Utandagskrárumræður í deildum
Miðvikudaginn 28. mars 1990


     Matthías Á. Mathiesen:
    Virðulegur forseti. Þegar beðið var um utandagskrárumræður hér í Nd. í dag út af málefni sem hefur verið í fjölmiðlum síðasta sólarhring og þegar vitað er að þegar einn af ráðherrum ríkisstjórnarinnar hyggst gefa upplýsingar á blaðamannafundi þá er vikið að því að það heyri til undantekninga að utandagskrárumræður séu í Nd. Ég kannast ekki við að slíkt séu nein undantekningartilfelli. Svo lengi sem ég hef setið hér á þingi hafa utandagskrárumræður farið fram í deildum eftir því sem við hefur átt.
    Það sýnist virkilega ástæða til þess, eins og hæstv. fjmrh. hefur lýst yfir að hann væri reiðubúinn að gera, að gefa Alþingi skýrslu einmitt um þetta atriði. Síðan eru mörg fordæmi þess að þegar svona hefur staðið á og forsetum hefur e.t.v. þótt eðlilegra að umræður færu fram í Sþ. til að gefa öllum þingmönnum tækifæri til að taka þátt í þeim að fundum í deildum hefur verið frestað og fundur boðaður í Sþ. til þess að utandagskrárumræðurnar gætu farið þar fram.