Ingi Björn Albertsson (um þingsköp) :
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að draga úr mikilvægi þeirrar utandagskrárumræðu sem hér er að fara fram. Ég ætla ekki heldur að fara fram á það að sú utandagskrárumræða sem hv. þm. Hreggviður Jónsson fór fram á að hér yrði tekin fram fyrir færi fram nú. Sem lausn í málinu vil ég leggja það undir forseta sem mína tillögu að þessi utandagskrárumræða verði hins vegar leyfð á fundi hér í kvöld kl. hálf níu.