Ábyrgðadeild fiskeldislána
Miðvikudaginn 28. mars 1990


     Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Ég get verið stuttorður. Ég vakti athygli á því á síðasta fundi að orðin ,,án ríkisábyrgðar`` í 4. gr. eiga jafnt við orðin ,,banka`` sem ,,öðrum lánastofnunum.`` Það er skilyrði fyrir veitingu sjálfskuldarábyrgðar að viðkomandi fiskeldisfyrirtæki fái samningsbundin eldislán frá banka eða öðrum lánastofnunum án ríkisábyrgðar. Ég tel óeðlilegt að aðrar reglur gildi í þessu efni um ríkisbankana en banka og sparisjóði. Mér er ekki ljóst hvers vegna orðin ,,án ríkisábyrgðar`` hafa komið þarna inn í texta frv. en ég ítreka það sem ég sagði á síðasta fundi. Mér sýnist þeim orðum hafa verið bætt inn eftir að búið var að semja frv. ef horft er til skýringa við 4. gr. frv. í athugasemdum við þetta lagafrv.
    Ég hygg að frv. með leiðréttingu í brtt. minni sé í samræmi við vilja þingmanna eins og ég skil hann, bæði í þessari deild og Nd.