Friðrik Sophusson:
Virðulegur forseti. Það er eðlilegt að hv. 2. þm. Vestf. skuli biðja um orðið um þingsköp þar sem það er út af fyrir sig rétt að þegar mál eins og þetta kemur ætti að taka það fyrir í Sþ. Hins vegar er málið þess eðlis og svo brýnt að það sé rætt að auðvitað hljóta hv. þm. að reyna að neyta þess réttar síns að fá að koma hér í ræðustól á Alþingi. Þessi fundur er sá fyrsti sem haldinn er eftir að þeir atburðir gerðust í sjónvarpinu í gær að hæstv. menntmrh. gaf yfirlýsingar sem í stórum atriðum eru rangar.
Ég kveð mér hins vegar hér hljóðs vegna þess að mér hefur verið sagt, og það hefur reyndar verið staðfest, að hæstv. fjmrh. ætlaði að boða til blaðamannafundar í dag um þetta mál sem er verið að ræða í þessari þingskapaumræðu. Og ef hv. 2. þm. Vestf. segir að það sé eðlilegt að bíða eftir því að haldinn sé fundur í Sþ. vil ég minna á að hæstv. ríkisstjórn og stjórnarflokkar fara með stjórn þingsins og hafa þar mikil áhrif. Það hefði því verið eðlilegast af öllu að hæstv. fjmrh. hefði beðið hæstv. forseta þingsins að breyta dagskrá þingsins og efna til fundar í Sþ. í dag þar sem hæstv. fjmrh. hefði gefið skýrslu um málið og hv. þm. þannig gefist tækifæri til að ræða þetta mál.
Það er öllum ljóst að þetta mál hefur verið til umræðu og afgreiðslu í hv. fjvn. í tengslum við fjáraukalög vegna ársins 1988. Þess vegna hefði að sjálfsögðu verið eðlilegast að bíða eftir umræðunni um fjáraukalög. Nú hefur það gerst, sem stundum hefur gerst áður, að trúnaðarmál hefur lekið úr nefndinni til fjölmiðla. Auðvitað ber hæstv. fjmrh., þegar slíkt gerist, að biðja um að fundur sé boðaður í Sþ. og málið rætt þar áður en hæstv. ráðherra heldur blaðamannafund úti í bæ.
Þess vegna skora ég á hæstv. ráðherra, og reyndar á hæstv. forseta, að kanna það nú á næstu mínútum hvort ekki er hægt að breyta fundahaldinu með þeim hætti að haldinn sé fundur í Sþ. svo að allir hv. þm. geti tekið þátt í umræðunni. Og hæstv. fjmrh. geri þá grein fyrir málinu í Sþ. í stað þess að halda blaðamannafund úti í bæ, sem auðvitað ruglar málið og er reyndar alveg út í bláinn þegar vitað var að þessi umræða átti að fara fram hér í dag. Þessu vildi ég, virðulegur forseti, koma á framfæri í þeim umræðum sem hér fara fram um þingsköp vegna þess máls sem kom upp í gærkvöldi þegar hæstv. menntmrh. fór með rangt mál í sjónvarpinu.