi við fyrirkomulag geislavarna annars staðar á Norðurlöndum. Sérstaklega skal á það bent að yfirstjórn geislavarnastofnana Danmerkur og Noregs er í höndum heilbrigðisráðuneyta landanna þrátt fyrir að í báðum löndunum séu starfandi umfangsmikil umhverfisráðuneyti.
    Í meðfylgjandi greinargerð er fjallað um helstu þættina í starfsemi stofnunarinnar, svo og fyrirkomulag geislavarna annars staðar á Norðurlöndum. Með bréfi þessu fylgja einnig lög nr. 117/1985, um geislavarnir, og reglugerð nr. 356/1986, um öryggisráðstafanir gegn jónandi geislun.``
    Undir þetta rita Magnús Magnússon, prófessor og stjórnarformaður, og Sigurður M. Magnússon forstöðumaður. Þetta er umsögn sem Geislavarnir sendu inn 23. okt. og með henni var greinargerð með frekari skilgreiningu á starfsemi Geislavarna. Það er kannski rétt að líta aðeins yfir þá punkta sem fram koma í þeirri greinargerð, enda eru þeir ekki nema níu og tekur ekki langan tíma að renna yfir þá. Þeir segja í fyrsta lagi:
    ,,Samkvæmt lögum nr. 117/1985, um geislavarnir, er hlutverk Geislavarna ríkisins að tryggja nauðsynlegar öryggisráðstafanir vegna notkunar jónandi geislunar, í því skyni að koma í veg fyrir skaðleg áhrif hennar.``
    Í öðru lagi segja þeir: ,,Notkun jónandi geislunar

hér á landi er fyrst og fremst í heilbrigðiskerfinu og þá einkum notkun röntgentækja. Veigamestu þættirnir í starfsemi stofnunarinnar eru því reglubundið eftirlit vegna um 400 röntgentækja sem í notkun eru hér á landi, svo og eftirlit með geislaskömmtum um 600 starfsmanna, einkum á röntgendeildum.``
    Ef ég reyni að sigta úr þessu, hæstv. forseti, svo að ég eyði ekki of miklum tíma, eru í þriðja lið útskýring á starfsemi Geislavarna og röksemdir fyrir og reynt að sýna fram á að þær eigi að vera innan heilbrigðiskerfisins. Í þriðja lagi segir: ,,Stofnunin annast reglubundið eftirlit vegna notkunar röntgentækja í landinu. Eftirlitið lýtur að öllum þeim þáttum, er hafa áhrif á þá geislun sem sjúklingar verða fyrir við læknisfræðilegar rannsóknir, svo og starfsmenn við störf sín. Markmið eftirlitsins er að tryggja að sú geislun sem þessir aðilar verða fyrir sé sem minnst, samhliða því að læknisfræðilegt gildi rannsóknanna verði sem mest. Veigamikill þáttur eftirlitsins eru leiðbeiningar og fræðsla fyrir starfsfólk um notkun röntgentækja og geislavarnir. Á grundvelli eftirlitsins eru síðan gerðar kröfur um nauðsynlegar úrbætur. Í samstarfi við heilbrrn. og landlækni er því síðan fylgt eftir að nauðsynlegar úrbætur séu framkvæmdar. Tengslin við heilbrrn. og landlækni eru því mjög mikilvæg.
    Nú um áramótin tekur heilbrrn. við rekstri heilsugæslustöðva af sveitarfélögum og því enn meiri ástæða en áður að mikil og náin tengsl séu á milli ráðuneytisins, landlæknis og stofnunarinnar.``
    Í fjórða lagi benda þeir á að eftirlit stofnunarinnar með rúmlega 600 starfsmönnum er einkum á röntgendeildum, sem fer fram með þeim hætti að starfsmennirnir bera mælifilmur frá stofnuninni tvo mánuði í senn. Þær eru síðan framkallaðar hjá Geislavörnum ríkisins og geislun á þær metin.
    Ég hleyp yfir fimmta punktinn en tek þann sjötta. Þar segir: ,,Sá þáttur starfseminnar, er skarast við umhverfismál, lýtur einkum að förgun geislavirkra efna og rannsóknum á geislavirkni í matvælum og umhverfi. Vægi þessara þátta í starfsemi stofnunarinnar er samtals um 20% og að langmestum hluta vegna rannsókna á geislavirkum efnum í matvælum, þ.e. hvernig geislavirk efni berast í fæðukeðjuna og flytjast þar til. Markmið rannsóknanna er að afla grundvallarupplýsinga er gera kleift að setja upp reiknilíkön, sem síðan eru notuð á margvíslegan hátt, t.d. til að meta þennan þátt í heildargeislaálagi þjóðarinnar. Hér er bæði um að ræða rannsóknir á náttúrulegum, geislavirkum efnum og efnum sem borist hafa í umhverfið af mannavöldum. Þessar rannsóknir í geislavistfræði eru styrktar af Vísindasjóði.`` Og síðan er fjallað meira um þennan punkt sem ég hirði ekki um að gera hér.
    Í sjöunda lið greinargerðarinnar segir: ,,Heildargeislaálag þjóðarinnar er samansett úr nokkrum þáttum, svo sem notkun jónandi geislunar til sjúkdómsgreininga, geislun frá jörð og himingeimnum, svo og geislun frá náttúrlegum geislavirkum efnum í beinum líkamans. Sá þáttur sem þyngst vegur, eða um

50%, er notkun röntgentækja til sjúkdómsgreininga. Á þennan þátt er fyrst og fremst hægt að hafa áhrif til lækkunar með öflugu starfi á sviði geislavarna. Einmitt þess vegna vegur hann þyngst í starfsemi stofnunarinnar. Því er sérstök þörf á nánum tengslum við heilbrigðiskerfið í landinu.``
    Í áttunda lagi: ,,Veigamikill þáttur í starfsemi stofnunarinnar lýtur að leiðbeiningum og fræðslu heilbrigðisstétta. Starfsmenn stofnunarinnar taka þátt í kennslu um starfsemi stofnunarinnar við raunvísindadeild, læknadeild, námsbraut í hjúkrunarfræðum, röntgentækni og meinatækni.``
    Níundi og síðasti punkturinn sem Geislavarnir tiltaka hljóðar þannig: ,,Annars staðar á Norðurlöndum er stjórnskipulegt fyrirkomulag geislavarna sem
hér segir: ,,Danmörk: Statens Institut for Stralehygiejne. Heyrir undir Sundhedsministeriet/Sundhedsstyrelsen. Finnland: Stralsakerhetscentralen. Heyrir undir Social- och halsevardsministeriet. Noregur: Statens Institutt for Stralehygiene. Heyrir undir Sosialdepartementet/Helsedirektoratet. Svíþjóð: Statens Stralskyddsinstitut. Heyrir undir Energi- och miljöministeriet.``
    Geislavarnir ljúka sinni greinargerð með þessum orðum: ,,Verksvið þessara stofnana eru hliðstæð verksviði Geislavarna ríkisins, nema hvað Stralsakerhetscentralen í Finnlandi annast einnig eftirlit með kjarnorkuverum. Í Danmörku og Noregi eru sérstakar stofnanir sem annast eftirlit með kjarnaofnum, sem starfræktir eru á rannsóknastofnunum, og í Svíþjóð er það sérstök stofnun, Statens Karnkraftinspektion, sem hefur með höndum eftirlit með kjarnorkuverum. Starfsemi Geislavarna ríkisins og aðstæður hér á landi eru líkastar aðstæðum í Noregi og Danmörku.``
    Hæstv. forseti. Það þarf ekki frekari rök en þessir aðilar leiða sjálfir fram og þau þarfnast ekki frekari skýringar. Enda er það ein af ástæðunum fyrir því að ég tel nauðsynlegt að fara hér yfir umsagnir að þær koma náttúrlega með bestu rökin í málinu. Auðvitað væri hægt að tína þær til og vinna út úr þeim annað orðalag en það er best að koma til dyra eins og maður er klæddur. Geislavarnir sendu síðan frá sér 15. jan. enn eina umsögn og ég ætla ekki að fara yfir hana alla en rétt að grípa inn í hana miðja. Þar segir:
    ,,Í fyrrgreindri umsögn stjórnar stofnunarinnar kemur sú skoðun skýrt fram að ekki sé rétt að flytja yfirstjórn stofnunarinnar þar sem langstærsti hluti verkefna hennar sé sviði heilbrigðismála. Jafnframt var á það bent að yfirstjórn geislavarnastofnana Danmerkur og Noregs eru í höndum heilbrigðisráðuneyta landanna þrátt fyrir að þar séu starfrækt umsvifamikil umhverfisráðuneyti. Þar sem nefnd forsrh. tók ekkert tillit til sjónarmiða stjórnar stofnunarinnar skulu þau sérstaklega áréttuð en að öðru leyti er vísað til fyrrgreindra umsagna.
    Geislavarnir ríkisins leggja sérstaka áherslu á mikilvægi þess að leitað verði víðtækrar samstöðu um stjórnskipulegt fyrirkomulag umhverfismála svo að

fullt samráð verði haft við þá aðila er málið skiptir mest.`` Svo mörg voru þau orð. Nei og þó, það er heldur meira hér. ,,Stofnun umhverfisráðuneytis er nátengd endurskoðun laga um Stjórnarráð
Íslands og breyttri verkaskiptingu ráðuneyta. Ákvörðun um stofnun þess eitt sér eða með öðru ráðuneyti ætti því fyrst að taka þegar þau mál eru til lykta leidd.`` Og undir þetta má vel taka.
    ,,Að lokum vill stofnunin taka undir þau sjónarmið er liggja til grundvallar frv. til laga um samræmda yfirstjórn umhverfismála,,, --- sem er 4. mál þessa þings, frv. sjálfstæðismanna um stjórnun umhverfismála.
    Röntgendeild Landspítalans leyfði sér að senda inn umsögn þann 17. jan. þar sem segir m.a.: ,,Í fréttum hefur undanfarið verið getið um stofnun umhverfisráðuneytis og að lagafrv. þess efnis sé annaðhvort þegar fram lagt eða alveg í burðarliðnum. Í frv. þessu er gert ráð fyrir að Geislavarnir ríkisins verði í heild felldar undir hið nýja ráðuneyti. Af því tilefni leyfum við undirritaðir okkur að koma því á framfæri við allshn. Alþingis að við teljum slíka ráðstöfun mjög misráðna. Leyfum við okkur því að beina því til nefndarinnar að áhrifum hennar verði beitt til þess að Geislavarnir ríkisins tengist heilbrrn. og landlæknisembætti svo sem verið hefur.
    Röksemdir fyrir þessari ósk eru fyrst og fremst þær að langstærsta og veigamesta verkefni stofunarinnar er á sviði heilbrigðismála og tengist geislagreiningu og meðferð á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Raunar má segja að tilvera stofnunar eins og Geislavarna á að öllu leyti rök í þeirri staðreynd að óheft og eftirlitslaus notkun jónandi geislunar er heilbrigðisvandamál, þar eð aukaverkanir jónandi geislunar eru allar líffræðilegs eðlis og til skemmda á líkamsvefjum þeirra er fyrir verða. Rétt er að benda á að samkvæmt samþykktum ICRP, Alþjóðageislavarnanefndarinnar, svo og reglugerðum og starfsháttum nágrannalanda okkar, eru þau sjónarmið ríkjandi að geislavarnastarfsemi sé í eðli sínu tengd heilbrigðismálum og heilsugæslu. Geislavörnum í Svíþjóð hefur að vísu verið markaður bás með orkumálum og tengist hugmyndum um vaxandi kjarnorkuframleiðslu, en raunverulegt starfssvið liggur þar sem annars staðar í heilbrigðisþjónustunni.
    Við undirritaðir skorum því á hv. allshn. Alþingis að Geislavarnir ríkisins megi áfram halda eðlilegum sessi sínum í tengslum við ráðuneyti heilbrigðismála.``
    Undir þetta rita Ásmundur Brekkan, prófessor í geislalæknisfræði, forstöðumaður röntgendeildar Landspítalans, Örn Smári Arnarson yfirlæknir, röntgengeild Borgarspítala, og Þorkell Bjarnason yfirlæknir, röntgendeild Landakotsspítala. Það er ekki enn búið hvað geislavarnir varðar því að Röntgentæknafélag Íslands sendi einnig inn umsagnir, til að mynda eftirfarandi umsögn dags. 27. okt. 1989 þar sem segir:
    ,,Aðalfundur Röntgentæknafélags Íslands, haldinn 24. október 1989, mótmælir þeim áformum að flytja

Geislavarnir ríkisins frá heilbrrn. til væntanlegs
umhverfismálaráðuneytis. Starfsemi Geislavarna ríkisins er fyrst og fremst á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum og öðrum heilbrigðisstofnunum, einkum vegna notkunar röntgentækja og geislavirkra efna. Því er sjálfsagt að Geislavarnir ríkisins heyri áfram undir heilbrrn. enda er það í samræmi við fyrirkomulag geislavarna annars staðar á Norðurlöndum. Röntgentæknafélag Íslands skorar á heilbrrh. Guðmund Bjarnason, að hann beiti sér fyrir því að hætt verði við flutning Geislavarna ríkisins yfir í umhverfismálaráðuneytið.``
    Og undir þetta ritar Guðrún Friðriksdóttir, formaður félagsins.
    Röntgentæknafélagið sendi síðan inn aðra umsögn þann 6. febr. og ég hirði ekki um að lesa hana, en þar kemur í raun og veru það sama fram, að því er mótmælt að Geislavarnir ríkisins verði fluttar frá heilbrrn. yfir í umhverfisráðuneytið. En Röntgentæknafélagið var með beina áskorun á heilbrrh. í sinni umsögn. Ekki ætla ég að biðja um að hæstv. heilbrrh. verði kallaður í salinn nú, en ég tel nauðsynlegt að heilbrrh. geri grein fyrir sínum skoðunum og hvernig hann hyggst bregðast við þeim áskorunum sem hann hefur fengið í þessu máli.
    Þá er kannski komið að þeim umsögnum, sem eru fjölmargar, um þann þátt sem mikið hefur verið deilt um, en það er Hollustuvernd ríkisins. Þar eru skoðanir ekkert ýkja skiptar. Þær eru flestar á þá leið að það eigi ekki að færa Hollustuvernd ríkisins undir umhverfisráðuneyti. Þó eru einstaka hjáróma raddir sem eru reiðubúnar að kljúfa Hollustuverndina en á þessar raddir er að sjálfsögðu ekkert hlustað frekar en annað.
    Hollustuvernd ríkisins sendir inn umsögn þann 1. jan. þar sem þeir eru beðnir um umsögn um þrjú frumvörp. Það eru 128. mál og 129. mál þessarar deildar og 4. mál sem er frv. þeirra sjálfstæðismanna um yfirstjórn umhverfismála. Um það mál mun ég hins vegar ekkert fjalla enda er það að sjálfsögðu dottið upp fyrir þar sem þegar er búið að stofna þetta ráðuneyti. En um 128. og 129. mál segir m.a. í umsögn Hollustuverndar ríkisins:
    ,,Þessi tvö lagafrumvörp gera ráð fyrir stofnun sjálfstæðs umhverfisráðuneytis ásamt tilheyrandi tilfærslu á yfirstjórn ýmissa málaflokka, embætta og stofnana. Með frumvörpunum fylgja auk þess athugasemdir til skýringar. Menn virðast almennt sammála um það að yfirstjórn umhverfismála verði sameinuð í einu ráðuneyti en greinir nokkuð á um leiðir að því marki. Auk þess er hugtakið umhverfismál ekki alltaf vel skilgreint.
    Ýmsir möguleikar hafa verið ræddir, m.a.: 1. Stofnun sjálfstæðs umhverfisráðuneytis, 2. Stofnun umhverfismálaskrifstofu innan samgönguráðuneytis og 3. Stofnun heilbrigðis- og umhverfisráðuneytis. Framtíð og örlög Hollustuverndar ríkisins eru mjög samtvinnuð þessum möguleikum og þeim útfærslum sem ræddar eru samhliða þeim. Vissulega segir nafnið sjálft á ráðuneytinu ekki alla söguna. Það ræðst af

verkefnavali hvers konar ráðuneyti verður um að ræða. Af sjónarhóli eiturefnasviðs Hollustuverndar ríkisins er málum ágætlega fyrir komið í heilbrrn. eins og málum er háttað, þar sem meginverkefnin eru nú á sviði heilbrigðismála auk þess sem engar aðrar stofnanir undir öðrum ráðuneytum gera tilkall til sömu mála þannig að af hljótist ruglingur eða ósamræmi. Þó má búast við því að umhverfisþátturinn fari vaxandi á næstu árum. Má þar sem dæmi nefna umhverfismerkingar á efnavörum og fræðslu um rétta notkun og umgengni við eiturefni og hættuleg efni. Það er svipuð þróun og orðið hefur í nágrannalöndum okkar þó þeir séu reyndar komnir mun lengra á þeirri braut enda er tilsvarandi starfsemi á Norðurlöndum innan stofnana sem heyra allar undir umhverfisráðuneyti (Miljöstyrelsen í Danmörku, Statens forureningstilsyn í Noregi og Kemikalieinspektionen í Svíþjóð, sem heyrir reyndar undir umhverfis- og iðnaðarráðuneyti).
    Í þessu ljósi m.a. tel ég stofnun heilbrigðis- og umhverfisráðuneytis vel henta í framtíðinni yfir þá starfsemi sem fram fer innan eiturefnasviðs Hollustuverndar. Þó má ekki missa sjónar af meginmarkmiði lagafrv. sem þýðir að slíkt ráðuneyti yrði, auk heilbrigðismála, að hafa yfirstjórn á öllum umhverfismálum, þar með talið skipulagsmálum og náttúruvernd. Starf eiturefnanefndar fléttast líka inn í þessa umræðu og þarf m.a. að skoða í samhengi við starfssvið Hollustuverndar.
    Stofnun sjálfstæðs umhverfisráðuneytis er eflaust ágæt lausn til að samræma yfirstjórn umhverfismála en það verður að gæta þess að kostnaður verði ekki óhóflegur og skapi ekki fleiri vandamál en leyst eru. Sú hugmynd er uppi að Hollustuvernd í heild sinni og mengunardeild Siglingamálastofnunar ásamt fleiri aðilum heyri undir slíkt sjálfstætt ráðuneyti. Sá möguleiki hefur verið ræddur að þar sem gert sé ráð fyrir að heilbrrn. verði áfram starfandi þó stofnað sé umhverfisráðuneyti mætti hafa svipaðan hátt á hvað varðar Hollustuvernd, þ.e. að fyrst í stað heyri t.d. einungis mengunardeild stofnunarinnar undir umhverfisráðuneyti, en önnur starfsemi undir heilbrrn. Ég er efins um að slíkt fyrirkomulag gangi upp en tel þó nauðsynlegt að fá úr því skorið með því að prófa þá lausn. Eiturefnaeftirlitið gæfi eflaust líka þrifist undir slíku sjálfstæðu umhverfisráðuneyti, sbr. reynslu
nágrannaþjóðanna. Þó óttast ég nokkuð m.a. í ljósi upptalningar á viðfangsefnum ráðuneytisins í athugasemdum með frv. að eiturefnasvið fengi ekki næga athygli eða fjárveitingar.
    Einn möguleiki enn er óræddur og kannski ekki eins fjarlægur og ætla mætti. Það er hreinlega að kljúfa þessar stofnanir og eflaust fleiri, samhliða stofnun umhverfisráðuneytis, því það getur aldrei verið markmið í sjálfu sér að halda stofnun saman ef málaflokkar eru vel skilgreindir, aðgreindir og jafnframt ólíkir. Ef fram fer sem horfir og stjórnarfrv. með fyrirhuguðum fylgiatriðum nær fram að ganga er nokkuð ljóst að fyrr eða síðar þurfa menn að taka afstöðu til samsetningar og uppbyggingar

Hollustuverndar.
    Ég er þeirrar skoðunar að ýmis önnur mál, t.d. hvað varðar vinnueftirlit og geislavarnir, þurfi að koma inn í þessa umræðu líka. Ég hef þó verið að hallast að því upp á síðkastið að rétt sé að geyma þessi stóru ágreiningsmál þar til síðar og reyna að fara að fá botn í það hvort stofna á sérstakt umhverfisráðuneyti eða fara einhverja aðra leið.`` Þetta var ein rödd úr Hollustuvernd, rödd Daníels Viðarssonar, forstöðumanns eiturefnaeftirlits. Eins og menn vita eru nokkur svið innan Hollustuverndar og eru ekki allir á eitt sáttir þar og mun það koma í ljós þegar ég held áfram að fara yfir umsagnirnar.
    Hollustuvernd ríkisins sendi inn umsögn sem er undirrituð af Hermanni Sveinbjörnssyni stjórnarformanni og við skulum aðeins líta á hvað fram kemur í þeirri umsögn. Eftir nokkurs konar hefðbundinn formála segir m.a. að Hollustuvernd hafi þrisvar sinnum gefið umsögn á sl. ári um umhverfismál og að í umsögnum sínum um þetta mál hafi stjórn Hollustuverndar leitast við að ná sem mestri samstöðu innan stofnunarinnar þannig að tekið væri tillit til mismunandi skoðana einstakra baksviða. Innan Hollustuverndar ríkisins hafa skoðanir lengi verið mjög skiptar varðandi stöðu stofnunarinnar gagnvart hugsanlegu umhverfisráðuneyti. Hefur mengunarvarnasvið stofnunarinnar skorið sig úr í þessu sambandi en hin þrjú sviðin hafa talið óæskilegt að tengsl þeirra við heilbrrn. minnkuðu eða rofnuðu alveg.
    Þegar óskað var umsagnar Hollustuverndar ríkisins um frumvarpsdrög nefndar forsrn. í október sl. var tekið fram að ekki væri óskað eftir skoðun á því hvort umhverfisráðuneyti væri æskilegt eður ei. Spurningin gagnvart Hollustuvernd ríkisins var því fyrst og fremst sú hvort stofnunin öll skyldi teljast með umhverfisráðuneyti eða einungis mengunarvarnasvið. Í umsögn Hollustuverndar til nefndarinnar, dags. 24. okt. sl., er lögð áhersla á náinn skyldleika heilbrigðis- og mengunareftirlits og þeirri skoðun lýst að það yrði afar óæskilegt eða jafnvel óframkvæmanlegt, miðað við íslenskar aðstæður, að kljúfa stofnunina í sundur. Lítil von virðist til þess að ná fram samræmdri afstöðu stjórnar og forstöðumanna til þessara mála og hefur stjórnin því ákveðið að sjónarmið forstöðumanna komi fram á fskj. með bréfi þessu. Hér á eftir verður gerð grein fyrir afstöðu stjórnarinnar í þessu máli.
    Í bréfi til Jóns Sveinssonar, aðstoðarmanns forsrh., frá 24. okt. 1989 segir m.a.:
    ,,Hollustuvernd ríkisins vill í upphafi leggja áherslu á að heilbrigðiseftirlit stofnunarinnar og sveitarfélaganna hefur verið meginþáttur umhverfiseftirlits í landinu enda er umhverfi mannsins og lífsskilyrði nátengd heilbrigði mannsins. Frá upphafi þessarar aldar hefur þetta verkefni verið í höndum sveitarfélaga en eftir að Heilbrigðiseftirlit ríkisins, forveri Hollustuverndar ríkisins, var stofnað árið 1969 hefur átt sér stað markviss þróun hjá ríkinu í þessum málum. Þannig hefur þrisvar sinnum á

þessum áratug farið fram heildarendurskoðun laganna um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit. Heilbrigðissamþykktir og reglugerðir eru safn þeirra fyrirmæla sem sett eru af hinu opinbera til verndunar umhverfi mannsins. Í lögum um heilbrigðiseftirlit og hollustuhætti árið 1981 var ákveðið að taka úr heilbrigðisreglugerð þau ákvæði sem vörðuðu umhverfismengun og setja þau mál í sérstaka mengunarvarnareglugerð. Reglugerðin hefur nú verið staðfest af heilbrrh. og mun taka gildi um næstu áramót.
    Með stofnun umhverfisráðuneytis kæmi til álita að endurskilgreina eftirlit opinberra aðila sem beinist að því að draga úr óæskilegum umhverfisáhrifum og nefna umhverfiseftirlit. Slík endurskilgreining kallar á breytingu á lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 81/1988, og endurskoðun á verksviði heilbrigðisfulltrúa sveitarfélaganna. Í þessu sambandi skal vakin athygli á að markalínur milli heilbrigðisreglugerðar og mengunarreglugerðar eru engan veginn skýrar í dag enda eru skilin milli nærumhverfis og fjærumhverfis það ekki heldur.`` Í bréfinu segir síðan: ,,Það væri til skaða fyrir þetta málefni ef nú yrði farið að skipta Hollustuvernd ríkisins milli ráðuneyta þó þeir þættir í starfsemi hennar sem varða nærumhverfi séu nátengdir málaflokkum heilbrrn. Ýmsir hafa talið að mengunareftirlit væri umhverfismál og ætti heima í umhverfisráðuneyti en heilbrigðiseftirlit hrein heilbrigðismál sem ættu heima hjá heilbrrn. Hollustuvernd telur þessi verkefni svo náskyld að rökrétt sé að halda þeim innan sömu stofnunar. Innan stofnunarinnar eru þó sumir
þeirrar skoðunar að æskilegast væri að sameina væntanlegt umhverfisráðuneyti og ráðuneyti heilbrigðismála.``
    Í bréfinu tók stjórn Hollustuverndar ekki afstöðu til stofnunar umhverfisráðuneytis enda skýrt tekið fram að ekki væri óskað afstöðu í því máli. Þess í stað setti stjórnin fram ákveðin skilyrði fyrir því að Hollustuvernd færðist undir umhverfisráðuneyti. Aðalskilyrðið var að í upptalningu á málefnum ráðuneytisins væri talað um umhverfiseftirlit, þ.e. heilbrigðiseftirlit, mengunareftirlit og eftirlit með óæskilegum umhverfisáhrifum. Þegar frv. um breytingu á lögum um Stjórnarráðið kom fram kom í ljós að ekki hafði verið farið að óskum stjórnarinnar í þessu efni. Sá hún sig því knúna til að rita allshn. neðri deildar Alþingis bréf sem dagsett er 19. des. 1989. Í bréfinu segir m.a. að meiri hluti stjórnar stofnunarinnar telji það ekki eðlilegast að stofnunin flytjist í heild sinni til umhverfisráðuneytis. En af tveimur slæmum kostum, að kljúfa stofnunina eða
flytja til umhverfisráðuneytis, taldi hún skárra að flytja stofnunina. Meiri hluti forstöðumanna stofnunarinnar var sammála þessari skoðun. Jafnframt ítrekaði stjórnin þá skoðun sína að ekki komi til álita að kljúfa stofnunina. Um það efni segir: ,,Afstaða stjórnarinnar byggist á því hve umfjöllun um nær- og fjærumhverfi rennur víða saman. Ef stofnunin yrði

klofin, hver ætti þá t.d. að fjalla um aðgerðir til að tryggja heilnæmi neysluvatns? Hvernig ætti að tryggja samræmi í aðgerðum sem nauðsynlegar væru ef í ljós kæmi að smithætta stafaði af vargfugli sem sækti í æti í ófullnægjandi frárennsli eða í óvarða sorphauga og bæri síðan smit í vatnsból manna og búpenings? Hvernig ætti að taka á málum ef bensíngeymir læki og bensínið ætti greiða leið niður í grunnvatn og síðan í neysluvatn þéttbýlisstaða?
    Þessar þrjár spurningar eru dæmi um spurningar sem vakna ef mengunarvarnir verða klofnar frá almennu heilbrigðiseftirliti. Hætta er á að ósamræmi í reglum og fyrirmælagjöf gæti leitt til óvissuástands eða jafnvel glundroða í þeim tilvikum sem taka þarf á samræmdan hátt á málum er varða bæði fjær- og nærumhverfi.
    Önnur ástæða þess að stjórnin telur fráleitt að kljúfa stofnunina er sú að henni er ætlað að hafa yfirumsjón með og samræma eftirlit á sviði matvæla, almenns heilbrigðiseftirlits, eiturefnaeftirlits og mengunareftirlits en beint eftirlit á þessum sviðum er að stærstum hluta á vegum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaganna. Ef stofnunin yrði klofin þyrfti heilbrigðiseftirlitið að bera mál sín undir tvö ráðuneyti. Annars vegar vegna innra umhverfis og hins vegar vegna ytra umhverfis. Fullvíst er að það mundi valda verulegum erfiðleikum að þjóna samtímis tveimur ráðuneytum, sérstaklega í málum sem væru á mörkum þess að falla undir innra eða ytra umhverfi.
    Þriðja ástæðan sem var tilgreind var sú, að ef eftirlitshlutverk heilbrigðisnefndanna yrði breytt þannig að þeim væri ekki ætlað að skipta sér af mengun í ytra umhverfi þá yrði ríkið væntanlega að stofna nýtt eftirlitskerfi og taka þar með eftirlitsskyldu og ábyrgð frá sveitarfélögunum. Þessi kostur er ekki fýsilegur í dag enda leiddi hann trúlega til þess að kostnaður mundi aukast, tengsl við sveitarfélögin mundu rofna, verksvið eftirlitsaðila mundu skarast, auk þess sem það tæki nokkur ár að þjálfa nýja eftirlitsmenn.
    Stjórn stofnunarinnar hefur ekki breytt þeirri grundvallarskoðun sinni að Hollustuvernd verði ekki skipt á milli ráðuneyta heldur starfi í heild sinni undir yfirstjórn eins ráðuneytis. Stjórnin telur varhugavert að hraða stofnun umhverfisráðuneytis svo mikið að ekki vinnist tími til að svara grundvallarspurningum um starfsemi ráðuneytisins og stofnana þess. Í því sambandi telur stjórnin að veigamikil atriði er tengjast hollustuvernd og heilbrigðiseftirliti í landinu séu ófrágengin. Afstaðan til umhverfisráðuneytis mótast því af eðlilegri varkárni. Stjórnin vill ekki tefla í tvísýnu heilbrigðiseftirliti og hollustuháttamálum, þar með töldu eftirliti með matvælum. Verkefnalisti umhverfisráðuneytis samkvæmt greinargerð með frv. um breytingu á lögum um Stjórnarráð og reyndar greinargerðinni í heild sinni, bendir til þess að þessi mikilvægu mál gætu orðið hornreka í umhverfisráðuneyti. Sé minnsta hætta á að svo verði mun stjórnin leggjast gegn breytingum á yfirstjórn stofnunarinnar. Nokkrir stjórnarmenn eru reyndar algerlega á móti breytingu á yfirstjórn hennar að svo

komnu máli. Að þessu leyti virðist frv. um samræmda stjórn umhverfismála æskilegra fyrir stofnunina en frv. um breytingu á lögum um Stjórnarráð, nr. 128.
    Til þess að meiri hluti stjórnar Hollustuverndar leggist ekki gegn því að stofnunin fari undir umhverfisráðuneyti þarf að tryggja að heilbrigðiseftirliti og hollustuháttamálum verði ekki teflt í tvísýnu. Meiri hluti stjórnarinnar leggur til að upptalning á viðfangsefnum umhverfisráðuneytis í reglugerð um Stjórnarráð verði eftirfarandi:
    Mál er varða hollustuhætti, heilbrigðiseftirlit og varnir gegn óæskilegum umhverfisáhrifum, þar á meðal mengun í lofti, láði og legi, eyðingu eða endurvinnslu hvers konar úrgangs, mál er varða meðferð eiturefna og varnir
gegn skaðlegri geislun. Lögð er áhersla á að allshn. láti þennan skilning koma fram í umsögn sinni um málið.
    Þótt nú sé stefnt að stofnun sjálfstæðs umhverfisráðuneytis telur stjórnin réttara að möguleiki á stofnun umhverfis- og heilbrigðisráðuneytis verði kannaður til þaula. Sá kostur hentar að ýmsu leyti málaflokkum stofnunarinnar vel, sérstaklega þeim er varða nærumhverfi, þótt hann sé ekki gallalaus fremur en aðrir sem boðið er upp á. Stjórnin telur því að stofnun umhverfisráðuneytis tengist mjög frekari endurskoðun á verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins og ákvörðun um stofnun ráðuneytisins ætti að taka eftir að niðurstaða er fengin í það mál. Minni hluti stjórnarinnar leggst gegn því að skoða breytingu á yfirstjórn stofnunarinnar áður en niðurstaða í verkaskiptingu ráðuneyta liggur fyrir.
    Sérstök athygli skal vakin á því að þegar bréf þetta er ritað er skipunartími annarra stjórnarmanna en stjórnarformanns runninn út. Tilnefningar standa yfir og eru ekki fyrirsjáanlegar miklar breytingar á stjórninni, en ekki hefur verið gengið frá skipun þeirra sem tilnefndir hafa verið. Verði breytingar á stjórninni áskilur hún sér rétt til þess að koma á framfæri viðbótarathugasemdum við þessi mál.``
    Undir þetta ritar Hermann Sveinbjörnsson stjórnarformaður.
    Það er skemmst frá því að segja að það varð breyting á stjórninni og inn kom einn nýr aðili og við það breyttust hlutföllin þannig að meiri hluti stjórnarinnar var á móti frv.
    Ég er þá kominn að afstöðu framkvæmdastjóra og forstöðumanna hinna ýmsu fagsviða Hollustuverndar. En áður en ég fer í það, hæstv. forseti, þá er sá ráðherra sem með þennan málaflokk á að fara og ég bað um að yrði viðstaddur umræðuna nú kominn og ég hef ekki gert athugasemd við að hann sæti í næsta herbergi. Ég heyri það mjög glöggt að hæstv. ráðherra er ekki að hlusta því hann er það hávær maður að ég get varla flutt mál mitt hér úr ræðustól fyrir hávaðanum úr hliðarherberginu sem hv. umhverfisráðherra er með og mætti jafnvel kalla þetta hávaðamengun. Ég óska eftir að hæstv. ráðherra sýni þinginu örlítið meiri virðingu en þetta. Þó ég viti að hann sé í rauninni ekkert að hlusta þá þarf hann ekki

að hafa slíkan hávaða að það sé ekki hægt að tala úr ræðustóli.
    Hæstv. forseti. Ég ætla að gera augnabliks hlé á yfirferð minni yfir umsagnir sem borist hafa hv. allshn. neðri deildar. Ég á einhvern smáslatta eftir en ætla að gera smáhlé á því og fá að fara hér örlítið yfir frétt sem var í Dagblaðinu í dag með fyrirsögninni: ,,Geta valdið PCB-mengun á miðum fyrir Austurlandi.`` Þar er verið að fjalla um áratuga gamla sorphauga bandaríska hersins á Heiðarfjalli. Ég hefði áhuga á að heyra í ráðherra um þau mál. Það segir m.a. í fréttinni:
    ,,Eigendur jarðarinnar Eiðis á Langanesi hyggjast krefja bandaríska herinn um háar fjárhæðir í skaðabætur vegna fyrirséðrar mengunar frá sorphaugun efst á Heiðarfjalli innan fárra ára. Sorphaugarnir sem notaðir voru á meðan ratsjárstöð var starfrækt þar frá 1956 til 1970.
    Að sögn íslenskra starfsmanna við ratsjárstöðina var allur úrgangur frá um 130 manna byggð urðaður í sorpgryfjum á fjallinu sjálfu. Í gryfjunum eru rafgeymar og rafspennar, sem að öllum líkindum innihalda eiturefnið PCB, auk fjölmargra annarra hættulegra efna.
    Samkvæmt könnun verkfræðistofunnar Vatnaskila er það svæði sem þegar er mengað í fjallinu gífurlega stórt eða allt að 5 milljónir rúmmetra. Búast má við að mengunin nái til grunnvatnsins um miðjan þennan áratug.``
    Síðar í fréttinni segir: ,,Þó eigendur jarðarinnar kunni að fá skaðabætur í sinn hlut er ljóst að lítið sem ekkert er hægt að gera vegna fyrirséðrar mengunar. Hún mun berast út í grunnvatnið undir fjallinu, síðan í vatnslindir og þaðan út í lífríkið. Hætta er á að mengunin muni síðan berast í hafið. Dean Abrahamson, prófessor við Minnesotaháskóla og sérfræðingur í mengunarmálum, telur að mengun frá sorphaugunum geti haft áhrif á lífríki hafsins og þar með fiskimið undan Austurlandi, ef PCB úr 12 stórum rafspennum, sem urðaðir voru í sorpgryfjunum, leki út í umhverfið. Hann benti jafnframt á að PCB-mengun í hafinu kringum Ísland geti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir markaði fyrir íslenskan fisk.
    Engar líkur eru taldar á að hægt sé að hreinsa sorphaugana og það svæði undir þeim sem þegar er mengað. Áætlaður kostnaður við slíka framkvæmd er stjarnfræðilegur eða allt að 2.500 milljarðar (tuttugu og áttaföld fjárlög íslenska ríkisins). Mögulegt er að draga úr mengunarhraðanum með því að þekja sorpgryfjurnar með vatnsheldu efni og draga þar með úr áhrifum hripvatns. Þetta mundi ekki hindra mengun heldur einungis leiða til þess að hún bærist hægar út í lífríkið.``
    Þannig er fréttin sem er í Dagblaðinu í dag.
    Samkvæmt þeirri reglugerð sem gefin var út 23. febr. um breytingu á reglugerð um Stjórnarráð Íslands, þar sem hæstv. umhverfisráðherra fær til sín nokkur verkefni er m.a. sagt í 1. gr.: ,,Umhverfisráðuneytið fer með mál er
varða alhliða umhverfisvernd, eftirlit með

náttúruvernd, gróðurvernd og mengunarvörnum`` o.s.frv. Þarna tel ég alveg einsýnt að ráðherrann er kominn með verkefni og hér er komið upp vandamál sem ráðherranum ber að bregðast við. Nú veit ég að ráðherrann hlustar glöggt og sjálfsagt er hann búinn að lesa þessa frétt og hefur af henni miklar áhyggjur og hefur þegar gert víðtækar ráðstafanir, en við óbreyttir þingmenn vitum ekkert um það og vildum gjarnan fá það staðfest hvað og hvort ráðherrann hyggist gera eitthvað í þessu máli, hvort hann hyggist bregðast við. Það má vel vera að ríkisstjórn Íslands finnist það ekkert tiltökumál að fiskimið landsins og markaðir fyrir íslenskan fisk geti verið í hættu innan fárra ára, en það væri alla vega æskilegt að fá það fram í svari ráðherra hvort svo sé. Enda er hér að mínu mati mikið í húfi og mikil hætta fyrir dyrum þar sem ekki aðeins er verið að tala um markað og fiskimið heldur lífríki yfirleitt í sjónum og ég veit nú ekki hvert við stefnum ef menn bregðast ekki við jafnalvarlegri frétt og hér er. Ég geri sem sagt fastlega ráð fyrir því að hæstv. ráðherra, sem hlýtur að fagna því að fá einhver verkefni inn á sitt borð, hafi þegar gripið til ráðstafana. En ég bið bara um að hann útskýri fyrir þingheimi hvernig hann hyggst bregðast við. Það hefði reyndar verið athyglisvert að heyra í hæstv. forsrh. um jafnstórt mál og hér virðist vera á ferðinni.
    Virðulegur forseti. Ég ætla að halda áfram þar sem frá var horfið með Hollustuverndina. Ég var byrjaður að glugga í umsagnir framkvæmdastjóra og forstöðumanna hinna ýmsu fagsviða Hollustuverndar, sem eru ekki á eitt sáttir og flestir andsnúnir þeim hugmyndum sem frv. boðar.
    Þessar afstöður koma fram í sérstöku fylgiskjali sem barst með umsögn Hermanns Sveinbjörnssonar, stjórnarformanns Hollustuverndar ríkisins. Það er virðingarvert við hann og hans stjórn að senda inn og gefa framkvæmdastjórum og forstöðumönnum fagsviða kost á að senda inn sínar umsagnir. En í því fylgiskjali segir m.a.:
    ,,Eins og þegar hefur verið bent á ríkir ekki samstaða meðal starfsmanna stofnunarinnar gagnvart hugmyndum um stofnun sjálfstæðs umhverfisráðuneytis. Sérstaklega hefur afstaða starfsmanna mengunarvarnasviðs skorið sig úr í þessu sambandi. Af þessum sökum hefur stjórn stofnunarinnar fengið í hendur skriflegar athugasemdir framkvæmdastjóra þriggja af fjórum fagsviðum stofnunarinnar vegna umsagnar um frv. um stjórn umhverfismála. Stjórn Hollustuverndar hefur ákveðið að koma meginsjónarmiðum þeirra á framfæri með eftirfarandi úrdrætti:
    Eiturefnaeftirlit. Hugtakið umhverfismál er ekki skilgreint. Málefnum eiturefnaeftirlitssviðs er ágætlega fyrir komið í heilbrrn. eins og málum er nú háttað. Búast má við að umhverfisþátturinn fari vaxandi í starfi eiturefnaeftirlits á næstu árum. Samsvarandi starfsemi á Norðurlöndum er innan stofnana sem heyra undir umhverfisráðuneyti. Stofnun heilbrigðis- og umhverfisráðuneytis mundi vel henta í framtíðinni

fyrir starfsemi eiturefnaeftirlitssviðs. Ef sjálfstætt umhverfisráðuneyti yrði stofnað væri nauðsynlegt að prófa fyrst í stað þá lausn að einungis mengunarvarnasvið heyrði undir umhverfisráðuneyti en dregið yrði í efa að slíkt gæti gengið. Lýst er áhyggjum yfir að undir umhverfisráðuneyti fengi eiturefnaeftirlit ekki nægilega athygli eða fjárveitingar. Taka verður afstöðu til samræmingar og uppbyggingar Hollustuverndar, m.a. með hliðsjón af tengslum við vinnueftirlit og geislavarnir. Lýst er andstöðu við frv. til laga um samræmda stjórn umhverfismála.`` Það er 4. mál og er mál sjálfstæðismanna og hyggst ég ekki fara í það.
    ,,Heilbrigðiseftirlitssvið. Lýst er yfir andstöðu við hugmyndir um flutning Hollustuverndar yfir í fyrirhugað umhverfisráðuneyti. Vakin er athygli á að mestur hluti af starfsemi stofnunarinnar er ekki á sviði umhverfismála. Sú skoðun er sett fram að taka muni a.m.k. eitt ár að endurskoða og breyta mörgum lagabálkum í kjölfar stofnunar umhverfisráðuneytis og að ringulreið muni ríkja
á meðan hvað varðar núverandi starfssvið Hollustuverndar. Athygli er vakin á þýðingarmiklum og erfiðum verkefnum á næstu mánuðum og missirum á vegum stofnunarinnar sem ólíklegt er að nýstofnað ráðuneyti sem stofnunin heyrði undir gæti veitt nægan stuðning. Hér er t.d. átt við ný viðhorf vegna salmónellumengunar í búfjárafurðum sem ekki hefur verið áður. Tekið er fram að ekki séu fordæmi í öðrum löndum svo að vitað sé, að matvælaeftirlit heyri undir umhverfisráðuneyti. Ekki er talið skynsamlegt að stofna ráðuneytið fyrst og síðan athuga hvernig það eigi að starfa. Heilbrigðiseftirlitssvið telur liggja beinast við að Hollustuvernd í heild sinni heyri áfram undir heilbrrn., verði af stofnun umhverfisráðuneytis samkvæmt fyrirliggjandi frv.``
    Síðan er hér afstaða forstöðumanns rannsóknastofu. Þar segir m.a.: ,,Dregið í efa að rétt sé að flytja stofnunina í heild undir umhverfisráðuneyti. Matvæla- og heilbrigðiseftirlit eiga fremur heima undir heilbrigðisráðuneyti, sbr. reynslu Dana, en matvælaeftirlit var þar nýlega tekið undan umhverfisráðuneytinu og flutt í heilbrrn. Ekki verður séð að erfiðleikum sé
bundið að stofnunin heyri tímabundið undir tvö ráðuneyti á sama hátt og Siglingamálastofnun ríkisins þar sem málaflokkar eru skýrt aðskildir.``
    Framkvæmdastjóri Hollustuverndar segir m.a. í sínum punktum sem hér eru teknir til að hann telji að miðað við athugasemdir við frv. um stofnun umhverfisráðuneytis og málflutning helstu talsmanna þess væri réttara að stofna umhverfisráðuneyti í markvissum áföngum eins og lagt er til í frv. til laga um samræmda stjórn umhverfismála sem er enn á ný frv. þeirra sjálfstæðismanna. Hann telur réttara að tengja umhverfisráðuneytið öðru ráðuneyti og ákveða stofnun þess í tengslum við endurskoðun á skipulagsmálum Stjórnarráðsins í heild sinni. Hann segir grundvallaratriði að Hollustuvernd verði ekki

klofin. Frumframleiðsla matvæla er mikilvægasti atvinnuvegur landsmanna og því mikilvægara fyrir okkur að tengja náið saman eftirlit og aðgerðir á sviði mengunarmála og hollustuháttamála en t.d. fyrir iðnaðarþjóðir. Hann telur hættu á að athygli umhverfisráðuneytis muni beinast að mengun ytra umhverfis en aðgerðir til að bæta hollustuhætti og almennt heilbrigðiseftirlit fái lítið vægi. Hann dregur í efa að umhverfisráðuneytið geti aukið verulega fjárveitingar til stofnunarinnar eins og væntanlegur umhverfisráðherra hefur gefið til kynna. Og hann telur að tvöfalt eftirlit muni auka líkur á árekstrum ásamt því að draga úr skilvirkni og ábyrgðarkennd, sbr. tillögu um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 47/1971. Og að lokum telur hann fullvíst að yfirstjórn tveggja ráðuneyta yfir sömu stofnuninni muni auka verulega líkur á stjórnunarerfiðleikum, sbr. tillögu um breytingu á lögum um Siglingamálastofnun, nr. 20/1986. Og hann varar við því að slíkt fyrirkomulag verði reynt hjá Hollustuvernd ríkisins.
    Síðan senda hinir ýmsu forstöðumenn inn minnispunkta, sem þeir kalla, um umhverfismál. Það eru þeir Þórhallur Halldórsson, Jón Gíslason deildarsérfræðingur, Halldór Runólfsson deildardýralæknir og Kolbrún Haraldsdóttir heilbrigðisráðunautur. Þau kjósa að setja þetta upp í tíu punkta og það er rétt að fara lauslega yfir þá:
,,1. Markmið með frv. um stjórn umhverfismála annars vegar og hins vegar um stofnun umhverfisráðuneytis er að samræma starfsemi á sviði umhverfis- og mengunarvarna. Þessu markmiði má ná með aukinni samvinnu og samnýtingu starfsmanna og tækjabúnaðar þeirra aðila sem nú sinna störfum á þessu sviði. Um þetta er ekki ágreiningur heldur þær leiðir sem valdar eru til að ná fram settu markmiði.
    2. Heilbrigðiseftirlitssvið Hollustuverndar ríkisins er og hefur alltaf verið andvígt því og talið það óskynsamlegt að flytja Hollustuvernd ríkisins frá heilbr.- og trmrn. yfir í fyrirhugað umhverfisráðuneyti. Það getur ekki talist eðlilegt að flytja Hollustuvernd í ráðuneyti umhverfismála þegar mestur hluti af starfsemi stofnunarinnar er ekki á þessu sviði. Svo sem kunnugt er er stofnuninni skipt í fjögur fagsvið sem eru heilbrigðiseftirlit, eiturefnaeftirlit, rannsóknastofa og mengunarvarnir. Fagsvið starfa tiltölulega sjálfstætt og eru það einungis fimm starfsmenn mengunarvarna stofnunarinnar sem starfa á sviði umhverfismála.
    3. Vakin er sérstök athygli á afstöðu heilbrigðiseftirlitsins í landinu sem kemur glöggt fram í ályktun sem samþykkt var samhljóða á almennum félagsfundi Heilbrigðisfulltrúafélags Íslands þann 27. nóv. sl. og sem allshn. hefur borist. Þar segir m.a.: ,,Því ályktar fundurinn að þessum málum sé best komið undir heilbrrn. Í því ráðuneyti er til staðar fagleg og lögfræðileg þekking á þessum málaflokkum auk þess sem ráðuneytið hefur áratuga reynslu við framkvæmd þeirra. Málefni á sviði mengunarvarna og heilbrigðiseftirlits eru iðulega mjög yfirgripsmikil og viðkvæm. Þau krefjast oft tafarlausrar ákvörðunartöku

sem getur haft víðtækar afleiðingar, m.a. fjárhagslega, auk þess að hafa áhrif á heilsufar fólks. Fundurinn bendir enn fremur á að færu þessir málaflokkar frá heilbrrn. væri verið að rjúfa fagleg tengsl við landlæknisembættið, héraðslækna og heilsugæslulækna sem eru lögum samkvæmt faglegir ráðunautar eftirlits- og heilbrigðisnefnda. Einnig væri þýðingarmiklu sambandi og samstarfi við sveitarfélög landsins stefnt í tvísýnu. Það er álit fundarins að ekki sé eðlilegt að kljúfa starfsemi Hollustuverndar ríkisins vegna þess hve verksvið mengunarvarna og heilbrigðiseftirlits eru nátengd og óskynsamlegt að þessi svið heyrðu undir tvö ráðuneyti.``
    4. Verði af stofnun umhverfisráðuneytis á næstu vikum eða mánuðum mun það taka a.m.k. eitt ár að endurskoða og breyta hinum mörgu lagabálkum sem fyrirhugað er að breyta skv. frv. til laga um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands. Sú tímasetning sem sett er í bráðabirgðaákvæðum frv. um að fyrir 1. nóv. 1990 skuli umhverfisráðherra í samráði við viðkomandi ráðuneyti beita sér fyrir nauðsynlegum laga- og reglugerðarbreytingum á starfssviði ráðuneytisins segir ekkert til um hvenær þessum breytingum verður komið á.
    5. Með vísan til þess sem sagt er hér að ofan í 4. tölul. má reikna með að á þeim tíma sem eftir er af yfirstandandi kjörtímabili, sem í mesta lagi getur orðið rúmt ár eftir stofnun fyrirhugaðs umhverfisráðuneytis, má telja víst að
mikil óvissa, jafnvel ringulreið muni ríkja hvað varðar starfssvið Hollustuverndar ríkisins.
    6. Sérstök athygli er vakin á þýðingarmiklum og erfiðum verkefnum sem verða til úrlausnar næstu mánuði og missiri á vegum stofnunarinnar. Verða hér nefndar framkvæmdir við innflutningseftirlit með matvælum og nauðsynjavörum. Enn fremur, sem er mun alvarlegra mál, sú staðreynd að nú hefur í fyrsta sinn hér á landi fundist salmónella í sauðfjárafurðum og hætta getur verið á að þessi vágestur geti einnig borist í aðrar búfjárafurðir. Það þarf ekki að lýsa því fyrir alþingismönnum hvaða afleiðingar það geti haft fyrir matvælaframleiðsluþjóð ef salmónella kæmist í fleiri búfjárafurðir eða aðrar mikilvægar afurðir.
    7. Landbrh. og heilbrrh. hefur verið gerð grein fyrir þessu alvarlega máli. Nauðsyn ber til að nú þegar verði undirbúnar samræmdar aðgerðir, bæði af hálfu þessara ráðuneyta, yfirdýralæknis, Hollustuverndar og annarra aðila til að mæta þessum nýju viðhorfum.
    8. Það væri ábyrgðarhluti að mati undirritaðra að flytja Hollustuvernd ríkisins við þessar aðstæður í nýtt ráðuneyti. Ef af flutningi verður má telja víst að mikill tími starfsmanna stofnunarinnar og ráðuneytisins fari í breytingar á lögum og reglugerðum, skipulagsbreytingar og vinnu við að stilla saman ólík starfssvið á vegum ráðuneytisins. ( Forseti: Ég skildi hv. ræðumann svo að hann kysi að gera hlé á ræðu sinni um þetta leyti. Ég vek athygli hv. þm. á því að hann getur valið sér stund til þess þar sem hann telur heppilegt í ræðu sinni ef hann er ekki að ljúka henni

eða kýs að nýta sér heimild til þess að gera hlé á ræðu sinni og taki þá við sá sem næstur er á mælendaskrá en hv. ræðumaður ætti þess kost síðar að halda áfram sínu máli.) Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir það. Ég hyggst nú þiggja þetta góða boð, enda orðinn nokkuð vanur því að gera hlé á ræðu minni um þetta mál. Ég ætla engu að síður þó að ljúka við að fara yfir umsagnir Hollustuverndar þannig að ég get þá byrjað ferskur á nýrri stofnun þegar ég kemst næst að.
    9. Ég var sem sagt kominn að níunda punkti frá forstöðumönnum hinna ýmsu fagsviða Hollustuverndar þar sem þeir segja: ,,Það skal tekið fram að þess eru ekki fordæmi í öðrum löndum, svo að vitað sé, að matvælaeftirlit heyri undir umhverfisráðuneyti. Það er enn fremur staðreynd að látin hefur verið í ljós sú skoðun, bæði í athugasemdum með frv. og af forsrh., að eðli málsins samkvæmt heyri matvæla- og heilbrigðiseftirlit fremur undir heilbrrn. en umhverfisráðuneyti.
    10. Niðurstaða þessara athugasemda er sú að skynsamlegast sé að nota tímann fram að næstu alþingiskosningum til að undirbúa stofnun ráðuneytis með málaflokkum og starfssviðum sem fyrst og fremst snerta manninn sjálfan. Hér er átt við umhverfismál, mengunarvarnamál, hollustu- og heilbrigðiseftirlitsmál, matvæla- og eiturefnaeftirlit, jafnvel einnig vinnuverndarmál þegar til lengri tíma er litið.`` Þessi punktur heldur síðan áfram, en hann er í sjálfu sér fallinn úr gildi þar sem ráðuneytið sem slíkt hefur þegar verið stofnað.
    Í niðurlagi minnispunkta forstöðumannanna segir, og þá er eins og í ljós kemur ekki búið að stofna ráðuneytið sem slíkt: ,,Taki Alþingi hins vegar ákvörðun um að koma á nýju ráðuneyti umhverfismála verður að velja á milli þess að halda Hollustuvernd ríkisins utan þess ráðuneytis eða kljúfa mengunarvarnir frá stofnuninni. Eins og áður hefur komið fram er það álit bæði stjórnar stofnunarinnar og heilbrigðisfulltrúa að ekki beri að kljúfa stofnunina. Því liggur beint við að Hollustuvernd ríkisins heyri áfram undir heilbrrn.``
    Svo mörg voru þau orð. Eins og ég kom hér aðeins inn á fyrr í máli mínu var kosin ný stjórn fyrir Hollustuvernd ríkisins og gerðir fyrirvarar í einni umsögn um að afstaða stjórnarinnar gæti breyst. Eftir að sú kosning til stjórnar hafði farið fram barst þessi lokaumsögn frá Hollustuvernd ríkisins, þar sem þeir vitna til fyrri umsagna og segja eftirfarandi: ,,Síðast í bréfinu var greint frá því að skipunartími annarra stjórnarmanna en stjórnarformanns væri útrunninn þegar bréfið var ritað og stjórnin áskildi sér rétt til að koma á framfæri viðbótarathugasemdum vegna málanna. Ný stjórn stofnunarinnar hefur nú verið skipuð frá 1. jan. sl. Af sjö stjórnarmönnum er einn nýr. Stjórnin er sem áður sammála um að ekki komi til álita að kljúfa stofnunina upp og að varhugavert sé að hraða stofnun umhverfisráðuneytis það mikið að ekki vinnist tími til að svara grundvallarspurningum um starfsemi ráðuneytisins og stofnana þess. Meiri hluti stjórnarinnar telur að réttara væri að skoða í þaula möguleika á stofnun umhverfis- og

heilbrigðisráðuneytis frekar en að stofna sérstakt umhverfisráðuneyti. Sú skoðun nýtur nú meirihlutafylgis innan stjórnarinnar að stofnunin heyri áfram undir heilbr.- og trmrn. en minni hlutinn telur koma til greina að færa stofnunina undir umhverfisráðuneyti að uppfylltum þeim skilyrðum sem tilgreind eru í tilteknu bréfi.``
    Þó að hluti af þessari umsögn sé í sjálfu sér nánast ómerkur vegna þess að þegar er búið að stofna ráðuneyti þá breytir það því ekki að meiri hluti
stjórnarinnar telur að Hollustuvernd ríkisins eigi að heyra áfram undir heilbr.- og trmrn.
    Hæstv. forseti. Ég verð því miður að gera hlé á máli mínu hér. Það er minn skilningur að ég haldi þá áfram þessari ræðu en sé ekki að nýta seinni ræðutíma minn. ( Forseti: Já, það er fúslega veitt samkvæmt ósk hv. þm. og hann getur haldið áfram ræðu sinni síðar við umræðuna eftir nánara samkomulagi við forseta.)